9.4.2023 | 20:16
Grín dagsins - ísöld og steiköld
Fyrst var ísöld í aðsigi, þá steiköld. Ætli niðurstaðan verði ekki sú að ísöldin og steiköldin semji um jafntefli?
Spaugilegt | Breytt 10.4.2023 kl. 17:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.4.2023 | 16:47
Grín dagsins - ríkismiðill stimplaður ríkismiðill
Stjórn fyrirtækisins NPR eða National Public Radio í Bandaríkjunum er ekki sátt við Twitter eftir að aðgangurinn þess var merktur ríkismiðill líkt og gert er við ríkismiðla Rússlands og Kína. Eins og flestum er kunnugt fylgir NPR Demókrataflokknum að málum í einu og öllu og sleppir helst fréttum sem koma flokknum illa. Nú veit ég ekki einu sinni hvort RÚV sé á Twitter. Ef svo er, ætti fyrirtækið tvímælalaust að fá sama stimpil og NPR er nú komið með.
Spaugilegt | Breytt 8.4.2023 kl. 00:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
6.4.2023 | 15:43
Grín dagsins
Kostulegt hefur verið að fylgjast með tilraunum ákveðinna aðila að horfa framhjá aukaverkunum af völdum bólusetningar gegn Kóvit-veirunni. Það er ekki affarasælt að vera í afneitun.
Spaugilegt | Breytt 8.4.2023 kl. 00:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.4.2023 | 16:37
Grín dagsins
Juanita Broaddrick sakaði Bill Clinton um nauðgun. Paula Jones og Kathleen Willey sökuðu Bill Clinton um kynferðislegt áreiti. Hillary Clinton var sektuð fyrir að nota fé úr kosningasjóðum sínum til að fjármagna skáldaða skýrslu Christopher Steele um Rússatengsl Donald Trumps. Hillary Clinton braut augljóslega gegn lögum um varnir gegn njósnum með því að geyma ríkisleyndarmál á fartölvu sinni. Þrátt fyrir allt þetta hafa engar ákærur verið birtar. Þegar þegnar lands eru ekki jafnir fyrir lögum er hætta á ferðum.
4.4.2023 | 21:18
Grín dagsins
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 21:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.2.2023 | 18:12
Ný della
Ég er kominn með nýja dellu, að horfa á Sherlock Holmes myndir með Basil Rathbone í hlutverki Holmes. Ég er búinn að horfa á 4 myndir. Greinilegt er að safnið er ekki í eigu sama aðila vegna þess að sumar myndanna er hægt að horfa á ókeypis meðan það þarf að kaupa eða leigja aðrar. Þar sem ég er búinn að horfa á allar myndirnar sem eru innifaldar í áskriftinni minni stóð mér til boða að kaupa hinar á 11 dali stk. eða leigja á 3 dali. Ef maður leigir mynd hefur maður 48 tíma til að klára að horfa á hana. Ég hef lent í því að leigja mynd og ná ekki að klára að horfa. Það er fúlt. Ég nenni því ekki. Ég ákvað að líta á íbei og sjá hvað er í boði þar. Jújú, er ekki safn 14 mynda með Basil Rathbone og Nigel Bruce í hlutverki Dr. Watson til sölu þar á um 45 dali (með sendingarkostn.) sem gera um 3,2 dali stykkið. Ég ákvað að slá til. Diskurinn er ekki dauður úr öllum æðum nema síður sé. Basil Rathbone er frábær í hlutverki Holmes og Nigel Bruce ekki síðri í hlutverki Dr. Watson. Dr. Watson í þessum útfærslum er hálfgerður kjáni; aulabárður (hann er það alls ekki í upprunalegu sögunum). Fyrir vikið er hann bráðfyndinn og kemur þeim í klandur sem Holmes þarf svo að leysa. Handrit myndanna eru færð til samtímans sem eru stríðsárin aðallega (það fer ekki framhjá áhorfandanum). Það er líka áhugavert að sögurnar eru nánast frumsamdar þótt þær sæki efnið til jafnvel tveggja sagna eftir Arthur Conan Doyle. Titlar upphaflegu sagnanna eru yfirleitt frekar óspennandi, ævintýri þetta og ævintýri hitt. Titlar þessara mynda eru grípandi og flottir: Terror by Night, Lady in Green, Dressed to Kill (sá titill var endurnýttur á Brian de Palma-mynd um 1980). Í þessum sögum bregður Holmes sér í ýmis dulargervi við rannsókn mála. Það minnir á dulargervin sem inspector Cluseau brá sér í þegar hann var að rannsaka málin á sinn einstaka hátt. Það er óhætt að mæla með þessum myndum, einkum Dressed to Kill. Það er eins og áhrifin sem persóna Sherlock Holmes hefur á umhverfi sitt endurspeglist í kvikmyndagerðinni. Það leggja sig allir fram um að vera skynsamir, snjallir og glöggir í framleiðslunni.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 18:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.12.2022 | 17:25
Ofbeldi Evrópusambandsins
Engin atkvæðagreiðsla fór fram um bann á mentolsígarettum. Þessi tilskipun var troðið upp á okkur af nokkrum frekjum hjá Evrópusambandinu. Engar umræður fóru fram um hvort bann væri réttlætanlegt eða skynsamlegt. Með þessu seilast yfirvöld til meiri valda yfir lífi okkar. Ef frekjurnar komast upp með þetta þá beina þær sjónum sínum að einhverju öðru næst. Ísland á að setja fyrirvara um boð og bönn Evrópusambandsins. Við verðum að halda í sjálfstæðið.
Furðar sig á að banna skuli Salem og bláan Capri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.12.2022 | 17:46
Trump heilkennið á Vísi
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
26.4.2022 | 19:28
Kæra þjóð
Kæra þjóð.
Sérstaka aðgerðin Útmá nasistafól
útheimtir að sprengd séu í tætlur
Sjúkrahús, leikskólar, brýr og blokkir
í borginni Maríópól.
Sjálfur er ég friðsæll friðarsinni
sem fellir gamalmenni, konur og börn
í þeim tilgangi einum að tæpa á
takmarkalausri góðsemi minni.
Ykkar forseti.
22.4.2022 | 16:17
Pestin ríður húsum í Kína
Matt Ridley fer yfir málin í áhugaverðri grein.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Ljóð
Ferðasaga
Einn dag fyrir átta árum
með eimskipi tók ég far.
Nú man ég því miður ekki
hver meining ferðalagsins var.
En einhverra orsaka vegna
að endingu landi var náð.
Og það var með ánægju þegið,
því þetta var skipsstjórans ráð.
Og svo hef ég verið hér síðan
og sofið og vakað og dreymt.
En eins og ég sagði áðan,
er erindið löngu gleymt.