22.5.2008 | 15:23
Hvað sýnir reynslan?
Fyrir nokkrum árum þegar Hrefnuveiðar hófust æptu margir í örvæntingu að hvalaskoðanir myndu leggjast af ef slíkur ósómi yrði leyfður og ferðaþjónustan myndi bíða óbætanlegan skaða.
Hver er reynslan?
Hún er sú að aldrei fleiri heimsækja Ísland og aldrei fleiri fara í hvalaskoðanir.
Þarf að ræða þetta eitthvað frekar?
Vinstristefna að tala niður atvinnulífið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Af mbl.is
Innlent
- Lyftari yfir fót og rjúfa þurfti hurð
- Er kynjastríð í uppsiglingu?
- Dæmdur fyrir kynferðislegt nudd á stjúpdóttur
- Viðræður í Karphúsinu ganga misvel
- Sjálfstæðisflokkurinn á einhvern hátt stjórnlaus
- Áttu að rannsaka akademíuna en gerðu það aldrei
- Kona myrt á 10 mínútna fresti
- Fatlaður drengur fær ekki þjónustu í verkfalli
Ljóð
Ferðasaga
Einn dag fyrir átta árum
með eimskipi tók ég far.
Nú man ég því miður ekki
hver meining ferðalagsins var.
En einhverra orsaka vegna
að endingu landi var náð.
Og það var með ánægju þegið,
því þetta var skipsstjórans ráð.
Og svo hef ég verið hér síðan
og sofið og vakað og dreymt.
En eins og ég sagði áðan,
er erindið löngu gleymt.
Athugasemdir
Ef menn fara í safarí í útlandinu að skoða t.d. antílópur lýkur ferðinni á því að menn fá safarí-ka antílópusteik. Því þætti mér tilvalið að bjóða upp á grillaða hrefnu og hvalaborgara um borð í skoðunarbátunum og hætta þessu bévítans væli.
Ingvar Valgeirsson, 23.5.2008 kl. 23:26
... eða bjóða ferðalöngum að taka í gikkinn! (nú var ég ógeð)
Beturvitringur, 24.5.2008 kl. 12:54
Það er örugglega fullt af fólki sem er til í að borga erlendan gjaldeyri fyrir að skjóta hval - málið í nefnd!
Ingvar Valgeirsson, 24.5.2008 kl. 16:16
Ekki er nokkur vafi á því að fullt yrði í hverja ferð sem byði skoðun, skot og grill. Án gríns. Moby Dick on a stick. Það er nefnilega lítill minnihluti, en hávær minnihluti, sem er á móti hvalveiðum. Fjölmargir iðjuleysingjar lifa af því að þykjast bera hag hvala fyrir brjósti. Gamlar konur eru ginningarfífl þeirra, þær gerast styrktaraðilar tiltekinna hvala sem eru ekki einu sinni til. Pólitískir ístöðuleysingjar hlaupa á eftir þessum loddurum.
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, 25.5.2008 kl. 08:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.