24.10.2008 | 22:10
Brown bolurinn
Nú þurfa allir í heimsþorpinu að leggjast á eitt og spara. Af því tilefni hefur Egozentric®© hannað bol sem hvetur breska almúgann til að spara vatn. Fáir gera sér grein fyrir hve mikil sóun á vatni á sér stað í salernum landsins. Því hefur Egozentric®© sett alþýðustöku á nýjustu hönnun stofunnar sem gerir einmitt það, hvetur til sparnaðar og er myndræn um leið.
If it's yellow, let it mellow, if it's Brown, flush him down. Stærð 1-100. Litur: Rauður. Vertu góður borgari og sparaðu vatn. Hleyptu brúnum og láttu hann gossa. Það er best fyrir alla. Verð: 10 pund. Ath. Ekkert sem fram kemur á þessum bol er skáldskapur, ef svo virðist sem um raunverulegt fólk sé að ræða, er það hrein tilviljun.
For English customers of Egozentric Designs®©:
Now every citizen of the global village must be thrifty. Egozentric®© has designed a T-shirt urging British citizens to save water. Few people realize how much water is wasted at British toilets. That's why Egozentric®© has put an old folk wisdom on it's design that does exactly that, urges people to be thrifty in a picturesque way.
By flushing the Brown, Brits are releasing the baggage of yesterday, creating a better future for themselves. Brown is the bad idea, the bad smell of bad solutions and bad governance. The blind snake of no clue of economic affairs and cheap spins in a free fall of popularity into the sewer of history.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Ljóð
Ferðasaga
Einn dag fyrir átta árum
með eimskipi tók ég far.
Nú man ég því miður ekki
hver meining ferðalagsins var.
En einhverra orsaka vegna
að endingu landi var náð.
Og það var með ánægju þegið,
því þetta var skipsstjórans ráð.
Og svo hef ég verið hér síðan
og sofið og vakað og dreymt.
En eins og ég sagði áðan,
er erindið löngu gleymt.
Athugasemdir
Hólmdís Hjartardóttir, 24.10.2008 kl. 22:40
Snilld
Pant fá eitt stykki til Danmerkur
Ársæll Níelsson, 25.10.2008 kl. 08:18
Ágúst H Bjarnason, 25.10.2008 kl. 18:23
Snilld. Þetta er beinlinis ljóðrænt!
Þórdís Guðmundsdóttir, 25.10.2008 kl. 18:43
Góður.
Halla Rut , 25.10.2008 kl. 20:59
Gjaldeyristekjur, ekki spurning! Og mikið af þeim.
Ævar Rafn Kjartansson, 25.10.2008 kl. 22:25
Egozentric leggur sitt af mörkum til að afla gjaldeyris!
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, 26.10.2008 kl. 12:06
Godur!!
b.kv. Olof
Olof Viktorsdottir (IP-tala skráð) 28.10.2008 kl. 20:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.