15.6.2007 | 22:52
Hnakkus
Magga frænka sem einu sinni var fræg á Íslandi fyrir að leika í Sódómu Reykjavík en er nú frægur bloggari og blaðakona með skoðun benti mér á Hnakkus bloggara sem ég leit í kæruleysi á og hreifst mjög af. Ég vil benda lesendum, einkum þeim sem staddir eru í Danskaríki, á Hnakkusinn. Þar er margt fyndið að sjá og lesa. Mikið hreifst ég af þýsku bréfi er reit hann til formanns ÍTR vegna skiltis í laugum um sápunotkun Þjóðverja og Frakka. Yndislegur er stíllinn þýskuskotni á enskunni. Fáðu þér vinnu hippi, er líka í mínum anda, enda er ég einarður í þeirri skoðun að skilja eigi að ríki og kirkju. Allir sannir frjálshyggjumenn ættu að taka undir þá kröfu. Niðurlagning styrkjakerfis kirkjunnar og landbúnaðarins eru næstu mál á dagskrá. Spurning um að setja upp háværa klukku í nágrenni Hallgrímskirkju og láta hana gala um leið og ríkisbjallan ætlar allt að æra.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Ljóð
Ferðasaga
Einn dag fyrir átta árum
með eimskipi tók ég far.
Nú man ég því miður ekki
hver meining ferðalagsins var.
En einhverra orsaka vegna
að endingu landi var náð.
Og það var með ánægju þegið,
því þetta var skipsstjórans ráð.
Og svo hef ég verið hér síðan
og sofið og vakað og dreymt.
En eins og ég sagði áðan,
er erindið löngu gleymt.
Athugasemdir
Skemmtileg skrif hjá þér Spáðu í hvað væri hægt að gera við alla þessa peninga sem fara í styrki til kirkjunnar og landbúnaðarins! Ég vil aðskilnað ríkis og kirkju og líka ríkis og landbúnaðar.
Margrét St Hafsteinsdóttir, 16.6.2007 kl. 01:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.