17.12.2007 | 00:24
Til styrktar þjóðkirkjunni
Hví ekki gefa vinum og ættingjum bol í jólagjöf? Hér er glæsilegur bolur með hughreystandi orðum sem allir geta tileinkað sér. Kostar aðeins 100 kr.
1% af söluandvirði þessa bolar rennur óskipt til styrktar þeim sem eiga bágt í þjóðkirkjunni. Bæði þeim sem gráta nýju þýðinguna og þeim sem sakna þess að fá ekki að boða trú í skólum landsins.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Af mbl.is
Ljóð
Ferðasaga
Einn dag fyrir átta árum
með eimskipi tók ég far.
Nú man ég því miður ekki
hver meining ferðalagsins var.
En einhverra orsaka vegna
að endingu landi var náð.
Og það var með ánægju þegið,
því þetta var skipsstjórans ráð.
Og svo hef ég verið hér síðan
og sofið og vakað og dreymt.
En eins og ég sagði áðan,
er erindið löngu gleymt.
Athugasemdir
Ruddaskapur sem bendir til skítlegs eðlis höfundar.
Theódór Norðkvist, 17.12.2007 kl. 00:58
Þú ert í góðum félagsskap með ÓRG. Guð hjálpi ykkur og fyrirgefi ykkur og láti sína ásjónu lýsa yfir ykkur og veri ykkur náðugur. Amen.
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, 17.12.2007 kl. 19:23
Ég tók of sterkt til orða og biðst afsökunar. Það er samt sem áður skoðun mín að upphafsfærsla þín var mjög ósmekkleg.
En ég þakka falleg blessunarorð. Takk sömuleiðis. Guð verði þér náðugur og fyrirgefi allar misgjörðir þínar.
Gott að eiga ósýnilegan vin til að biðja fyrirgefningar!
Theódór Norðkvist, 18.12.2007 kl. 02:16
Hann er betri en enginn!
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, 18.12.2007 kl. 10:09
Hahahahahah
Ólína (IP-tala skráð) 18.12.2007 kl. 14:43
Mér fannst þetta snilld.
Guðmundur Bergkvist, 18.12.2007 kl. 21:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.