18.10.2008 | 13:47
Pottþétt kreppa
Gjafmildi Glitnis eru engin takmörk sett, enda er þín velferð þeirra verkefni, sem hefur jú komið á daginn. Nú hefur Glitnir gefið út í samvinnu við Skeinu nýjasta Pottþétt diskinn, Pottþétt kreppa. Verður honum dreift ókeypis inn á hvert heimili í landinu og afgangseintökin gefin til viðskiptavina íslensku bankanna í Bretlandi og Hollandi.
Lögin á diskinum eru ekki af verri endanum og öll hugsuð til að létta fólki lundina í kreppunni sem nú gengur yfir:
1. Hjálpaðu mér upp, Nýdönsk. 2. It's a hard life, Queen. 3. Can't walk away, Herbert Guðmundsson. 4. The winner takes it all, Abba. 5. Er nauðsynlegt að skjóta þá? Bubbi Morthens. 6. I need a miracle, Fragma. 7. Á tjá og tundri, Sálin hans Jóns míns. 8. Run to the hills, Iron Maiden. 9. Hamingjan er krítarkort, GCD. 10. I'm going down, Bruce Springsteen. 11. Þau falla enn, Sálin hans Jóns míns. 12. Ég vil fá að lifa lengur, Todmobile. 13. All by myself, Eric Carmen. 14. Sirkus Geira smart, Spilverk þjófanna. 15. Highway to hell, AC DC. 16. Til hamingju Ísland, Silvía Nótt. 17. Exodus, Bob Marley.
Myndböndin við þessi lög eru að finna á síðunni hans Begga en við félagarnir hjá Skeinu aðstoðuðum Glitni við val á lögum. Góða skemmtun!
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Ljóð
Ferðasaga
Einn dag fyrir átta árum
með eimskipi tók ég far.
Nú man ég því miður ekki
hver meining ferðalagsins var.
En einhverra orsaka vegna
að endingu landi var náð.
Og það var með ánægju þegið,
því þetta var skipsstjórans ráð.
Og svo hef ég verið hér síðan
og sofið og vakað og dreymt.
En eins og ég sagði áðan,
er erindið löngu gleymt.
Athugasemdir
Snilld!
Sindri Guðjónsson, 18.10.2008 kl. 15:23
Hún Una gaf okkur hugmyndina að Abbalaginu, svo datt mér annað lag í hug þegar ég fór í ríkið áðan: Flaskan mín fríð, fyrir þá sem, eins og ég, hafa kosið að halla sér að flöskunni.
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, 18.10.2008 kl. 17:37
Múhahaha!
Ársæll Níelsson, 18.10.2008 kl. 20:03
Þessi samsetning verður varla toppuð. Þó hefði mátt hafa Help the poor með Clapton og BB King þarna aftarlega í röðinni. Ekki veitir víst af.
Verst að við erum öll svo blönk að þetta fyrsta merki um að markaðurinn sé að vakna til lífs mun að öllum líkindum bara lenda á haugum sögunnar.
Ragnhildur Kolka, 19.10.2008 kl. 13:43
Um daginn var svo verið að spila "Æ það reddast" með Ríó Tríó á Rás 2. Sjálfsagt í veikri von útvarpsmannsins um að þetta myndi allt saman "reddast sjálfsagt eina ferð á ný". En það er nú fátt sem bendir til þess að svo verði.
Una Sighvatsdóttir (IP-tala skráð) 19.10.2008 kl. 16:00
Schnilld
AK-72, 19.10.2008 kl. 16:22
Snilld.
Mér datt eitt lag í hug, sem hægt væri að setja á næsta disk ekki samt "Jóladiskinn" í ár. "Eniga meninga allir tala um peninga" með þrjú á palli, nú þegar búið er að velta þremur bönkum af stalli.
Kv.
Svavar
Svavar Guðmundsson (IP-tala skráð) 19.10.2008 kl. 17:55
Svavar - Eniga Meniga er með Olgu Guðrúnu.
Annars er þetta obboslega fyndið, sko.
Ingvar Valgeirsson, 19.10.2008 kl. 22:36
Hólmdís Hjartardóttir, 19.10.2008 kl. 22:43
Frábært. Skemmtilegasta kreppuhugmyndin til þessa. Svo bæta menn við nýjum hugmyndum og það verður fljótlega komið efni í Pottþétt kreppa 2. Og 3. Og 4.
Það má bæta á listann Take the money and run (Steve Miller Band), Money (Pink Floyd), Money's too tight to mention (Simply Red) og fleiri góðum peningalögum að ógleymdum tveimur ómissandi frá Bítlalunum; Help! og Oh, Darling.
Spurning um að taka Fiðlarann á þakinu líka með, If I were a rich man er til bæði á ensku og íslensku ... dæ rí tiririrí tiririrí riririrí ramm
Gestur (IP-tala skráð) 20.10.2008 kl. 02:08
:)
Kjartan Pétur Sigurðsson, 20.10.2008 kl. 05:33
Tu ert frabær ad vanda. Lagid sem mer dettur i hug, tegar allt er a hausnum, og er eitt af minum uppahalds. -I nott- med Fræbbblunum.
Vilberg Olafsson (IP-tala skráð) 20.10.2008 kl. 07:41
It's the end of the world as we know it, er það ekki fínt á Pottþétt hrun?
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, 20.10.2008 kl. 18:02
En bara "Yfir kaldan eyðisand" ?
Hólmdís Hjartardóttir, 20.10.2008 kl. 23:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.