Leita í fréttum mbl.is

Ritvélin mín

Fartölvan mín er komin til ára sinna, þó er hún mjög fín ritvél, því ég nota hana eiginlega ekki til neins annars en að vélrita, til dæmis texta eins og þennan. En ég á líka raunverulega ritvél, meira að segja tvær. Keypti þær í Góða hirðinum. Önnur er puttadrifin, hin rafmagns. Sú puttadrifna er meira til skrauts, en sú rafdrifna er mikill kostagripur. Suðið í henni er yndislegt þótt nokkur desíbil sé. Ritvélar eru að sumu leyti þróuð útgáfa af tölvu. Hver kannast ekki við að hafa átt í vandræðum með að prenta úr tölvunni? (Prentarinn finnst ekki osfrv.) Með ritvél er þessi vandi úr sögunni. Lyklaborðið er beintengt prentaranum. A verður A á pappírnum á sama augnabliki og þrýst er á það. Gallinn er sá að til dæmis B verður undir eins B á pappírnum þegar óvart er þrýst á það. Lausnin á því vandamáli er Tippex eða sérstakur leiðréttingaborði í ritvélinni. Ég spái því að í framtíðinni munu æ fleiri færa sig aftur yfir á ritvélina. Um daginn spurði ég um Tippex í Pennanum og afgreiðslumaðurinn vissi ekki hvað það var! Æskan í dag! Hvar endar þetta eiginlega?

Í gær fékk ég nýja rafhlöðu í fartölvuna mína. Á þessu augnabliki er tölvan drifin áfram af rafmagni frá henni. Áður gat ég ekki notað fartölvuna sem fartölvu vegna þess að rafhlaðan hélt ekki út nema í uþb. hálftíma. Ég ákvað sem sagt að endurnýja rafhlöðuna í tölvunni minni gömlu frekar en kaupa nýja fartölvu. Miðað við ástand efnahagsmála í heiminum hefði það verið ábyrgðarleysi af mér að festa kaup á Mac Book Air, draumatölvunni minni. Ég mun því láta Titanium PowerBook G4 frá 2002 duga enn um sinn.

Ég er ennþá í náttfötunum. Sit í sófanum. Kaffibolli er á sófabríkinni, sá þriðji í morgun. Í gær vorum við í mat hjá Svavari og Rúnu. Ég hef aldrei borðað eins mikið af humri á ævinni. Þvílík veisla! Á þeirra heimili gildir sá siður að fylla vínglösin alveg að brún (sem er glæsilega gyllt). Ég er ekki frá því að ég finni fyrir því í dag án þess að ég sé að varpa ábyrgðinni af ofneyslu áfengis á neinn annan en mig.

Er að horfa á Flaunt stöðina í sjónvarpinu. En það er sú sjónvarpsstöð sem birtir hvað mest af berum stúlkum án þess að teljast vera dónaleg. Danstónlistin kallar á færri föt og fegurra fólk. Er nema von að ég hafi gaman að henni? Mæli sérstaklega með Alex Gaudino en hann tengir saman knattspyrnu og fagrar stúlkur á listilegan hátt. Nú er hið frábæra tónlistarmyndband með Madonnu og Justin Timberlake í gangi (4 minutes). Ótrúlegt augnakonfekt og tækibrellur. Madonna er kameljón. Endurskapar sjálfa sig eftir þörfum. Hrúga af ósamanbrotnum þvotti er á einum eldhússtólnum, fallítt tímaritið  Bístró á sófaborðinu, gallabuxur og peysa af Ragnari Orra í sófanum. Barnaorgel sem ég keypti hjá Hjálpræðishernum liggur á gólfinu. Fullkomið!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: AK-72

"Um daginn spurði ég um Tippex í Pennanum og afgreiðslumaðurinn vissi ekki hvað það var! Æskan í dag! Hvar endar þetta eiginlega?"

Prófaðu að draga fram gamla, góða nafnskírteinið ef þú ert að borga með ávísun eða þarft að sýna skilríki, þá færðu skringileg viðbrögð:)

AK-72, 25.5.2008 kl. 12:30

2 Smámynd: Beturvitringur

Pælið bara í því, að það er hægt að vélrita í rafmagnsleysi. Hægt er að nota gömlu símana GSMS (gamall sími með snúru) í rafmagnsleysi. Það er hægt að finna upplýsingar um vini og kunningja ef maður á þær skrifaðar (ekki bara í tölvu"kontöktum") Fyrir utan það að áður fyrr MUNDI maður símanúmer. Þau voru í okkar minni (í hausnum) ekki í minni símanna) Minnið minna og minna.

Beturvitringur, 25.5.2008 kl. 14:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson

Fyrir mér er sannleikurinn mikilvægastur. Mörgum svíður undan sannleikanum. Það verður bara að hafa það. Sannleikurinn blívur.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 114003

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband