Færsluflokkur: Dægurmál
10.4.2009 | 22:58
Afglapinn
Ég er búinn að átta mig á því að Geir Haarde er afglapi sem gerði Sjálfstæðisflokknum meira ógagn en gagn. Ég vissi svo sem fyrir að hann væri einungis fær um að vera leiðtogi í góðu árferði. Davíð Oddsson hins vegar var frábær leiðtogi í vondu árferði en síður góður í góðu árferði. Þá skorti hann verðuga viðspyrnu. Vefþjóðviljinn fer fyrir afar góðu uppgjöri og umfjöllun um Sjálfstæðisflokkinn nú um stundir sem ég hvet alla til að lesa.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
10.4.2009 | 18:49
Aðgerðir ríkisins
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 22:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
9.4.2009 | 17:26
Too big to fail
Hver kannast ekki við fyrirtækin sem eru of stór til að fara á höfuðið? Hver kannast ekki við einstaklinga sem eru of litlir til að skipta máli? En ekki lengur. Egozentric®© París, London, Róm, Mílanó hefur sett á markaði í samvinnu við góðan viðskiptavin bol sem gerir öllum kleift að vera too big to fail eins og sagt er í útlöndum núna. AIG bónusatryggingarisinn með stjórnmálamennina vini sína, er slíkur risi. Hvers vegna ekki þú? Sýndu heiminum að þú ert svo stór að þú getur hreinlega ekki farið á höfuðið.
Too big to fail. Litur svartur, stærð 1-100. Sýndu þessum óréttláta heimi að þú ert líka of stór til að fara á höfuðið. Verð aðeins 50 dalir. 0.1% af sendingarkostnaði rennur óskipt í bjargráðasjóð AIG.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 17:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.3.2009 | 07:37
Alfreð Elíasson og Loftleiðir
Hér er sýnishorn úr heimildarmynd minni um Alfreð Elíasson og Loftleiðir sem sýnd verður í Sambíóunum í maí.
Dægurmál | Breytt 29.3.2009 kl. 04:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
25.3.2009 | 17:38
Hafið þið virkilega ekkert betra að gera?
Stríðið gegn kannabisframleiðendum er fullkomin sóun á tíma og fé. Æpandi misræmi er í hvaða fíkniefni eru lögleg og hver ekki (góð og vond). Hver er þess umkominn að ákveða fyrir mig hvort ég reyki gras eða drekki vodka? Bann við kannabis er lítilsvirðing á frelsi mínu. Ég er fyllilega dómbær um það hvort og hvaða fíkniefni ég ákveð að láta ofan í mig.
Stríðið er sóun á tíma og fé vegna þess að það er dæmt til að tapast. Það var umfjöllun um stríðið gegn kannabis í Kaliforníu í sjónvarpinu um daginn. Farið í flugferð með þyrluflugmanni sem hefur það að atvinnu að koma auga á staði þar sem kannabis er ræktað (en það vex allstaðar utandyra í sunny California). Hann sagði að fyrir nokkrum árum hafi hann þurft að fljúga í hálftíma áður en hann fann akur. En nú þurfi hann bara að fljúga í fimm mínútur. Hann lýsti þeirri skoðun sinni að hann teldi þetta stríð tapað. Milljarðakostnaður til einskis í ríki sem er gjaldþrota.
Í stað þess að lögleiða kannabis og skattleggja og hafa af því tekjur, velur ríkið (stjórnmálamenn), að halda vitleysunni áfram. Afleiðingar stríðsins eru skelfilegar. Sundraðar fjölskyldur, yfirfull fangelsi (með tilheyrandi kostnaði), rán og aðrir glæpir og það sem etv. verst er: Sumir upplifa sig sem glæpamenn vegna þessara heimskulegu laga; eru með vonda sjálfsmynd og eiga sér erfitt uppdráttar. Enginn sem fær sér bjór fær á samviskuna: Ég er glæpamaður! Hann bara drekkur sinn bjór og slappar af, alveg eins og það ætti að vera með gras. Þeir sem vilja eiga að geta reykt það í friði og spekt án glæpastimpils frá yfirvöldum. Það er nú kapítuli út af fyrir sig munurinn á þeim sem drekka og þeim sem reykja gras: Drukknir menn eru ósjaldan ofbeldishneigðir, skakkir menn eru rólegir og friðsamir. Væri það ekki skárri kostur af tveimur vondum?
Lögregluyfirvöld ættu heldur að rannsaka t.d. þátt stjórnmálamanna í bankahruninu, en að eltast við þá sem skapa verðmæti innanlands með ræktun á kannabis. Meðan grasið vex á Íslandi, þarf ekki að greiða fyrir það með dýrmætum gjaldeyri. Þetta stríð er tap tap tap.
Hvenær munu stjórnmálamenn horfast í augu við staðreyndirnar og hætta að láta ímyndun um fyrirmyndarsamfélag villa sér sýn? Átta sig á að boð og bönn í þessu efni er engin lausn? Átta sig á að hver og einn hefur rétt, og líka skyldu, til að bera ábyrgð á sjálfum sér?
Hald lagt á 650 kannabisplöntur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt 27.3.2009 kl. 05:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (65)
23.3.2009 | 19:56
Upplýstur
Hver kannast ekki við að hafa verið haldið úti í kuldanum og ekki verið upplýstur um eitt eða neitt? En ekki lengur. Nú er komin á markað nýr bolur frá Egozentric®© París, London, Róm, New York, sem minnir alla á að þótt þeir séu ekki hafðir með í ráðum, eru þeir aðeins kettlingar í samanburði við suma. Sumir sem eiga að heita æðstu ráðamenn þjóðarinnar í málefnum viðskipta voru algerlega úti að aka þegar viðskiptalífið var annars vegar. Og þegar það kom í ljós, sögðu þeir af sér? Nei, ekki fyrr en það átti að rjúfa stjórnarsamstarf og það hentaði vel í stjórnmálaspilinu. Ef þér líður stundum eins og ákvarðanir séu teknar án þín og þú sem hélst að þú værir ómissandi, hættu að hafa áhyggjur. Kauptu bol og minntu heiminn á að þú munt aldrei komast með tærnar þar sem sumir hafa hælana. Og það sem meira er: Þeir komast upp með það! Ef það er ekki hægt að græða á þessu, skal hundurinn Björgvin heita.
Upplýstur. Litur bleikur með svörtum ermum og grænum kraga. Stærð 1-100. Vertu ekki grænn á bak við eyrun, vertu upplýstur og í rétta liðinu. Segðu ekki af þér fyrr en það hentar og láttu eins og ekkert sé. Vatn til sjávar farið er, en ég er ennþá hér. Kjósið mig og ég mun spila í rétta liðinu og vera með á nótunum. Ekki halda að upplýsingaskortur minn sé til marks um vinnubrögð flokksins. Nei, þar er talað og talað og talað, enda umræðustjórnmál efst á dagskránni. Hlutir ræddir og allir upplýstir. Verð aðeins 50 dalir. 0.1% af sendingarkostnaði rennur óskipt til lestrarkennara Björgvins G. Sigurðssonar.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 20:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.3.2009 | 19:22
Blómavasinn minn
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
13.3.2009 | 23:53
Hefðbundið lýðræði
Hver kannast ekki við að hafa tekið þátt í hefðbundnu og frekar hallærislegu prófkjöri? En ekki lengur. Nú er búið að finna upp nýja og mjög lýðræðislega leið til að velja á lista. Til að fagna hinni nýju aðferð sem annars vegar kallast Samfylkingarlýðræði (þar sem alvitrir foringjar raða sjálfum sér efst og leyfa ræflunum að berjast um neðri sætin) og hins vegar Vinstri grænt lýðræði (þar sem kynferði er sett í öndvegi án tillits til hæfileika eða vinsælda) hefur Egozentric ®© París, Mílanó, Las Vegas, New York, hannað bol sem sýnir fram á svart á hvítu hversu óspennandi og óheillandi hefðbundið prófkjör er. Eini kosturinn við hefðbundna prófkjörið er sá að þar er ekki gerður neinn greinarmunur á hvað er í klofi frambjóðendanna svo lengi sem einhvers staðar í grenndinni sé rass. Sagt er að sami rassinn sé undir þessu liði hvort sem er og því skipti kynið engu máli. Egozentric®© vill ekki taka undir það en telur að öllum sjónarmiðum eigi að gera jafn hátt undir höfði, sérstaklega ef á þeim er hægt að græða.
Hefðbundið prófkjör. Stærð 1-100. Litur svartur. Láta í körfu. Sýndu að þú getur greint kjarnann frá hisminu, skóginn frá trjánum og aðalatriðin frá aukaatriðunum. Gakktu um í bol til staðfestingar um það. Láttu ekki gargið glepja þér sýn. Verð aðeins 50 dalir. Eignastu alla prófkjörsseríuna (3 boli) fyrir aðeins 400 dali. Áritaða fyrir 700 dali.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
11.3.2009 | 16:20
Vinstri grænt lýðræði
Hver kannast ekki við misbrest þegar kemur að því að velja rétta fólkið til starfa? En ekki lengur. Nú er komin skotheld aðferð við að velja á lista þar sem kynið er sett í öndvegi og aukaatriðin, eins og til dæmis hæfileikar, eru látin lönd og leið. Egozentric®© er stolt af því að kynna bestu aðferð í heimi við að mismuna engum á grundvelli þess hvað er í klofi hans. Að vísu eru gerðar undantekningar á þessari reglu, en það er allt í nafni lýðræðisins. Ef til dæmis röng píka lendir í röngum stað færist hún á sinn rétta stað og verður þannig rétt samkvæmt lýðræðislegu vali forystunnar.
Vinstri grænt lýðræði. Stærð 1-100 litur rauður. Nú er í tísku að vera sósíalisti eftir að ríkisstyrkta- og ríkisábyrga nýfrjálshyggjan leið undir lok. Taktu þátt í nýju bólunni, vertu sósíalisti, kommúnisti eða jafnvel bara galinn. Skiptir ekki máli, aðalatriðið er að vera pólitískur. Verð aðeins 50 dalir.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
10.3.2009 | 05:31
Samfylkingarlýðræðið
Hver kannast ekki við það að hafa kosið í prófkjöri og ekki fengið vilja sínum fullkomlega framgengt? En ekki lengur. Nú þarf enginn að kjósa í prófkjöri í fullkominni óvissu um niðurstöðuna á toppnum. Egozentric®© kynnir nýja tegund lýðræðis á bol: SAMFYLKINGARLÝÐRÆÐI. Samfylkingarlýðræði er þeirrar glæsilegu náttúru að hinir alvitru foringjar fylkingarinnar raða sjálfum sér efst á listann svo það sé alveg öruggt að enginn kjósi vitlaust. Í Samfylkingarlýðræðinu eiga allir jafn lýðræðislegan kost á að komast til metorða, jafnvel þeir sem enda neðar en aðrir á listanum í Samfylkingarlýðræðislegum prófkjörum. Hvaða lýður vill ekki búa við slíkt ræði?
Samfylkingarlýðræði. Stærð 1-100, litur rauður. Vertu flottur, vertu töff, vertu Samfylkingarlýðræðislegur og vertu gangandi vitnisburður um heppilegt fyrirkomulag með persónukjöri gegn flokksræði. Verð 50 dalir. 0.1% af sendingarkostaði rennur óskipt í rannsóknarsjóð um samræðustjórnmál.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (10.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Af mbl.is
Ljóð
Ferðasaga
Einn dag fyrir átta árum
með eimskipi tók ég far.
Nú man ég því miður ekki
hver meining ferðalagsins var.
En einhverra orsaka vegna
að endingu landi var náð.
Og það var með ánægju þegið,
því þetta var skipsstjórans ráð.
Og svo hef ég verið hér síðan
og sofið og vakað og dreymt.
En eins og ég sagði áðan,
er erindið löngu gleymt.