Leita í fréttum mbl.is

Voru neyðarlögin mistök?

Var nauðsynlegt að reka fingurinn framan í alþjóðasamfélagið með neyðarlögunum? Var nauðsynlegt að mismuna innistæðueigendum eftir þjóðerni? Hefði ekki mátt varpa fram efasemdum um ábyrgð ríkisins og leggja dómstólaleiðina til án þessa æsings?

Mætur maður (Tóti) lýsti lagasetningunni svona: Fyrst nauðga ég mömmu þinni og svo bið ég þig um lán.

Alþjóðasamfélagið í heild sinni er á þeirri skoðun að íslensk stjórnvöld hafi haft rangt við og þess vegna lagst gegn því að Imf lán fengist afgreitt nema dregin væri til baka þessi mismunun á innistæðueigendum eftir þjóðerni.

Hversu mikið tjón hefur þetta valdið okkur? Ómældu. Hver ber ábyrgðina? Stjórnvöld.

Afnám réttarríkisins (þar sem allir eru jafnir fyrir lögum óháð þjóðerni) er trúlega einhver mesta skissa sem gerð hefur verið í sögu landsins. Orðstír okkar hefur beðið hnekki. Með þessari heimóttarlegu gjörð skipuðum við okkur á bekk með mestu ídíótalöndum heims.

Eða hvað, ég veit það ekki. Var þetta etv. rétt og nauðsynlegt?

Útúrdúr 1:

Gunnar Smári Egilsson „blaðamaður“ er trúlega vitrasti maður (eftirá) sem Ísland hefur alið. Hann hlýtur að vera moldríkur fyrst hann sá þetta allt svona kristaltært fyrir. Gjaldeyrissjóður hans er ábyggilega digrari en Egill Helgason getur nokkru sinni látið sig dreyma um. 

Útúrdúr 2:

Færði rúmið um helgina, nú snýr gaflinn í suður en sneri í norður áður. Á eftir að mála herbergið. Það verður blátt. (Þegar ég les þetta eftir 100 ár, þá mun þessi málsgrein færa mig á stað og stund.)

Útúrdúr 3:

Myndi þetta ekki kallast póstmódernísk greinaskrif?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Var rétt að fara inn í Glitni?

Það panikkeruðu allirog mörg mistök voru gerð sem eru okkur allt of dýr

Hólmdís Hjartardóttir, 17.11.2008 kl. 20:55

2 identicon

Burstaði í mér tennurnar í morgunn með nýja tannburstanum, fór í öfuga skyrtuna, drakk hálfa Rommflösku áður en ég fór til vinnu til að auðvelda mér að komast í gegnum daginn.

Svavar Guðmundsson (IP-tala skráð) 18.11.2008 kl. 09:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson

Fyrir mér er sannleikurinn mikilvægastur. Mörgum svíður undan sannleikanum. Það verður bara að hafa það. Sannleikurinn blívur.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 114018

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband