19.8.2008 | 04:34
Forseta munnskol
Ert þú einn af þeim sem hafa sagt eitthvað sem þú sérð eftir? Sagt eitthvað í hita leiksins sem stenst enga skoðun? Tekið upp málstað sem reyndist vera eitthvert mesta kjaftæði sem um getur? Logið upp í opið geðið á fólki hvort þú ert til dæmis trúaður eða ekki? Þóst hafa áhuga á einhverju máli sem þér er drullusama um bara til að ganga í augun á fólki? Ef svo er þarftu ekki að örvænta vegna þess að nú er komið á markað nýtt munnskol, Forseta munnskol sem skolar ekki bara burt drulluna úr munninum heldur líka samviskubitið vegna alls þess sem þú sagðir og gerðir en hefðir betur sleppt. Með nýskolaðan munninn upp úr Forseta munnskoli gengurðu keikur um velli með hökuna uppi og spakmæli á hraðbergi. Virðulegur og aðsópsmikill eins og réttborinn aðall á kostnað ríkisins í veröld þar sem allir eru jafnir hvort sem þeir hafa tvo fætur eða fjóra.
Forseta munnskol. Skolaðu burt óþægindin og vertu eins og nýsleginn túskildingur sama hversu mótsagnakenndur þú ert. Stærðir 1-100. Sérstakt tilboðsverð: 8999 kr. Allur ágóði af sölu bolarins fer í verðlaunasjóð sem mun renna óskiptur til þess sem fyrstur finnur hina margumtöluðu Moggalygi kaldastríðsáranna.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.4.): 2
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 25
- Frá upphafi: 114026
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 24
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Af mbl.is
Ljóð
Ferðasaga
Einn dag fyrir átta árum
með eimskipi tók ég far.
Nú man ég því miður ekki
hver meining ferðalagsins var.
En einhverra orsaka vegna
að endingu landi var náð.
Og það var með ánægju þegið,
því þetta var skipsstjórans ráð.
Og svo hef ég verið hér síðan
og sofið og vakað og dreymt.
En eins og ég sagði áðan,
er erindið löngu gleymt.
Athugasemdir
Gefur þetta frábæra munnskol ekki Sameinuðu þjóðunum tilefni til að koma á alþjóðlegum munnskolsdegi?
Ragnhildur Kolka, 19.8.2008 kl. 08:54
Hvort sem menn hafa nef eða... ja, trýni.
Ingvar Valgeirsson, 19.8.2008 kl. 18:47
Ég sé fyrir mér að þetta gæti orðið algjör hittari hér á Klakanum.
Þórdís Guðmundsdóttir, 19.8.2008 kl. 19:50
he he he, jú got it.
Ekki galið, ekki veitir af, ég sé þá fyrir mér pólitíkusana á þingi sameinuðu þjóðanna (sem hafa aldrei verið sameinaðar í neinu) gefa gott fordæmi og skola munninn á degi munnskolsins. Forseta munnskolið sem á eftir að slá í gegn á Íslandi svo um munar!
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, 20.8.2008 kl. 07:23
Næ mer i brusa tegar teir koma a markad. Hef einu sinni verid kalladur otokki. Næ ad skola obragdinu i burtu a degi munnskolsins. Ef eg hefdi td. "skitlegt edli" frussadi eg tvi med i leidinni. Kaupi kannski tvo brusa.
Vilberg Olafsson (IP-tala skráð) 21.8.2008 kl. 22:09
Góð viðskiptahugmynd!
Gunnar Th. Gunnarsson, 22.8.2008 kl. 01:30
Forseta munnskolið skolar burt óþokkanum úr hverjum manni, skítlegt eðli hverfur eins og dögg fyrir sólu. Ef þú hins vegar valdir sósíalismann sem vagn á framabrautinni þarftu að skola tvisvar. Einu sinni fyrir þig og einu sinni til minningar um þá sem þessi helstefna drap.
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, 22.8.2008 kl. 17:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.