Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
2.9.2021 | 16:02
Verða vatnsaflsvirkjarnir úreltar eftir nokkur ár?
Stjórnmál og samfélag | Breytt 3.9.2021 kl. 16:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.8.2021 | 00:16
Fagmennskan uppmáluð
Hafi einhver efast um að flestir fjölmiðlar í Bandaríkjunum dragi taum ákveðins stjórnmálaflokks, þarf sá hinn sami ekki að efast lengur. Svo er allsóekkí.
Það sem fer hér á eftir er næstum fullkomið dæmi um fagmennsku, hlutleysi og innsæi að ekki sé talað um sjálfsvitund, núvitund og kynþáttavitund.
2017 birtist þessi fyrirsögn í hinu stórvirta stórblaði Washington Post:
2021 Birtist svo þessi fyrirsögn í hinu stórkostlega virta Washington Post:
Eini munurinn EINI er að þegar fyrri fréttin var skrifuð var Donald Trump forseti Bandaríkjanna. Keppikefli hans var: Kaupum bandarískt.
Það er mjög ánægjulegt að sjá að faglegir blaðamenn Washington Post hafa loksins áttað sig á mikilvægi þess að hlú að innviðum eigin lands. Er það tilviljun að Biden (eða hans fólk, hann er ekki alveg með á nótunum sökum anna) fær svona góðar undirtektir hjá blaðinu? Allsóekkí.
Þess má geta að næst þegar þú kaupir eitthvað á Amazon.com ertu óbeint að styrkja faglegheitin og hlutleysið sem viðgengst svo snilldarlega á WP. Eigandi blaðsins heitir Jeff Bezos.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 3.9.2021 kl. 16:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.8.2021 | 15:32
Fyrirmyndar forseti
Stjórnmál og samfélag | Breytt 25.8.2021 kl. 22:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.8.2021 | 15:02
Taka úr umferð
Stjórnmál og samfélag | Breytt 25.8.2021 kl. 22:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.6.2021 | 12:02
En hún snýst nú samt
á Galíleó að hafa muldrað í barminn þegar skollaeyrum var skellt við fullyrðingum hans um að jörðin snerist í kringum sólina.
Staðreynar Snjáldru, Forarvilpunnar og Gögguls hlupu aldeilis á sig varðandi vangaveltur um að Kínakommaveiran hafi sloppið út af tilraunastofunni í Wuhan en ekki úr dýri sem enn hefur ekki fundist. Þeir létu draga sig á asnaeyrunum af hópi sérfræðinga sem hafði hagsmuna að gæta og gat ekki einu sinni flutt mál sitt án þess að rugla saman getgátum og staðreyndum.
Ég deildi þessari grein á Snjáldru, en ég hef ekki enn fengið nein viðbrögð. Svona fara menn að þegar sannleikurinn gerist óþægilegur. Honum er sópað undir algrímsteppið.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2.2.2021 | 18:35
Í hvaða myrkri deyr lýðræðið?
Það skyldi þó ekki vera að lýðræðið gefi upp öndina í myrkri fáfræðinnar? Eða heimskunnar ef til vill? Nú er erfitt að meta heimsku, en fáfræðina er auðveldara að festa fingur á. Getur verið að þau sem þekkja ekki söguna séu dæmd til að endurtaka hana? Við getum huggað okkur við að Washington Post stendur lýðræðisvaktina fyrir okkur.
Ekki bera Donald Trump saman við Hitler. Það gerir lítið úr Hitler.
27.1.2021 | 19:17
Lýðræðið deyr í myrkrinu
Slagorð Washington Post er Lýðræðið deyr í myrkrinu. Spurningin er bara hvaða myrkri? Er það myrkrið sem falsfréttirnar leggja yfir heiminn? Eða er það pólitísku sjónarmiðin sem skína í gegnum blaðamennskuna og hafa áhrif á kjósendur? Er það ritstjórnin? Hvaða mál ekki er fjallað um og hvaða mál er fjallað um? Eru það kyndilberar réttlætisins sem bera eld að húsum andstæðinga sinna með þeim sama kyndli?
AP fréttastofan stundar aldeilis vandaða blaðamennsku eins og sést af þessari mynd. Enginn halli, hlutleysið uppmálað.
Ný frétt: Obama sendir útgjaldapakka upp á 4 trilljarða dollara til þingsins til hjálpar millistéttinni. (2. febrúar 2015)
Ný frétt: Trump forseti sendir útgjaldapakka upp á 4,4 trilljarða dollara til þingsins sem leiðir af sér mikinn halla á ríkissjóði. (12. febrúar 2018)
Stjórnmál og samfélag | Breytt 28.1.2021 kl. 18:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.1.2021 | 17:17
Blaðamennska 101
Þegar maður vinnur á blaði og vill að fréttirnar sem maður skrifar endurspegli eigin pólitísk sjónarmið er mikilvægt að haga orðavali á þann hátt að gera sem minnst úr andstæðingnum. Washington Post stendur sig ljómandi vel í þessum efnum.
1. Björgunarpakki þingsins: Hjálplegur, en er upphæðin nógu há? (21. desember 2020)
2. Trump fer fram á að þingið samþykki 2000 dala ávísanir til almennings. (22. desember 2020)
3. Ástæðan fyrir því að hækka ávísanirnar úr 600 dölum í 2000 er slæm hugmynd. (29. desember 2020)
Lesendur sem vilja óbrenglaða mynd af stjórnmálaástandinu eiga hauk í horni þar sem Washington Post er.
17.12.2020 | 18:01
Með í reikninginn - heimilisofbeldi
Getur verið að sóttvarnaraðgerðir ríkisins hafi þegar upp er staðið meiri og verri afleiðingar en pestin sjálf?
Heimilisofbeldi. Enginn vafi er á að sóttvarnaraðgerðirnar hafa aukið heimilisofbeldi um allan heim. Ísland er engin undantekning. Samkvæmt frétt á mbl.is hefur lögreglunni borist 655 tilkynningar um heimilisofbeldi á árinu, sem er 12% aukning á meðaltali undanfarinna þriggja ára.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.12.2020 | 19:17
Með í reikninginn - þunglyndi og kvíði
Stóra spurningin er hvort sóttvarnaraðgerðirnar séu þegar upp er staðið verri en pestin sjálf.
Þunglyndi og kvíði. Aðgerðirnar gegn útbreiðslu pestarinnar hefur valdið depurð, kvíða og jafnvel þunglyndi hjá mörgum. Enginn vafi leikur á að lokanir og aðrar takmarkanir geta haft neikvæð áhrif á andlega líðan þegar það sem gerir lífið skemmtilegt og þess virði að lifa er bannað. Ein könnun sýndi að 70% vel stæðra einstaklinga um víða veröld hafa ýmist verið þreyttir, daprir, reiðir eða óþreyjufullir síðan lokunaraðgerðir hófust. Þó eru það einkum fátækir sem aðgerðirnar bitna hvað harðast á. Talið er að milljónir manna hafi soltið í hel vegna sóttvarnaraðgerða á Indlandi svo dæmi sé tekið.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Ljóð
Ferðasaga
Einn dag fyrir átta árum
með eimskipi tók ég far.
Nú man ég því miður ekki
hver meining ferðalagsins var.
En einhverra orsaka vegna
að endingu landi var náð.
Og það var með ánægju þegið,
því þetta var skipsstjórans ráð.
Og svo hef ég verið hér síðan
og sofið og vakað og dreymt.
En eins og ég sagði áðan,
er erindið löngu gleymt.