9.4.2007 | 11:34
Kjaftæðið á meðal vor
Þjóðfélag okkar er barmafullt af hindurvitnum og þvælu sem óhætt er að kalla því viðeigandi orði kjaftæði. Penn og Teller hafa verið óþreytandi að benda okkur á það.
Átappað vatn, mörgum að óvörum, fellur í þann flokk. Almennt er talið að vatn á flöskum sé hreinna og bragðbetra en venjulegt kranavatn. Það er kjaftæði. Þriðjungur alls vatns sem selt er í flöskuvís í búðum Bandaríkjanna stóðst ekki lágmarkskröfur um hreinlæti. Í smökkunarkönnun sem gerð var í New York kom í ljós að þrír af hverjum fjórum vegfarendum þótti kranavatn úr þeirri Gómorru bragðbetra en rándýra flöskuvatnið.
Til að mæla hversu svæsið bullið í kringum blávatnið er földu Penn og Teller myndavélar á veitingastað og bjuggu til nýja tegund af þjóni: Vatnsþjón (sbr. vínþjón). Niðurstaða var mjög athyglisverð, eins og meðfylgjandi myndbútur ber með sér.
Via: VideoSift
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Ljóð
Ferðasaga
Einn dag fyrir átta árum
með eimskipi tók ég far.
Nú man ég því miður ekki
hver meining ferðalagsins var.
En einhverra orsaka vegna
að endingu landi var náð.
Og það var með ánægju þegið,
því þetta var skipsstjórans ráð.
Og svo hef ég verið hér síðan
og sofið og vakað og dreymt.
En eins og ég sagði áðan,
er erindið löngu gleymt.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.