1.2.2009 | 16:17
Með aðalatriðin á hreinu
Er virkilega aðalatriðið við stofnun nýrrar ríkisstjórnar að jafnréttissjónarmiðum sé náð? Þegar jafn erfið úrlausnarefni eru framundan er fráleitt að gera þetta að aðalatriði málsins. Þegar aukaatriðin, án þess að lítið sé gert úr þeim, eru gerð að aðalatriðum, er ekki von á góðu.
![]() |
Söguleg ákvörðun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Ljóð
Ferðasaga
Einn dag fyrir átta árum
með eimskipi tók ég far.
Nú man ég því miður ekki
hver meining ferðalagsins var.
En einhverra orsaka vegna
að endingu landi var náð.
Og það var með ánægju þegið,
því þetta var skipsstjórans ráð.
Og svo hef ég verið hér síðan
og sofið og vakað og dreymt.
En eins og ég sagði áðan,
er erindið löngu gleymt.
Athugasemdir
Þörf ÓRG til að strá um sig gullkornum verður sífellt vandræðalegri. Atburður á veraldarvísu! Ómægod. Hefur þjóðin ekki borgað nógu margar ferðir undir rassinn á honum til Indlands til að upplýsa hann um Indíru Gandí og hlutverk hennar í veraldarsögunni. Svo ekki sé minnst á Margréti Thatcher, Goldu Meir, Angelu Merkel og Gro Harlem Brundland. Allt konur sem settu mark sitt á veraldarsöguna.
Jóhanna er ekki að slá nein veraldarsögumet. Eina metið sem hún slær er að vera fyrsti lesbíski forsætisráðherrann. Hinir teprulegur Íslendingar mega ekki hafa orð á þessari sérstöðu hennar. Fréttir af því þurfa menn að fá frá frjálsri pressu í útlöndum.
Hér velja menn að tala um jafnréttismál í miðju efnahagshruninu.
Ragnhildur Kolka, 1.2.2009 kl. 18:01
Ég held að Marteinn sé að misskilja. Forsetinn er ekki hafinn yfir gagnrýni þótt forseti sé. Það að þú takir upp hanskann fyrir hann er dæmi um hversu vel honum hefur tekist að blekkja almenning. Það blasir við að maðurinn er pólitískur loddari. Málefnin sem hann velur sér eru ekki hans hjartans mál, heldur það sem hann telur að gangi best í almenning. Hann minnist ekki á samkynhneigð vegna þess að hann telur það ekki eins vænlegt til vinsælda og að fara með rangt mál um að kona sem forsætisráðherra séu fréttir á heimsvísu. Sem hlutlaus forseti á hann stuðning meirihluta þjóðarinnar, en sem pólitískur forseti á hann stuðning 10-15% þjóðarinnar. Hvort heldur þú að hann sé?
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, 3.2.2009 kl. 21:07
Þetta með jafnréttið á þessum tímapunkti er algjört aukaatriði og ber vott um populisma. Ef þetta jafnrétti er jafnréttisins vegna, þá er næsta víst að ekki hefur verið valið í stólana eftir hæfnisreglum.
Gunnar Th. Gunnarsson, 5.2.2009 kl. 05:11
Mér skilst að bókin um hann hafi átt að heita Útrásarforsetinn. Segir það ekki allt sem segja þarf?
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, 5.2.2009 kl. 14:04
Þetta jafnréttiskrapp var líka stórmál þegar bankarnir rúlluðu á haus í haust. Held það hafi bókstaflega verið fyrsta spurning fréttamanns á blaðamannafundi hvort jafnréttissjónarmiðin yrðu ekki í hávegum höfð við ráðningar bankastjóra - enda að sjálfsögðu mikilvægasta atriðið...
Ingvar Valgeirsson, 6.2.2009 kl. 11:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.