Færsluflokkur: Dægurmál
3.4.2010 | 18:17
Afleiðingar bannsins
eru þær að starfsemin fer í undirheimana. Þessi frétt er fyrirtaks dæmi um það. Eftirspurnin er til staðar og þegar svo er, færist starfsemin einfaldlega út fyrir lög og rétt.
Eðlilegra væri að gefa sölu á líffærum, eins og nýrum, frjálsa. Það myndi lina þjáningar þúsunda manna og koma í veg fyrir annan eins fjölda af dauðsföllum. Þeir sem harðast börðust fyrir lögum gegn líffærasölu, eins og til dæmis Al Gore, eru vegna þess ábyrgir, amk. að hluta til, fyrir dauða margra manna. Þetta er oft afleiðingin af gjörðum vel meinandi, en grunnhygginna stjórnmálamanna.
Nýlegar rannsóknir sýna að fórnfýsi manna er minni en talið var til skamms tíma.
Handtekinn grunaður um líffærasölu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.3.2010 | 19:20
100% af engu eða 25% af mörgu?
Væri ekki nær að lækka eða fella niður aðkomuskatta til landsins? Það skilar miklu meiri tekjum til landsmanna að fá sem flesta ferðamenn til landsins því þeir kaupa vörur og þjónustu sem er með hæsta virðisaukaskatti í heimi, fylla tankinn með háskattaeldsneyti og skola matnum niður með háskattavíni.
Skattahugmyndaauðgi þeirra sem ráða ferð ríkisfjármálanna í dag er takmarkalaus, en að sama skapi grunnhyggin. Þeir virðast ekki átta sig á einföldustu hlutum. Til dæmis því að betra er að fá lítinn hluta af stórri köku, en stóran hluta af lítilli köku.
Atvinnulífið á Íslandi þarf hvatningu og uppörvun. Skattastefna ríkisstjórnarinnar hefur lamandi áhrif.
Sérstakt farþegagjald lagt á | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.3.2010 | 05:44
„Búið er að panta girðingu úr Reykjavík“
Hraunið verður afgirt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.3.2010 | 00:54
Ávísun á spillingu
Ekki sérlög um ívilnanir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
25.1.2010 | 02:25
Bolir á útsölu
Ég var beðinn fyrir hönd ákveðinnar hönnunarstofu hér í bæ að falbjóða tvo boli á niðursettu verði. Mér finnast þessir bolir frekar ljótir (litlausir, minna á gráan hversdagsleika kommúnistaríkjanna sálugu) og hvet engan til að kaupa þá, en ég kann ekki við að vera dónalegur við vin minn sem bað mig að gera sér þennan greiða.
Þennan texta bað hann mig að láta fylgja með:
Afsláttarverðið er ekkert minna en æðislegt, þú sparar 378% frá listaverði og þarft aðeins að reiða fram 29,990 krónur fyrir stykkið, staðgreitt. Inn í þessu einstaka afsláttarverði er 30% virðisaukaskattur, en hann er hafður svona hóflegur vegna hinnar GLÆSILEGU niðurstöðu íslensku samninganefndarinnar í Icesave málinu. Sérstakur afsláttur er veittur ef báðir bolirnir eru keyptir, eða 456% af listaverði. Samtals kosta bolirnir tveir, pakkaðir í plast, aðeins 75,990 krónur.
Bolirnir fást í öllum stærðum, hvítir með svötru letri. 0,001 prósent af sendingarkostnaðinum rennur óskipt til Stjórnmálamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
30.12.2009 | 23:49
Meira fyrir landsdóm að gera
Málsmeðferð Steingríms J. Sigfússonar og meðreiðarsveina hans hefur verið með slíkum ólíkindum, óheilindum og dusilmennsku að það hlýtur að jafnast á við landráð. Fyrir þennan skuldaklafa sem þeir hafa komið á þjóðina að ósekju eiga þeir ekkert minna skilið en þungan refsidóm. Landsdómur mun hafa nóg að gera á næstunni.
Hið eina góða við ástandið nú um stundir er að verið er að bólusetja þjóðina fyrir vinstrimönnum marga áratugi fram í tímann. Þegar þjóðin fer að greiða af skuldaklafanum minnast menn þeirra ræfla, vinstrimannanna, sem seldu landið fyrir völd í nokkur misseri.
Ekki er nokkur vafi á því að Steingrímur er á síðustu metrunum í stjórnmálum. Önnur eins óheilindi geta jafnvel ekki kommúnistar liðið.
Alþingi samþykkti Icesave | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
10.12.2009 | 16:47
Fæstir frá Bandaríkjunum
Margir brottfluttir snúa heim aftur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
9.12.2009 | 18:25
McHrútspungar
Einu sinni var Guðmundur Ólafsson, hinn ágæti leikari og rithöfundur, á ferðalagi í útlöndum. Eins og gerist stundum þá rakst Guðmundur á heimsfrægan mann. Engan annan en Luciano Pavarotti. Þar sem Guðmundur er framfærinn maður og sjálfur liðtækur söngvari (lék slíkan í leikritinu Tenórinn) gaf hann sig á tal við Pavarotti. Fór vel á með þeim skildist mér á Guðmundi, en hann sagði þessa sögu í útvarpinu fyrir nokkrum árum. Það sem mér þótti eftirminnilegast við sögu Guðmundar var staðurinn sem fundum hins ítalska stórsöngvara og íslenska leikara bar saman.
Sjálfur hef ég rekist á frægt fólk í útlöndum, en þó ekki er ég fór í menningarferð til Hong Kong. Hong Kong er fögur borg sem iðar af mannlífi og blikkandi neonskiltum og þar eru margir veitingastaðir vestrænir sem austrænir. Mig langaði að kynnast menningu borgarinnar og þefaði uppi ekta hong kongískan veitingastað. Veitingahúsið var lítið og notalegt og það sátu eingöngu innfæddir til borðs. Er ég gluggaði í matseðilinn komst ég að því að hann var á ljómandi útlitsfríðri mandarínsku. Þar sem ég skil ekki það tungumál valdi ég matinn af handahófi. Rétturinn sem ég pantaði var fráhrindandi. Sjávarskordýr á núðlubeði með slorbragði. Sjávardýrið hef ég hvorki fyrr né síðar séð.
Ég yfirgaf staðinn án þess að borða matinn og fór á næsta McDonalds. Matseðilinn þar skildi ég vel vegna þess að á honum voru myndir auk þess sem hann var á ensku. Ekki nóg með það, ég vissi hvernig rétturinn sem ég pantaði var á bragðið þótt ég hefði aldrei komið inn á þennan stað áður.
Á framandi slóðum er gott að eiga fasta keðju í tilverunni. Þótt hægt sé að lesa sig til um góða veitingastaði í ferðahandbókum, eru ekki allir sem nenna því, einkum ef ferðin er stutt. McDonalds var mér skjól og það gerði mér svo aftur kleift að kynnast annarri menningu Hong Kong saddur og sæll en ekki svangur og fúll. Maður þarf jú að borða nokkrum sinnum á dag og er ekki alltaf reiðubúinn að prófa eitthvað nýtt.
Á McDonalds veit maður að minnsta kosti hvað maður fær er viðkvæði sumra skyldmenna minna á ferðalögum í útlöndum. Og þetta fólk vandi ekki komur sínar á McDonalds á Íslandi, meðan sá staður var og hét, vegna þess að á Íslandi hefur það komið sér upp næringarkerfi sem það þekkir í þaula. Ég hygg að það öryggi sem skyndibitastaðir eins og McDonalds veita með því að bjóða allstaðar upp á sama matinn sé lykillinn að vinsældum þeirra. Það er miklu meiri óvissu háð að fara td. á Chongs Steakhouse, Jacks Noodle Bar eða Luigis Pastaplace í útlöndum. Hver veit nema Chongs Steakhouse sé sóðaleg búlla? Hver veit nema Jacks Noodle Bar sé frontur eiturlyfjasala og Luigis Pastaplace sé rekið af óvönduðum mönnum sem stela kortanúmerum?
Mannskepnan leitar að öryggi og vanafestu, ekki síst hvað mat snertir, vegna þess að áður fyrr var það trúlega spurning um að komast af að finna þann mat sem hentaði og hengja sig á hann (ekki eitraður, næringarríkur, fór vel í viðkomandi maga). Allir þekkja fólk, ósjaldan börn, sem er dyntótt í mataræði. Sem borðar eingöngu hamborgara með tómatsósu og engu öðru, pylsu með tómatsósu ofan á og undir, drekkur eingöngu Pepsi Max, borðar ekki rauðkál, baunir, blómkál, tómata, lauk osvfrv. Gyðingar borða ekki svínakjöt vegna þess að einu sinni fylgdu því sjúkdómar (etv. inflúensuveira, svínaflensa). Síðan varð það hluti af trúnni. Það að borða ekki svínakjötið var lykilatriði í því að komast af. Matseðill sem virkar vel, er ein af grunnþörfum mannskepnunnar.
Það að McDonalds sé ekki lengur í boði á Íslandi er trúlega meiri ímyndarskaði fyrir landið en virðist í fyrstu. Margir útlendingar sem lásu fréttina töldu að það væri matarskortur á Íslandi eða eitthvað þaðan af verra. Þeir sem hyggjast etv. koma til landsins hafa einum valkosti færra hvað mat snertir eftir að McDonalds hætti. Geta ekki lengur kynnt sér sviða- og hrútspungamenninguna vitandi af McDonalds í nágrenninu.
Hráefnið í McDonalds á Íslandi kom frá Þýskalandi og þeir sem telja það sem miður fer í matvælaframleiðslu í Bandaríkjunum koma því eitthvað við, eru lítilla sanda. Vandinn við fjöldaframleiðslu matvæla er almennur, ekki bundin við einstaka keðjur eða skyndibita. Fáir hafa sakað Þjóðverja um óvönduð vinnubrögð í matvælaframleiðslu þótt eflaust sé þar pottur brotinn eins og annars staðar.
Ítalir eru frægir fyrir að vera matgæðingar, ótal veitingastaðir tengdir Ítalíu bera þess glöggt vitni. En hvar skyldu leiðir hins ítalska stórtenórs Pavarottis og Guðmundar Ólafssonar stórleikara hafa borið saman? Jú, á McDonalds. Nú grunar mig að Guðmundur sé enginn sérstakur aðdáandi bandarískra stórfyrirtækja og allra síst kona hans Olga Guðrún Árnadóttir (sem söng um Keflavíkurveginn og Karl Marx á sínum tíma). Það aftraði honum þó ekki frá því að fá sér einn feitan BigMac. Líklegt má teljast að Guðmundur, eins og margir aðrir, hafi einfaldlega verið svangur og viljað fá sér eitthvað sem hann þekkti á einfaldan fljótlegan hátt. Og Pavarotti líka.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.11.2009 | 08:29
Hlegið að Al Gore?
Pachauri ver loftslagsfræðinga | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
18.11.2009 | 15:33
Ánægjuleg frétt
Mikið er gaman að þessum gögnum hafi verið bjargað frá eyðileggingu. Svona efni getur verið afar hjálplegt á myndrænan hátt ef sögð er til dæmis saga kvikmyndagerðar á Íslandi í heimildarmynd.
Mig langar að nota tækifærið og þakka Eiríki Símoni Eiríkssyni mikið fyrir að hafa bjargað þessu frá glötun.
Ómetanleg menningarverðmæti fundust á sorphaugum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (4.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Ljóð
Ferðasaga
Einn dag fyrir átta árum
með eimskipi tók ég far.
Nú man ég því miður ekki
hver meining ferðalagsins var.
En einhverra orsaka vegna
að endingu landi var náð.
Og það var með ánægju þegið,
því þetta var skipsstjórans ráð.
Og svo hef ég verið hér síðan
og sofið og vakað og dreymt.
En eins og ég sagði áðan,
er erindið löngu gleymt.