19.11.2008 | 12:02
Skilaðu ársreikningnum!
Ársreikningar eru sendir til Ríkisskattstjóra í tölvutækuformi á rsk.is eins og lög og skilafrestir gera ráð fyrir.
Svo gerist það skömmu síðar að Ársreikningaskrá sendir bréf og fer fram á að fá ársreikninginn sendan í tölvutæku formi á rsk.is og ef það er ekki gert innan ákveðins skilafrests færðu 250 þúsund króna sekt. Drullusokkurinn þinn.
Spurningin sem þá óhjákvæmilega vaknar er þessi: Getur Ársreikningaskrá ekki bara sótt ársreikninginn sjálf inn á rsk.is? Þetta er sama svæðið, sami aðilinn, bara annað stofnananafn.
Því minna umfang ríkisins, því minni hætta á að svona glórulaus skriffinska vaði uppi.
Svei.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.4.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 114576
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Ljóð
Ferðasaga
Einn dag fyrir átta árum
með eimskipi tók ég far.
Nú man ég því miður ekki
hver meining ferðalagsins var.
En einhverra orsaka vegna
að endingu landi var náð.
Og það var með ánægju þegið,
því þetta var skipsstjórans ráð.
Og svo hef ég verið hér síðan
og sofið og vakað og dreymt.
En eins og ég sagði áðan,
er erindið löngu gleymt.
Athugasemdir
Já það hefur nefnilega sannað sig upp á síðkastið að einkaaðilarnir séu svo rosalega pottþéttir í öllu sem þeir gera.
Guðmundur Bergkvist, 19.11.2008 kl. 12:29
Ekki gleyma að regluverkið var ríkisins og eftirlitið líka.
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, 19.11.2008 kl. 12:56
Þakkaðu fyrir að búa ekki í Bretlandi. Þar heldur ríkið skrár yfir allar athafnir þegnanna; allt frá bóklestri foreldra fyrir börnin sín að lykilorðum að bankareikningum. Og svo skilja þeir þessar upplýsingar eftir á lestarstöðvum, leigubílum og á lystigarðabekkjum. Upplýsingar um hernaðarleyndarmálin eru svo sérstakur kapituli fyrir sig.
Hér týnast gögnin þó bara milli hæða. Vonandi.
Ragnhildur Kolka, 19.11.2008 kl. 13:33
Bretarnir eru algerir sauðir, og kerfið, hefur maður heyrt frá fólki sem bjó þar, er gersamlega vanað, ekki ósvipað þeim sem nú halda um stjórnartaumana.
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, 20.11.2008 kl. 09:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.