Leita í fréttum mbl.is

Alice Sebold biður manninn sem nauðgaði henni ekki afsökunar

Alice Sebold er rithöfundur sem getið hefur sér gott orð fyrir bækurnar Lucky (1999) og Lovely Bones (2002). Sú fyrrnefnda er sjálfsævisaga sem fjallar um nauðgun sem hún varð fyrir þegar hún var 18 ára gömul 1981 og framgang réttvísinnar í kjölfarið. Lucky kom Alice á kortið sem rithöfundi. Maður að nafni Anthony Broadwater var dæmdur fyrir að hafa nauðgað henni og eyddi 16 árum í fangelsi og 23 árum þar á eftir á lista yfir kynferðisglæpamenn.

En nú hefur Anthony Broadwater verið hreinsaður af glæpnum. Hann var ekki sá sem nauðgaði Alice Sebold. Dómstóll í New York komst að þeirri niðurstöðu 22. nóvember sl. Ástæðan fyrir því að málið var tekið upp að nýju var sú að til stóð að framleiða kvikmynd byggða á Lucky. Einn af framleiðendum myndarinnar, Timothy Mucciante að nafni, tók eftir að það var misræmi milli kvikmyndahandritsins og bókarinnar. Timothy grunaði að maðkur væri í mysunni og réð sjálfstæðan rannsóknaraðila til að fara betur í saumana á sönnunargögnunum gegn Anthony. Grunur Timothy reyndist á rökum reistur. 

Viku og degi betur eftir að Anthony var sýknaður sendi Alice frá sér tilkynningu þar sem hún biður Anthony afsökunar. Hún hafði varið þessari rúmu viku í að klóra sér í höfðinu yfir þessari óvæntu vendingu í málinu. „Ég mun halda áfram að klóra mér í höfðinu yfir mínum þætti innan kerfis sem dæmdi saklausan mann í fangelsi.“

Hennar þáttur var sá að það var hún sjálf sem bar (ranglega, við vitum það nú) kennsl á meintan nauðgara sinn í réttarsalnum. „Fyrir mörgum árum,“ skrifaði Alice, „var ég 18 ára fórnarlamb nauðgunar sem lagði traust mitt á réttarkerfi Bandaríkjanna. Markmið mitt var að réttlætið næði fram að ganga – ekki óréttlætið. Fyrir fjörutíu árum bættist Anthony í hóp þeldökkra fórnarlamba meingallaðs réttarkerfis okkar. Ég mun ætíð vera sorgmædd yfir hvað hann þurfti að ganga í gegnum.“ 

Þessa „afsökunarbeiðni“ Alice verður að setja í gæsalappir vegna þess að hún biðst ekki afsökunar á sínum þætti heldur kennir réttarkerfinu um. Það var hún sem bar „kennsl“ á Anthony og fullyrti eiðsvarin fyrir rétti að hann væri nauðgarinn. „Meingallaða réttarkerfið“ gerði þau mistök að trúa henni sjálfri; lögreglan, saksóknarinn og kviðdómurinn. Sá sem ber mesta ábyrgð á þessu ömurlega óréttlæti sem Anthony var beittur er enginn annar en Alice Sebold.

 

Anthony Broadway var ekki heppinn þegar hann var dæmdur saklaus fyrir nauðgun

Mig grunar að Alice hafi alla tíð vitað innst inni að Anthony framdi ekki glæpinn. Það var henni einhvers konar friðþæging að einhver sæti inni fyrir glæpinn gegn henni þótt það væri ekki sá seki. Hún væri ekki á flótta undan ábyrgðinni ef hún hefði trúað í raun og veru að Anthony væri sekur.

Ólán Anthony var að hafa fyrir tilviljun mætt Alice á götu einhverjum mánuðum eftir að henni var nauðgað. Hún þóttist þekkja þar nauðgara sinn. Það gerði hún þrátt fyrir að skissa af nauðgaranum sem lögreglan setti saman eftir hennar lýsingu væri ekkert lík Anthony. Enn fremur bar hún ekki kennsl á Anthony við uppstillingu hjá lögreglu, heldur benti á annan mann (það var einmitt þetta atriði sem Timothy hnaut um í bókinni).

Halda má fram að saksóknarinn beri nokkra sök fyrir að hafa verið svona auðtrúa. Þó er ekki er hægt að horfa framhjá þeirri staðreynd að Alice sjálf ber mesta ábyrgð á hvernig fór. Réttarkerfið er vitaskuld ekki betra en aðilarnir sem í því eru, þar með taldir vitni, fórnarlömb, saksóknarar og verjendur. Fyrir þessi mistök Alice Sebold var líf Anthony Broadwaters lagt í rúst. Og til að kóróna óréttlætið græddist Alice mikið fé á sölu bókarinnar (yfir milljón eintaka seldist) sem núna er komið í ljós að var skrifuð á fölskum forsendum. Útgefandinn hefur hætt dreifingu bókarinnar. Hún fer ekki á markað á ný óbreytt.

Ég held að það blasi við af þessu máli að krafan um að öllum konum skuli trúað skilyrðislaust er í besta falli vafasöm.

Ég veit ekki hvernig framleiðslu kvikmyndarinnar líður. Ljóst er þó að ef kvikmyndin verður gerð mun hún ekki fylgja bókinni eftir í einu og öllu. 


Kryptonæt ranghugmyndanna 2

Eins og við var að búast er Vínbúðin á leiðinni út á Granda þar sem aðgengi er gott og næg bílastæði. Hún flytur úr miðbænum þar sem aðgengi er torveldað og bílastæðum fækkað. Þetta er raunveruleikinn sem gerir ranghugmyndum borgarstjórnar svo erfitt fyrir. Mesta furða er að þau skuli ekki átta sig á þessum bláköldu, ísköldu, staðreyndum um lífið á Íslandi. Eina leiðin til að koma þeim í skilning um á hve miklum villigötum þau eru er að kjósa EKKI neinn þeirra flokka sem halda Degi og klíku hans við völd í ráhúsinu.

Vínbúðin kveður miðborgina

Vitaskuld er skynsamlegasti leikurinn í stöðunni að gera sölu á áfengi frjálsa. Það myndi gera kaupmanninum á horninu auðveldara með að halda rekstrinum á floti. En eins og við er að búast dettur engum í ráðhúsinu í hug að það gæti mögulega verið lausn.


Kryptonæt ranghugmyndanna

Ranghugmyndir hljóma iðulega mjög vel, annars væru þær trúlega ekki ranghugmyndir.

Ósjaldan eru ranghugmyndir fögur framtíðarsýn. Í gamla daga snerist ein þeirra um sæluríki verkalýðsins. Ranghugmyndir samtímans eru af öðrum toga en samt af sama ættboga. Ranghugmyndir sannfæra kjósendur oft og tíðum um að kjósa þá sem hvað mest lifa sig inn í þær.

En eins og kryptonæt var veikleiki Súpermanns þá standast ranghugmyndir ekki kryptonætið sem raunveruleikinn er.

Ein ranghugmynd sem hefur verið vinsæl meðal stjórnmálamanna undanfarin ár er að affarasælast sé að fækka sem mest, jafnvel útrýma alveg, bílastæðum í miðborginni; gera vegfarendum á fólksbílum sem erfiðast að komast leiðar sinnar í og við miðborgina — allt vitaskuld með velferð akandi vegfararenda í huga.

Þeir sjá fyrir sér hamingjusama vegfarendur á tveimur jafnfljótum í göngugötum lausa við ónæðið sem mengandi og ómengandi fólksbílar valda. Þessi hugmynd hljómar einstaklega vel og lítur ekki síður vel út á teikningum og tölvugerðum góðviðrismyndum frá arkitektastofum.

En þá kemur bölvaður leiðinda raunveruleikinn og skemmir allt.

Fyrst flutti pósturinn burt eftir 100 ár og nú er ríkiseinokunarverslunin með áfengi á förum úr miðbænum. Ástæðan er sú sama í báðum tilvikum. Ekki næg bílastæði og erfið aðkoma.

Það skiptir máli hverjir stjórna. Ef þér er annt um miðbæinn, þá skaltu ekki kjósa flokkana sem nú stjórna borginni í næstu kosningum.

Vínbúðin á förum


London sokkin í sæ

Árið er 2008. London er sokkin í ökkladjúpan sæ vegna manngerðrar hlýnunar á jörðinni. Lögreglumaðurinn Harley Stone er á höttunum eftir dularfullum og allt umlykjandi fjöldamorðingja sem drap samstarfsfélaga hans fyrir nokkrum árum...

Þetta er hluti af söguþræði kvikmyndarinnar Augabragð (Split Second) frá 1992 með Rutger Hauer og Kim Cattrall í hlutverkum. 

Ég get ekki sagt að þetta sé góð mynd. Sagan er heldur þunn, næfurþunn og ratar í algjörar ógöngur í lokin. Ekki var nokkur leið að lifa sig inn í söguna, sama hvað ég reyndi. Þó verð ég að segja að það var gaman að sjá gamla goðið Rutger Hauer vaða um í leðurfrakka með stóra byssu. Kim Cattrall var heldur ekki að trufla neitt með nærveru sinni í hlutverki unnustu Harley Stone.

Augabragð fellur í flokk hrollvekjumynda. Hún átti alls ekki að vera grínmynd. Þó gat ég ekki annað en hlegið að framtíðarsýn handritshöfundarins um að heimurinn yrði sokkinn í sæ 2008. Ég neyðist til að setja þessa framtíðarsýn hans í skjalaskápinn í risastóru skemmunni sem hýsir feilspár í loftslagsmálum.

Rutger Hauer 1992

 


Flón til forystu

Ekki aðeins er stefna borgarstjórnar í húsnæðismálum glæpsamlega vitlaus fyrir borgina sjálfa heldur er hún stórhættuleg fyrir landið allt. Þessi flón eru að setja landið á hliðina í efnahagsmálum vegna andúðar á ... Jú, fólksbílum og úthverfum! Varla finnst betra dæmi um það hvaða flokka á EKKI kjósa til forystu. 

Hossir þú heimskum gikk...


Hvað gerðist í Wuhan?

Kínverski kommúnistaflokkurinn má eiga það að hann kann að drepa málum á dreif. Honum tókst fádæma vel að hylma yfir um uppruna kórónuveirunnar sem kennd er við hann langt fram eftir 2020 og jafnvel inn í nýárið. Þeir sem voguðu sér að varpa fram þeirri tilgátu að veiran hefði mögulega sloppið út af veirutilraunastöð í Wuhan voru kallaðir örgustu samsæriskenningasmiðir (það er mikið hnjóðsyrði nú um stundir). Í þessari skítaherferð naut einræðisklíkan dyggrar aðstoðar Alþjóða heilbrigðisstofnunarinnar og nokkurra vísindamanna sem höfðu ríkra hagsmuna að gæta (þeir höfðu tekið þátt í og veitt fjármagni til ýmissa rannsókna á kórónuveirum í tilraunastöðinni). En eins og Winston Churchill sagði svo eftirminnilega þá hefur sannleikurinn tilhneigingu til að koma í ljós þrátt fyrir afbökun, lygar og yfirhylmingu. Það er að gerast núna. Sannleikurinn er að koma í ljós. Þessi klukkustundarlanga heimildarmynd var gerð af áströlsku sjónvarpskonunni Sharri Markson á Sky-sjónvarpsstöðinni þar í landi. Sky-menn eiga heiður skilinn fyrir fréttaflutning sinn af veirumálum.  


Reynir á Stað er kominn í stjórnmálin

Snjáldra vegur að málfrelsi, hún vegur að skoðanafrelsi, hún hindrar opin og frjáls skoðanaskipti, hún vegur að sannleiksleitinni. Það sýnir þetta stutta myndband frá John Stossel. Það voru greinilega mistök hjá Snjáldru að ráða Reyni frá Stað til að skera úr um hvað er rétt og hvað er rangt, hvað er satt og hvað er logið. Um leið og hann var kominn með völd byrjaði hann að misnota þau í pólitískum tilgangi. Óhjákvæmilega vaknar sú spurning hvort það voru RAUNVERULEGA mistök hjá stjórnendum fyrirtækisins að ráða þessa utanaðkomandi aðila til að ritskoða efni á síðunni. Hugsanlega eru þeir í sömu ókræsilegu kjötsúpunni og flestir fjölmiðlar þar vestra. Stossel gerir rétt með því að leggja fram kæru. Ef ekki með góðu, þá með hörðu. Nú er að sjá hvort dómsvaldið hafi burði til að skikka þessa vandræðagemlinga til hlýðni.


Bessastaðir

Ekki missa af Bessastöðum, nýjum gamanþáttum um lífið og tilveruna á Álftanesi.

Í síðasta þætti káfaði brytinn á staðarhaldaranum að eiginkonu hans viðstaddri. Varð uppi fótur og fit. Forsetinn lagði til málamiðlun. Að hann skipti um sokka, færi úr þeim skræpóttu og í rauða og gula. Var fallist á það. Í tilefni af farsælum málalyktum var ákveðið sækja góðan árgang niður í vínkjallarann og skála. Þá kom í ljós að góði og dýri árgangurinn var horfinn! Nærstaddir gáfu hver öðrum flóttalegar augngotur. Ómögulegt var að vita hvað þær gáfu til kynna. Hver var sekur um þennan hryllilega glæp? Brytinn ákvað að byrja rannsóknina á því að káfa á öllum innréttingum í kjallaranum. Loks fann hann vísbendingu: Rassafar á rykfallinni koníakstunnu frá tíð Sveins Björnssonar! Var þetta vísbending sem gat komið upp um þjófinn? Það var bara eitt í stöðunni. Taka gipsmót af rassafarinu og bera við alla rassa embættisins! Verst var að ráðsmaðurinn, sem einn hafði aðgang að gipsbirgðunum, var í sumarfríi í Afganistan...

Hvað gerist í næsta þætti? Mun ráðsmaðurinn komast til botns í ráðgátunni? Fylgist með!

Bessastaðir


Allt að gerast í Reykjavík

Enginn vafi leikur á að stefna borgarstjórnar í húsnæðismálum er glæpsamlega vitlaus.

Vitlaus: Í hlægilegri andúð á bílum og úthverfum neitar borgarstjórn að skipuleggja einbýlishúsahverfi. Einbýli er eftirsóttasta búsetuformið hjá þeim sem greiða mest útsvar. Ef ekkert er framboðið í Reykjavík fara þeir einfaldlega annað.

Glæpsamleg: Borgin hefur ekki efni á að missa skatttekjur. Hún er nú þegar rekin með stórkostlegu tapi. Stjórnendur borgarinnar átta sig ekki á að þeir geta ekki komið í veg fyrir vilja markaðarins.

Með stefnu sinni um að byggja blokkir á hverjum einasta græna bletti í þéttbýlinu minna þeir á mann sem reynir að flytja sand í bastkörfu.

KjósendumFækkar


Reglan gildir fyrir þig - ekki mig

Ráðstefna um loftslagsmál er fyrirhuguð í nóvember í Skotlandi. Til að gera þúsundum fundarmanna lífið léttara og aðganginn greiðari er búið að veita þeim afslátt af pestarreglum. Afslátt sem stendur venjulegu fólki ekki til boða. En hvað um vísindin sem liggja víst að baki öllum þessum prófunum, sýnatökum, einangrunum og rakningum? Gæti einhver spurt. Já, það er góð spurning. Voru vísindi að baki eða etv. eitthvað allt annað?

Screen Shot 2021-09-05 at 14.10.53


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson

Fyrir mér er sannleikurinn mikilvægastur. Mörgum svíður undan sannleikanum. Það verður bara að hafa það. Sannleikurinn blívur.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 114037

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband