6.11.2008 | 23:05
Drink mojito
Þessi auglýsing um ágæti mojito-drykkjarins er á ensku vegna þess að það má bara auglýsa áfengi á útlensku á Íslandi: Drink Mojito, the best drink in the world. Drink responsibly and keep mojito from children.
Lögin um bann við áfengisauglýsingum í íslenskum fjölmiðlum eru til marks um heimóttarskap. Fjöldi útlendinga býr á Íslandi og ekki lesa þeir íslensk blöð, er ekki nauðsynlegt að vernda börn þeirra fyrir óæskilegum auglýsingum? Fjöldi barna íslendinga lesa erlend blöð ekki síður en íslensk. Verður ekki að banna erlendu blöðin? Áfengi er ekki af hinu vonda, það má misnota það eins og annað og það er á ábyrgð hvers og eins að gæta sín. Það á ekki að vera hlutverk ríkisins.
Fyrrum ritstjórar dæmdir fyrir áfengisauglýsingar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Ljóð
Ferðasaga
Einn dag fyrir átta árum
með eimskipi tók ég far.
Nú man ég því miður ekki
hver meining ferðalagsins var.
En einhverra orsaka vegna
að endingu landi var náð.
Og það var með ánægju þegið,
því þetta var skipsstjórans ráð.
Og svo hef ég verið hér síðan
og sofið og vakað og dreymt.
En eins og ég sagði áðan,
er erindið löngu gleymt.
Athugasemdir
Og allt þetta C vítamíni, maður lifandu. Gleymdu ekki hollustunni.
Ragnhildur Kolka, 6.11.2008 kl. 23:46
Að því ógleymdu! Ég hvet aðra bloggara til að auglýsa áfengi á síðum sínum í háðsskyni við þessi heimóttarlegu lög.
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, 7.11.2008 kl. 08:57
Þrátt fyrir að mér finnist lögin asnaleg þábrosti ég út í annað - jafnvel bæði - þegar ég sá hverjir voru sakfelldir.
Ingvar Valgeirsson, 7.11.2008 kl. 10:16
Það er satt, ég bjóst nú ekki við því að taka upp hanskann fyrir þessa heiðursmenn. Það á líta á það sem einskonar aukaverkun.
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, 7.11.2008 kl. 15:41
Skál fyrir þér. Þessi endalausa forræðishyggja yfir öllu hér. Manneskja verður ekki alki af því að horfa á áfengisauglýsingar.
Svavar Guðmundsson (IP-tala skráð) 7.11.2008 kl. 17:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.