Leita í fréttum mbl.is

Skemmtilegir hlutir

Stundum þarf maður að breyta um gír, gera eitthvað annað til að losa sig úr hringiðu þess sem unnið er að. Um daginn var ég í þannig skapi og fór á Break.com þar sem eru ýmis myndbönd til sýnis. Ég veit ekki hvað ég horfði á mörg, en þau voru nokkuð mörg. Það var greinilega kominn tími á að taka einn hring á svona síðu því það var svo margt þarna sem ég hafði ekki séð áður.

Sum myndbrotanna voru stórkostleg og þau eru ástæðan fyrir þessari færslu. Mig langar að deila þeim með ykkur kæru lesendur. Eitt eftirminnilegasta myndskeiðið voru tveir strákar að leika þá sem skrifa athugasemdir við fyndin myndbönd eins og sum þeirra sem eru á Break.com. Komið í hring finnst þér? Ég verð að taka fram að ég skrifa aldrei athugasemdir við myndböndin á Break.com. Nota heldur Moggabloggið til þess. Ég ætla ekki að „embedda“ myndinni heldur hlekkja á hana (hún er í dónalegi kantinum fyrir þá sem skilja enska tungu).

Símahrekkir hafa lengi verið mitt eftirlæti og ég verð nú að segja það að ég sakna Tveggja með öllu, Þeirra Jóns Ólafssonar og Gulla Helga (þeir voru uppi á síðustu öld). Sumir símahrekkirnir þeirra voru mjög fyndnir, ég man enn eftir þegar hringt var í konu og henni sagt að það væri hætta á að það yxu greinar úr nýju eldhúsinnréttingunni hennar.

Ég færðist skrefi nær „six packnum“ þegar ég hlustaði á tvo stráka gera at í áhugamanni um Nascar- kappaksturinn. A.m.k. var ég harðsperrur í vömbinni eftir að hafa hlustað á þá. Samtalið er líka nokkuð upplýsandi um undirliggjandi strauma í Bandarískri þjóðarsál.

Svo var annað at sem er líka óborganlegt. Sex ára gamalt barn hringir í niðurrifsfyrirtæki og biður það um að rífa skólann sinn. Becky heitir hún. Hér er það:


Little Becky Prank Call - Watch more free videos

Annað at sem mér þótti líka ákaflega fyndið gekk út á að útvarpsmenn hringdu í tvær símaklámkonur og létu líta svo út sem þær væru að hringja í hvor aðra. Það tók dágóða stund fyrir þær að gera sér grein fyrir að verið var að narra þær. 


Phone Sex Operator Prank Call - Watch more free videos

Hér er ein mynd sem er vonandi ekki dæmigerð fyrir konur sem taka bensín.


Dumb Woman At Gas Station - Watch more free videos

Á meðan ég hef útbúið þessa færslu er ég búinn að drekka einn bjór, svæfa Ragnar Orra, setja ryksugupoka í ryksuguna fyrir Heiðrúnu og skanna nokkrar slides-myndir frá um 1970 af fjölskyldunni. Og horfa á eitt fyndið myndbrot með Jay Leno. Næsta mál á dagskránni er að fara að sofa, enda þreyttur eftir fótboltaleik kvöldsins. Góðar stundir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson

Fyrir mér er sannleikurinn mikilvægastur. Mörgum svíður undan sannleikanum. Það verður bara að hafa það. Sannleikurinn blívur.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 114030

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband