9.10.2008 | 09:30
Evrópusambandsaðild aldrei eins fjarri og nú
Hví skyldu Íslendingar vilja ganga í samband ríkja sem hafa sýnt okkur fingurinn undanfarna daga? Bretar eru í þessu auma miðstýrða tollabandalagi, Íslendingar skulu aldrei, aldrei gefa eftir fullveldi sitt til þessarra heiðursmanna.
Vilji Íslendingar binda trúss sitt við önnur ríki á það að vera á jafningjagrundvelli, ekki með valdaafsali.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.4.): 7
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 31
- Frá upphafi: 114038
Annað
- Innlit í dag: 7
- Innlit sl. viku: 31
- Gestir í dag: 7
- IP-tölur í dag: 7
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Ljóð
Ferðasaga
Einn dag fyrir átta árum
með eimskipi tók ég far.
Nú man ég því miður ekki
hver meining ferðalagsins var.
En einhverra orsaka vegna
að endingu landi var náð.
Og það var með ánægju þegið,
því þetta var skipsstjórans ráð.
Og svo hef ég verið hér síðan
og sofið og vakað og dreymt.
En eins og ég sagði áðan,
er erindið löngu gleymt.
Athugasemdir
1. Eru Bretar sem sagt ekki sjálfstæð þjóð?
2. Lastu ekki fréttablaðið í morgun? Þar sem meldingar koma frá ESB um að það ætti ekki að taka nema nokkra mánuði fyrir Ísland að ná samningum um aðild, ef byrjað væri á að ná viðunandi ákvæði um yfirráð yfir fiskimiðunum.
ESB snýst frekar um lýðréttindi heldur en afsal á fullveldi. Nú er hinsvegar nauðsynlegt að Davíð Oddsson víki úr Seðlabankanum og okkar bestu hagfræðingar fái að stýra stefnunni um hvað ´tryggi besta hagsæld í landinu. Mbk, G
Gunnlaugur B Ólafsson, 9.10.2008 kl. 09:45
Nei, þeir eru það því miður ekki. Þeir hafa afsalað sér völdum til sambandsins sem þeir tilheyra. Enda sérðu hvernig er komið fyrir sjávarútvegi þeirra.
Þær eru mikilvægari meldingarnar, eða réttara sagt gjörðirnar, sem koma frá sambandinu núna og þær eru skýrar: Við stöndum ekki við bakið á Íslendingum. Heldurðu virkilega að við fáum betra viðmót sem meðlimir? Spurðu Finna og Íra. Það er hver höndin upp á móti annarri. Það kæmi mér ekki á óvart að það kvarnaðist úr sambandinu þegar það rennur upp fyrir mönnum að það snýst eingöngu um að vernda hagsmuni Þýskalands og Frakklands.
Varðandi Davíð Oddsson þá er hann einn af fáum mönnum sem varaði við þeirri hættu sem stafaði af gjörðum frjálsra og sjálfstæðra kaupsýslumanna. Það var hann sem fór í bankann og tók úr inneign sína til að mótmæla ofurlaunum. Ofurlaun sem nú eru tákgervingur fyrir óráðsíuna sem lágir vextir og opinberir húsnæðissjóðir ollu. Etv. er rétt að hengja bakarann fyrir sök smiðsins ef það má verða til þess að þér líði betur.
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, 9.10.2008 kl. 10:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.