Leita í fréttum mbl.is

Útlitið afar dökkt í Bretlandi

Þrátt fyrir 50 milljarða punda meðgjöf og lækkun stýrivaxta heldur FTSE vísitalan áfram að lækka. Ætli þeir kasti öðrum 50 milljarða björgunarhring í sjóinn eða fari endanlega á hausinn?

Ég ráðlegg öllum breskum sparifjáreigendum að taka út sín pund og hlusta ekki á tal stjórnmálamanna. Aðgerðir þeirra eru ekki að skila neinum árangri enda gamlir kommúnistar sem hafa ekki hundsvit á fjármálum og geta einungis stjórnað í góðæri.

Ég hvet alla sem hafa jafn miklar áhyggjur og ég af Bretlandi að skrifa á enskar síður þau skilaboð að allir skuli taka sparifé sitt út áður en það verður of seint. Ég ætla ekki að bera ábyrgð á því að hafa ekki gert allt sem í mínu valdi stendur.


Líttu þér nær stjórnmálamaður

Það fer ekkert á milli mála að stjórnmálamenn á borð við Brown eiga stærsta sök á vandanum. Í misskilinni viðleitni við að bæta hag almennings stóðu þeir fyrir lágum stýrivöxtum ríkisseðlabankanna og lánuðu fólki með litlar og engar tekjur fyrir húsnæði í gegnum ríkisrekna íbúðalánasjóði. Það er fasteignaverðsprengjan í hnotskurn. En munu þeir sæta ábyrgð? Auðvitað ekki, þeir reyna að slá ryki í augu almennings með prettum. Okkar er að sjá til þess að þeir sæti líka ábyrgð.
mbl.is Brown: Refsingar fyrir óhóf og ábyrgðarleysi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bretar ábyrgjast féð eða hvað?

„Unlike Icesave, Kaupthing's UK accounts were already covered by Britain's banking guarantee.“ Segir í annarri frétt í Guardian, þó er sama blað með frétt um að Lundúnaborg tapi fé vegna gjaldþrotsins.
mbl.is Lundúnaborg tapar nær 9 milljörðum á þroti Kaupþings
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bretland og Rússland

Eins og flestir vita andar köldu milli Bretlands og Rússlands. Litvinenko málið er þar ofarlega á blaði, en talið er að Rússar beri ábyrgð á morðinu sem framið var í London með geislavirku efni sem rekja má til Rússlands. Rússar neita allri samvinnu og hafa gert þann mann sem talið er að hafi framið ódæðið að þingmanni og þingmenn njóta friðhelgi.

Mín kenning er sú að Íslensk stjórnvöld hafi snúið sér til Rússa þegar sýnt var að Bretar vildu ekki styðja við bakið á þeim. Það hefur að öllum líkindum valdið mikilli reiði í Bretlandi sem birtist í öfgafullum aðgerðum gegn Kaupþingi sem þó var ekki á ábyrgð íslenska ríkisins og stóð vel miðað við aðrar stofnanir í moldviðrinu sem nú geisar.

Það að Íslendingar skuli hafa snúið sér til Rússa er ekki ákvörðun sem tekin var með léttúð. Það er mikil reiði á bak við þá ákvörðun, ekki nokkur vafi.

Það að vilja ganga með hraði í Evrópusambandið eftir þessar aðgerðir Bretanna er algerlega fráleit hugdetta. Eðlilegra væri að slíta stjórnmálasambandi við þá.


Evrópusambandsaðild aldrei eins fjarri og nú

Hví skyldu Íslendingar vilja ganga í samband ríkja sem hafa „sýnt okkur fingurinn“ undanfarna daga? Bretar eru í þessu auma miðstýrða tollabandalagi, Íslendingar skulu aldrei, aldrei gefa eftir fullveldi sitt til þessarra heiðursmanna.

Vilji Íslendingar binda trúss sitt við önnur ríki á það að vera á jafningjagrundvelli, ekki með valdaafsali.


Gangi ykkur vel

Nú þegar Bretarnir hafa knésett Kaupþing með afar undarlegum aðgerðum, óska ég þeim alls hins besta í þeirra eigin vandræðum. Ánægjulegt er til þess að vita að blaðamennirnir þeirra geta nú farið að einbeita sér að vandanum heima fyrir.

Húsnæðislán ríkisins er meinið

Ekki fer á milli mála að stjórnmálamenn, vestan hafs og austan, sem beittu fyrir sig íbúðalánasjóðum í misskilinni viðleitni til að bæta hag almennings eru aðalsökudólgurinn í kreppunni. Sjá verður til þess að enginn geti horft framhjá þeirri staðreynd að moldviðrinu loknu.

Hvernig má tryggja það?

Með því að fara í mótælagöngur, hlekkja sig við íbúðalánasjóð, standa fyrir landssöfnun til að kosta auglýsingar í fjölmiðlum og hvað meira? Benda á fjölmiðla sem þó fjalla um málið.

Hér er umfjöllun NPR í Bandaríkjunum um kappræður forsetaframbjóðendanna. Íbúðalánasjóðir ríkisins ber á góma. Obama er sá demókrati sem fengið hefur næst mest framlög frá þessum sjóðum.


Veislunni lokið í Bretlandi

Ætli bresku blaðamennirnir sem mæna á Ísland viti af þessu? Þeir eru svo uppteknir við að fylgjast með löskuðu skipi íslenska hagkerfisins að þeir taka ekki eftir að breska skipið er að sökkva undan þeim. 50 milljarða punda björgunarhringur er sem einn björgunarhringur í hafið þar sem stórt, yfirfullt skemmtiferðaskip er að sökkva.
mbl.is Bankar þjóðnýttir að hluta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Getur það verið?

Getur verið að viðskiptavinir Glitnis hafi fjárfest í sjóðum, Peningamarkaðssjóði 9 til dæmis, sem voru notaðir til kaupa á hlutabréfum í fyrirtækjum eigenda bankans þvert á yfirlýsta stefnu um örugga ávöxtun? Ef svo er, er glæpsamlegt athæfi á ferðinni?


Skilaboð til breskra fjölmiðla

Hér er yfirlýsing frá Sigurgeiri Orra Sigurgeirssyni til breskra fjölmiðla: „Lítið ykkur nær þegar þið hafið uppi stóryrði um Ísland. Ég veit að ykkur líður betur rétt á meðan, en gleymið ekki að fylgjast með eigin bönkum. Hlutabréf þeirra falla hraðar en pundið um þessar mundir.“ 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson

Fyrir mér er sannleikurinn mikilvægastur. Mörgum svíður undan sannleikanum. Það verður bara að hafa það. Sannleikurinn blívur.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (12.9.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband