6.6.2008 | 19:01
Hlutirnir í kringum mig
Öðru hverju í allmörg ár hef ég skrifað í nokkurs konar dagbók, eða nótubók, á kaffihúsum bæjarins. Um daginn tók ég nótubók með mér á kaffihúsið í verslun Máls og Menningar og gluggaði í gamalt blaður. Ein færslan var einmitt skrifuð á því sama kaffihúsi nokkrum árum áður. Það er gott að liðka fingurna og hugann og koma sér í gír með því að skrifa um það sem er manni næst ekki fjölskylduna heldur hlutina á borðinu og jafnvel í kring ef sá gállinn er á manni. Þannig var sú færsla sem ég las. Bara lýsing á því sem var á borðinu og í kring. Og viti menn, það rifjaðist upp fyrir mér nákvæmlega hvað ég var að gera, hvernig veður var þennan dag osvfrv. Bara með því að telja upp hvað var á borðinu kom heildarmynd dagsins upp úr öskustó minnisins. Ég þurfti ekki að skrá samviskusamlega hvað ég var að gera þennan dag til að rifja hann upp, heldur bara skrifa: Kaffibolli, sykurkar, dagblað... Furðulegt, en samt satt.
Tungumálið og ritmálið eru endalaus uppspretta heillandi viðfangsefna. Hvernig er best að setja hlutina fram, hvað er best að segja til að lýsa tilteknum hlut og hvað hentar ekki að segja. Hvort það er best að lýsa beint, eða óbeint, hvort hefur meiri áhrif osvfrv.
Þar sem ég er nú staddur í útlöndum og er að fara að takast á við nýtt verkefni er gott að byrja á að staðsetja sig, skjóta rótum, finna jafnvægi, liðka puttana og hugann með því að lýsa því sem er í kringum mann. Það kann að vera óviðeigandi að skilgreina í og með hvað maður er að gera, en það er samt allt í lagi tel ég. Tungumálið fyrirgefur mér það er ég viss um. En hvað ég er heppinn. Lesendur hins vegar nenna vafalaust ekki að lesa lengra. 99% af þeim er farið á næstu bloggsíðu í leit að bitastæðu lesefni.
Saltstaukur merktur Trader Joe's. Í honum eru sjávarsaltkristallar frá Suður Afríku, ef eitthvað er að marka miðann. Ljósgrænn kaffifontur með botnfylli af köldu kaffi með rjóma. Auðkennislykill, rafmagnssnúra í tölvuna. Auglýsingapóstur, efsta blaðið heitir Weekender A South Coast Lifestyle Magazine. Í því eru hús auglýst til sölu ásamt öðru. Hús í Laguna Beach er falt fyrir 1 milljón og 6 hundruð þúsund dali. Við hlið Weekender-blaðsins er Laguna Beach Home auglýsingabæklingur sem ég fletti áðan og snýst um heimilið, aðallega fataherbergið og garðinn. Í því er til dæmis auglýst gervigras í garðinn og marmari á gólfin. Undir því blaði er bæklingur frá Irvine Valley College, sem er einskonar endurmenntunarstofnun. Emeritus-prógrömmin eru hugsuð fyrir eldri borgara. Skemmtilegt nafn. Snúra í tölvuna eðernet og svo mús og tölva og puttarnir á mér.
Á myndinni má sjá Ragnar Orra í klifrigrind eigi allfjarri ströndinni í Laguna Beach, Main Beach eins og hún er kölluð. Við feðgarnir fórum í strandferð þennan dag og bjuggum til sandkökur, mökuðum á okkur sólvörn og lágum í sólbaði.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
5.6.2008 | 20:26
Guð er ekki fullkominn
Egozentric designs® París, Róm, London, New York, kynnir með stolti nýjustu hönnun aðalhönnuðar fyrirtækisins. Verðið svíkur engan, aðeins 15 þúsund krónur fyrir utan vsk. og flutningskostnað. Fæst í öllum stærðum.
Dægurmál | Breytt 16.7.2008 kl. 15:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
24.5.2008 | 20:09
Ritvélin mín
Fartölvan mín er komin til ára sinna, þó er hún mjög fín ritvél, því ég nota hana eiginlega ekki til neins annars en að vélrita, til dæmis texta eins og þennan. En ég á líka raunverulega ritvél, meira að segja tvær. Keypti þær í Góða hirðinum. Önnur er puttadrifin, hin rafmagns. Sú puttadrifna er meira til skrauts, en sú rafdrifna er mikill kostagripur. Suðið í henni er yndislegt þótt nokkur desíbil sé. Ritvélar eru að sumu leyti þróuð útgáfa af tölvu. Hver kannast ekki við að hafa átt í vandræðum með að prenta úr tölvunni? (Prentarinn finnst ekki osfrv.) Með ritvél er þessi vandi úr sögunni. Lyklaborðið er beintengt prentaranum. A verður A á pappírnum á sama augnabliki og þrýst er á það. Gallinn er sá að til dæmis B verður undir eins B á pappírnum þegar óvart er þrýst á það. Lausnin á því vandamáli er Tippex eða sérstakur leiðréttingaborði í ritvélinni. Ég spái því að í framtíðinni munu æ fleiri færa sig aftur yfir á ritvélina. Um daginn spurði ég um Tippex í Pennanum og afgreiðslumaðurinn vissi ekki hvað það var! Æskan í dag! Hvar endar þetta eiginlega?
Í gær fékk ég nýja rafhlöðu í fartölvuna mína. Á þessu augnabliki er tölvan drifin áfram af rafmagni frá henni. Áður gat ég ekki notað fartölvuna sem fartölvu vegna þess að rafhlaðan hélt ekki út nema í uþb. hálftíma. Ég ákvað sem sagt að endurnýja rafhlöðuna í tölvunni minni gömlu frekar en kaupa nýja fartölvu. Miðað við ástand efnahagsmála í heiminum hefði það verið ábyrgðarleysi af mér að festa kaup á Mac Book Air, draumatölvunni minni. Ég mun því láta Titanium PowerBook G4 frá 2002 duga enn um sinn.
Ég er ennþá í náttfötunum. Sit í sófanum. Kaffibolli er á sófabríkinni, sá þriðji í morgun. Í gær vorum við í mat hjá Svavari og Rúnu. Ég hef aldrei borðað eins mikið af humri á ævinni. Þvílík veisla! Á þeirra heimili gildir sá siður að fylla vínglösin alveg að brún (sem er glæsilega gyllt). Ég er ekki frá því að ég finni fyrir því í dag án þess að ég sé að varpa ábyrgðinni af ofneyslu áfengis á neinn annan en mig.
Er að horfa á Flaunt stöðina í sjónvarpinu. En það er sú sjónvarpsstöð sem birtir hvað mest af berum stúlkum án þess að teljast vera dónaleg. Danstónlistin kallar á færri föt og fegurra fólk. Er nema von að ég hafi gaman að henni? Mæli sérstaklega með Alex Gaudino en hann tengir saman knattspyrnu og fagrar stúlkur á listilegan hátt. Nú er hið frábæra tónlistarmyndband með Madonnu og Justin Timberlake í gangi (4 minutes). Ótrúlegt augnakonfekt og tækibrellur. Madonna er kameljón. Endurskapar sjálfa sig eftir þörfum. Hrúga af ósamanbrotnum þvotti er á einum eldhússtólnum, fallítt tímaritið Bístró á sófaborðinu, gallabuxur og peysa af Ragnari Orra í sófanum. Barnaorgel sem ég keypti hjá Hjálpræðishernum liggur á gólfinu. Fullkomið!
22.5.2008 | 15:23
Hvað sýnir reynslan?
Fyrir nokkrum árum þegar Hrefnuveiðar hófust æptu margir í örvæntingu að hvalaskoðanir myndu leggjast af ef slíkur ósómi yrði leyfður og ferðaþjónustan myndi bíða óbætanlegan skaða.
Hver er reynslan?
Hún er sú að aldrei fleiri heimsækja Ísland og aldrei fleiri fara í hvalaskoðanir.
Þarf að ræða þetta eitthvað frekar?
![]() |
Vinstristefna að tala niður atvinnulífið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
17.5.2008 | 10:45
Strikamerkið snýr að skannanum
Sem meðvitaður neytandi og góðhjartaður að eigin áliti ákvað ég eitt sinn að gera afgreiðslubarninu á kassanum lífið léttara með því að raða öllum vörum þannig á færibandið að strikamerkið sneri að skynjaranum. Það gekk ljómandi vel, barnið skannaði alla matarkörfuna á met-tíma. Vörurnar hrúguðust upp á aftara færibandinu og ég hafði ekki undan að raða í pokana. Áður en varði var barnið farið að afgreiða næsta viðskiptavin og vörur hans hrúguðust utan í mínar. Það myndast alltaf einhvers konar drullaðu-þér-út-ástand þegar maður hamast við að raða í pokana og greiðir, en aldrei eins ýkt og þegar ég ákvað að vera góður. Nú er ég hættur að vera góður. Það er bara óþægilegt, og maður fær engar þakkir, eins og til dæmis hjálp frá kassabarninu við að raða í pokana, í staðinn. Held meira að segja að það hafi ekki einu sinni tekið eftir góðverki mínu. Mér finnst þetta ljóður á ráði kaupmanna að hafa engan til að hjálpa fólki að raða í poka. Ég minnist þess að í Bandaríkjunum setti afgreiðslumaðurinn vörurnar beint í poka (sem voru opnir í sérstökum stöndum) og það var meira að segja líka starfsmaður sem hjálpaði til. Það var þjónusta í lagi. Ég ætla að prófa að snúa strikamerkjunum að skynjaranum næst þegar ég versla í því ágæta landi.
Boðskapur sögunnar er að það borgar sig ekki alltaf að vera góður, eins kaldranalega og það hljómar nú. Laun heimsins eru vanþakklæti. Sniff.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 10:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
15.5.2008 | 23:55
Idjótískt
![]() |
Lok lok og læs í Pósthússtræti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
12.5.2008 | 21:13
Glápti um of
Guttormur Melsteð bifvélavirki hlaut nýlega dóm, 10 daga skilorðsbundið fangelsi, fyrir glæp sem flestum þykir heldur lítilfjörlegur, en er etv. til marks um breytta tíma. Er hann sá fyrsti sem dæmdur er eftir nýju lögunum sem samþykkt voru skömmu eftir að Vinstri Grænir og Samfylkingin settust í ríkisstjórn. Aðspurður sagði Steingrímur J. Sigfússon dómsmálaráðherra að þetta væri bara byrjunin. Ósiðleg hegðun á netinu verði ekki liðin, í hvaða formi sem hún birtist. Við höfum öfluga eftirlitssveit sem fylgist með borgurunum á netinu. Eftir síðustu aukafjárveitingu var hægt að fjölga um 1000 manns í sveitinni og fjárfesta í öflugri eftirlitsbúnaði. Í framtíðinni hyggjumst við virkja enn fleiri til eftirlitsins því meinið er enn mjög margt á netinu, meira en sú úrvalssveit sem við höfum nú á að skipa ræður við.
Guttormur vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið þegar netlögreglan ruddist inn á heimili hans í Bogahlíðinni fyrr í vetur og handtók hann og gerði tölvuna upptæka. Það var ekki fyrr en ég var kominn niður á stöð að ég komst að því hvað það var sem ég hafði gert af mér, sagði Guttormur í samtali við Slefað og skeint. Glæpurinn var sá að ég hafði glápt of mikið á Ítalíu! Hvernig kom það til? spyr blaðamaður. Ég var að velta fyrir mér hvert ég átti að fara í fríinu í sumar og hafði opnað Google-jörð forritið og var að skoða Toskana-hérað á Ítalíu. Ég hef trúlega glápt í yfir 5 mínútur sem er hámarkið skilst mér.
Dómsmálaráðherra sagðist ekki tjá sig um einstök mál, en taldi hámarks gláptíma 5 mínútur á hvert land hæfilegan, óháð stærð. Þau eru öll jafn stór á tölvuskjánum, fer bara eftir því hversu nálægt viðkomandi áhorfandi er, sagði ráðherrann og benti jafnframt á að það séu fjölmörg lönd í heiminum sem hafa samþykkt sambærileg lög. Er blaðamaður spurði hvaða lönd það væru sleit ráðherrann símtalinu. Nánari rannsókn leiddi í ljós að Búrma, Kúba, Lýbía, Norður Kórea og Noregur hafa gert gláp refsivert.
Slefað og skeint vonar að Guttormur haldi skilorðið.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.5.2008 | 11:18
Ekkert að óttast
Fátt er skemmtilegra en dómsdagsspár sem skáka hvor annarri út. Áhyggjufullir Byron-sérfræðingar sem verja öllum sínum akademísku kröftum í greinaskrif um loftslagsmál geta hætt því nú þegar. Síðustu áratugi hafa ófáir snillingarnir spáð því að olía gangi senn til þurrðar, eftir 10 ár, 15 ár og svo framvegis. Og enn er verið að spá því að olían klárist. Ég held að flestir geti verið sammála um að olían mun klárast á næstu 100 árum, amk. minnka mjög mikið, ég tala nú ekki um ef allir Kínverjar kaupa sér bíl. Það er vitaskuld hryllileg framtíðarsýn. Hugsið ykkur öngþveitið! Ekkert bensín! Ekkert eldsneyti til að setja á einkaþotuna til að komast á næstu umhverfisráðstefnu!
Fátt er svo með öllu illt... Ef engin er olían er heldur enginn útblástur koltvísýrings!
Hin stórkostlega hætta sem mannkyni stafar af gróðurhúsagasinu mun hverfa af sjálfri sér.
Þessu fylgir mikill léttir, en líka tregi. Nú vantar mig dómsdagsspá í formi Heimur versnandi fer til að næra óttann, óttann sem lúrir í dulvitundinni og heimtar sitt.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
7.5.2008 | 21:45
Allt sem aflaga hefur farið í Reykjavík er flugvellinum að kenna
Fyrir nokkrum dögum var grein með þessu inntaki eftir mann, arkitekt, í Morgunblaðinu. Hann taldi að vegna þess að þetta dýrmæta svæði skyldi hafa verið tekið undir flugvöll hefði byggðin í Reykjavík þvingast út um holt og hæðir og orðið jafn gisin og hún er í dag. Ef bara mönnum hefði borið gæfa til að leggja flugvöllinn niður strax eftir stríð væri Reykjavík nú paradís með þéttsetnum almenningsvögnum og raunverulegum miðbæ. Gott ef hann sagði ekki líka að allt sem gengið hefur honum sjálfum í mót í lífinu væri flugvellinum að kenna. Það er amk. tilfellið með mig. Ég hefði trúlega aldrei slitið barnsskónum í Kópavogi ef Vatnsmýrin væri öll í byggð og einbýlishúsahverfi í Öskjuhlíðum. Þá hefði ég ekki næstum því lent fyrir vörubíl á Kársnesbraut og ekki þurft að naglhreinsa spýtur með pabba þegar ég vildi miklu heldur smíða kofa á smíðavellinum. Þá hefði ég ekki kynnst þessum púkum sem bjuggu á Þinghólsbrautinni og götunum í kring. Mikil er ábyrgð skipulagsyfirvalda í Reykjavík!
Grein arkitektsins er nú meiri endemis vitleysan verð ég að segja með fullri virðingu fyrir honum. Hafi verið fyrir því vilji, hefði verið leikur einn að byggja þéttar í Reykjavík. Til dæmis með því að hafa fleiri hæðir í fjölbýlishúsunum. Það var ekki gert. Það var meira að segja bannað, og er enn að ég tel, að byggja fleiri en 4 eða 5 hæðir. Sem dæmi um það má nefna að glerhýsið sem stendur á horni Laugavegar og Kringlumýrarbrautar (og hýsir nú Apple-búðina) er nokkrum hæðum lægra en til stóð. Starfsmaður verktakans sem byggði húsið sagði mér þetta sjálfur. Enda er húsið kubbslegt og skortir þann þokka sem fylgir glerháhýsum.
Flugvöllurinn á að vera í Vatnsmýrinni áfram. Það er mín skoðun. Hann er rós í hnappagat borgarinnar, hann er persónuleiki miðbæjarins, flugumferðin um hann er hjartsláttur Reykjavíkur. Það er eitthvað að gerast finnst mér þegar einkaþoturnar svífa inn til lendingar eða einkavélarnar sveima um loftin með sínu yndislega vélarhljóði. Ef flytja á flugvöllinn er eini raunhæfi kosturinn Keflavíkurflugvöllur. En áður en svo verður þarf að leggja þangað fjórfaldan akveg sem þræðir ekki blómabeð íbúa Garðabæjar og öll 50 hringtorgin í Hafnarfirði.
Að auki er rökvilla í málflutningi þeirra sem vilja reisa íbúabyggð á flugvallarsvæðinu. Hún er sú að umferðaræðarnar, Miklabraut, Skógarhlíð, Bústaðavegur og Hringbraut, bera ekki meiri umferð en þá sem nú fer um þær. Ef heilt hverfi bætist við miðbæinn er hætt við að fleiri verji tíma sínum í bílnum á kostnað vinnu og fjölskyldu. Gott og vel, lagðar verða nýjar stofnæðar. Til dæmis í Öskjuhlíðinni fyrir neðan kirkjugarðinn. Gangi ykkur vel með það! Var ekki horfið frá þeim áformum fyrir nokkrum árum? Fjandmenn einkabílsins sem jafnframt eru ákafir um 102 Reykjavík hafa trúlega ekki hugsað málið til enda.
Dægurmál | Breytt 11.5.2008 kl. 22:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
29.4.2008 | 15:50
Hvað get ég gert?
Ef þú hefur áhyggjur af hlýnun af mannavöldum skaltu ekki sitja aðgerðalaus hjá, því með því að sitja aðgerðarlaus hjá ertu um leið að skipa þér í flokk þeirra sem skella skollaeyrum við samkór vísindamanna, eru afneitunarsinnar, gera grín að Al Gore og eru handbendi olíurisa, ef ekki kapítalismans (öðru nafni Djöfulsins) í heild sinni. Hafirðu skrifað greinar í blöð eða á netið, eða gert athugasemd við bloggskrif um þetta mál, skaltu ekki láta þar við sitja. Það er nefnilega margt sem þú getur gert til að koma í veg fyrir að kúlan okkar kæra hlýni um of. Íslandi er, eins og allir vita, sérstaklega hætt við hlýnun. Það yrði bókstaflega óbyggilegt ef það hlýnaði hér um 0,7 gráður á 100 árum. Ríkið á að sjálfsögðu að skattleggja allan óþarfa lúxus í topp (að mati sérstakrar nefndar sem í væru td. Steingrímur J. Sigfússon og Ögmundur Jónasson) og setja kvóta á koltvísýringsspúandi iðnað til að hindra hlýnun. En ríkið eitt og sér getur ekki gert allt. Samstillt átak þín og ríkisins mun skila árangri. Liðið sigrar ekki nema allir leikmennirnir séu á sömu blaðsíðunni, tali saman og hvetji hver annan.
Þú getur:
1. Ekki eignast börn. Því fleiri börn, því meiri útblástur af þínum völdum.
2. Málaðu þak húss þíns hvítt sem og veggi og garð. Hvítur litur hrindir frá sér ljósi og drekkur ekki í sig hita.
3. Vertu alltaf í hvítum fötum.
4. Ekki nota flugvélar til ferðalaga. Farðu heldur með seglskútu milli staða.
5. Aktu ekki um á bíl og ekki nota strætisvagna. Strætisvagnar menga miklu meira á hvern farþega en einkabíllinn. Það er sjálfsblekking að halda að strætó sé umhverfisvænn ferðamáti. Ef þú þarf að fara eitthvað, sem er reyndar nánast öruggt að þú þarft ekki, gakktu þá eða hjólaðu.
6. Ekki borða eins og svín. Aukakílóin eru hrein mengun, þau eru ónotaður kornakur sem hefði óétinn minnkað magn koltvísýrings í andrúmsloftinu.
7. Láttu skjóta þér út í geim þegar þú drepst. Þá losarðu jörðina við mikla mengun.
Ef lesendur hafa fleiri tillögur sem koma að gagni í baráttunni við hlýnun af skítugum mannavöldum eru þær vel þegnar.
Óskandi væri ef einhver sem hefur tíma gæti fylgst með þeim sem hvað heitastir eru í sannfæringu sinni um hlýnun af mannavöldum. Gá hvort þeir láti athafnir fylgja orðum og spili með liðinu.
Dægurmál | Breytt 7.5.2008 kl. 21:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (13.9.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Ljóð
Ferðasaga
Einn dag fyrir átta árum
með eimskipi tók ég far.
Nú man ég því miður ekki
hver meining ferðalagsins var.
En einhverra orsaka vegna
að endingu landi var náð.
Og það var með ánægju þegið,
því þetta var skipsstjórans ráð.
Og svo hef ég verið hér síðan
og sofið og vakað og dreymt.
En eins og ég sagði áðan,
er erindið löngu gleymt.