22.6.2008 | 15:50
Ískrið í rólunni
Um daginn var ég staddur niðri á strönd. Þá heyri ég takfast ískur (íííí... íííí... íííí...) sem ég kannaðist við að hafa heyrt áður. Ég leit í kringum mig og sá að hljóðið kom úr rólu sem barn var að róla sér í. Þá rifjaðist upp fyrir mér að þetta var sama hljóðið og maður heyrði í rólunum hjá Fávitahæli Kópavogs (var þannig í símaskránni) daginn út og inn, lungann úr æskunni. Nú er hælið horfið og fávitarnir líka. Aðrir komnir í staðinn í ný hús sem byggð eru hvert ofan í annað. Það er ekki laust við að ég sakni ískursins.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Ljóð
Ferðasaga
Einn dag fyrir átta árum
með eimskipi tók ég far.
Nú man ég því miður ekki
hver meining ferðalagsins var.
En einhverra orsaka vegna
að endingu landi var náð.
Og það var með ánægju þegið,
því þetta var skipsstjórans ráð.
Og svo hef ég verið hér síðan
og sofið og vakað og dreymt.
En eins og ég sagði áðan,
er erindið löngu gleymt.
Athugasemdir
Kastaði mér á síðuna þín. Vildi endilega að þetta væri titill á glæpasögu. Stephen King, Mary Higgins Clark eða "SOrrSi"
Gott að þú er ekki feiminn við orð, maður þarf orðið alltaf að hugsa: "ætli megi LENGUR segja ... þetta eða hitt" Ég geymi alltaf launamiðana sem ég á frá Fávitahælinu í Kópavogi. Fáviti ekkert ljótt fyrir gengisfall orðsins; sá sem veit fátt!
Beturvitringur, 22.6.2008 kl. 20:21
Það er alveg satt og gott að þú staðfestir þetta með Fávitahælið. Fávitar voru ekkert verri en annað fólk í gamla daga, svo víkkaði merking þess eða notkun eða hvað það nú var og þá var það orðið að níðyrði. Ískrið í rólunni er fjandi gott orð yfir spennusögu, þegar þú segir það! Það er eitthvað ógnvænlegt við það að róla sér allan daginn með þessu ískri. Oj, maður fær gæsahúð.
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, 23.6.2008 kl. 05:18
Eftir langvarandi gæsahúð fær maður fyrst vængi, svo hænsnakjöt og svo er það lokastigið; oddaflug!
Beturvitringur, 24.6.2008 kl. 00:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.