Leita í fréttum mbl.is

Óttist eigi

Hrefnukjötið fæst í Melabúðinni og er bæði ódýrt og gott. Það er betra en nautakjötið sem selt er á Íslandi (á meira en helmingi hærra verði) og myndi slá í gegn ef það væri auglýst eða markaðssett. Ég þori næstum að fullyrða að ekki hefur einni krónu verið varið til þess.

Hrefnukjötið hentar vel á grillið, það þarf stuttan tíma og ekki sakar að hafa kraftmikla sósu með (t.d. sveppasósu eða bernes) því það er magurt.

Neytendur Hrefnukjötsins þurfa ekki að velta fyrir sér hvort dýrin hafi verið á sterum, sýklalyfjum eða þurft að sæta illri meðferð í sóðalegum fjósum. Nei, Hrefnan er algjörlega náttúruræktuð án aukaefna og tilbúins áburðar. Hagarnir eru Atlantshafið í sínu stórkostlega veldi. Gerist ekki ecológískara.

Hrefna í innanlandsflugi


mbl.is Íslendingar vilja ekki hrefnukjötið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Elías Halldór Ágústsson

Þeir sem telja að hrefnukjöt sé ætt þurfa að láta athuga í sér bragðlaukana.

Elías Halldór Ágústsson, 16.6.2007 kl. 08:21

2 Smámynd: Ívar Jón Arnarson

Þeir sem telja hrefnukjöt óætt eru bara matvendnispúkar og gikkir :)

Ívar Jón Arnarson, 16.6.2007 kl. 08:31

3 identicon

Ódýrt! ... Þegar Hagkaup voru að selja þennan óþvera var kílóverðið 900 kr. - það kalla ég nú ekki ódýrt. Kettinum þótti þetta ágætt (hrátt) en ég fer ekki að kaupa þetta á 900 krónur ofan í hann. Hann verður að gera svo vel og láta sér nægja dósamat þar til þetta lækkar. 

Jón Garðar (IP-tala skráð) 16.6.2007 kl. 08:34

4 Smámynd: Stefán Jónsson

Elías Halldór, þú kannt ekki að elda hrefnukjöt.
Jón Garðar, finnst þér 900 krónur á kílóið dýrt fyrir úrbeinað og fitusnautt kjöt í Hagkaupum? Hvað ert þú vanur að borða? Gróðurmold?

Stefán Jónsson, 16.6.2007 kl. 09:45

5 Smámynd: Sigurgeir Orri Sigurgeirsson

Þeir sem fúlsa við hrefnunni vita ekki hverju þeir eru að missa af. Með réttri markaðssetningu og annarri kynningu gæti þetta orðið þjóðarréttur Íslendinga rétt eins og pizzan er þjóðarréttur Ítala, skinkan Dana, Sauerkraut Þjóðverja og hamborgarinn Bandaríkjanna. Útlendingar sem hingað koma eru í leit að einhverju nýju. Hrefnan er sannarlega ný og spennandi. Ég tek undir með vottunum og segi: VAKNIÐ!

Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, 16.6.2007 kl. 10:03

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það fæst einnig got "kryddlegið" hrefnukjöt í Krónunni.  Í guðana bænum ekki láta hrefnukjöt lyggja í mjólk, það er pottþétt leið til þess að eyðileggja kjötið.

Jóhann Elíasson, 16.6.2007 kl. 10:53

7 identicon

Fyrir óþvera eins og hrefnukjöt finnst mér mikið að greiða 900 kr. Ekki veit ég hvað kemur Elíasi Halldóri til að halda að allt sem verðlagt er undir því hljóti að vera gróðurmold - ég ætla þó ekki að skipta mér af því hvað hann leggur sér til munns. Það mun þó vera staðreynd að kálhausar þrífast ágætlega í gróðurmold þótt ég ætli honum ekki að vera það.

Maður verður samt hissa að enn skulist finnast kreddukellingar eins og Málfríður sem halda því fram að "þeir sem fúlsi við góðum mat kunni bara ekki gott að éta [svo]". Í sama strend tekur Ívar. Þau geta étið það sem þau vilja mín vegna.

Hér áður fyrr þótti úldinn hvalur og möðkuð skreið herramannsmatur á borðum Íslendinga - þeir flykktust í hópum ef einhversstaðar fannst sjórekið hræ. Þá hefur vafalaust verið sagt að "þeir sem fúlsi við góðum mat kunni bara ekki gott að éta"

Það merkilega er að enn eimir eftir af þessum matarsmekk þjóðarinnar: Fyrir svona 10 - 15 árum síðan rak á land hval sem varð sjálfdauður og auðvitað streymdi mörlandinn á staðinn að ná sér í bita. Það var ekki fyrr en heilbrigðisyfirvöld skárust í leikinn að þessu linnti. Þá hefur vafalaust einhver sagt: "þeir sem fúlsa við góðum mat kunni bara ekki gott að éta" 

Jón Garðar (IP-tala skráð) 16.6.2007 kl. 13:52

8 identicon

Að sjálfsögðu á að standa þarna Stefán Jónson en ekki Elías Halldór og bið ég báða forláts á því.

Jón Garðar (IP-tala skráð) 16.6.2007 kl. 14:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson

Fyrir mér er sannleikurinn mikilvægastur. Mörgum svíður undan sannleikanum. Það verður bara að hafa það. Sannleikurinn blívur.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 114010

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband