Færsluflokkur: Menning og listir
24.5.2008 | 20:09
Ritvélin mín
Fartölvan mín er komin til ára sinna, þó er hún mjög fín ritvél, því ég nota hana eiginlega ekki til neins annars en að vélrita, til dæmis texta eins og þennan. En ég á líka raunverulega ritvél, meira að segja tvær. Keypti þær í Góða hirðinum. Önnur er puttadrifin, hin rafmagns. Sú puttadrifna er meira til skrauts, en sú rafdrifna er mikill kostagripur. Suðið í henni er yndislegt þótt nokkur desíbil sé. Ritvélar eru að sumu leyti þróuð útgáfa af tölvu. Hver kannast ekki við að hafa átt í vandræðum með að prenta úr tölvunni? (Prentarinn finnst ekki osfrv.) Með ritvél er þessi vandi úr sögunni. Lyklaborðið er beintengt prentaranum. A verður A á pappírnum á sama augnabliki og þrýst er á það. Gallinn er sá að til dæmis B verður undir eins B á pappírnum þegar óvart er þrýst á það. Lausnin á því vandamáli er Tippex eða sérstakur leiðréttingaborði í ritvélinni. Ég spái því að í framtíðinni munu æ fleiri færa sig aftur yfir á ritvélina. Um daginn spurði ég um Tippex í Pennanum og afgreiðslumaðurinn vissi ekki hvað það var! Æskan í dag! Hvar endar þetta eiginlega?
Í gær fékk ég nýja rafhlöðu í fartölvuna mína. Á þessu augnabliki er tölvan drifin áfram af rafmagni frá henni. Áður gat ég ekki notað fartölvuna sem fartölvu vegna þess að rafhlaðan hélt ekki út nema í uþb. hálftíma. Ég ákvað sem sagt að endurnýja rafhlöðuna í tölvunni minni gömlu frekar en kaupa nýja fartölvu. Miðað við ástand efnahagsmála í heiminum hefði það verið ábyrgðarleysi af mér að festa kaup á Mac Book Air, draumatölvunni minni. Ég mun því láta Titanium PowerBook G4 frá 2002 duga enn um sinn.
Ég er ennþá í náttfötunum. Sit í sófanum. Kaffibolli er á sófabríkinni, sá þriðji í morgun. Í gær vorum við í mat hjá Svavari og Rúnu. Ég hef aldrei borðað eins mikið af humri á ævinni. Þvílík veisla! Á þeirra heimili gildir sá siður að fylla vínglösin alveg að brún (sem er glæsilega gyllt). Ég er ekki frá því að ég finni fyrir því í dag án þess að ég sé að varpa ábyrgðinni af ofneyslu áfengis á neinn annan en mig.
Er að horfa á Flaunt stöðina í sjónvarpinu. En það er sú sjónvarpsstöð sem birtir hvað mest af berum stúlkum án þess að teljast vera dónaleg. Danstónlistin kallar á færri föt og fegurra fólk. Er nema von að ég hafi gaman að henni? Mæli sérstaklega með Alex Gaudino en hann tengir saman knattspyrnu og fagrar stúlkur á listilegan hátt. Nú er hið frábæra tónlistarmyndband með Madonnu og Justin Timberlake í gangi (4 minutes). Ótrúlegt augnakonfekt og tækibrellur. Madonna er kameljón. Endurskapar sjálfa sig eftir þörfum. Hrúga af ósamanbrotnum þvotti er á einum eldhússtólnum, fallítt tímaritið Bístró á sófaborðinu, gallabuxur og peysa af Ragnari Orra í sófanum. Barnaorgel sem ég keypti hjá Hjálpræðishernum liggur á gólfinu. Fullkomið!
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.3.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 113945
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Ljóð
Ferðasaga
Einn dag fyrir átta árum
með eimskipi tók ég far.
Nú man ég því miður ekki
hver meining ferðalagsins var.
En einhverra orsaka vegna
að endingu landi var náð.
Og það var með ánægju þegið,
því þetta var skipsstjórans ráð.
Og svo hef ég verið hér síðan
og sofið og vakað og dreymt.
En eins og ég sagði áðan,
er erindið löngu gleymt.