19.10.2021 | 16:38
London sokkin í sæ
Árið er 2008. London er sokkin í ökkladjúpan sæ vegna manngerðrar hlýnunar á jörðinni. Lögreglumaðurinn Harley Stone er á höttunum eftir dularfullum og allt umlykjandi fjöldamorðingja sem drap samstarfsfélaga hans fyrir nokkrum árum...
Þetta er hluti af söguþræði kvikmyndarinnar Augabragð (Split Second) frá 1992 með Rutger Hauer og Kim Cattrall í hlutverkum.
Ég get ekki sagt að þetta sé góð mynd. Sagan er heldur þunn, næfurþunn og ratar í algjörar ógöngur í lokin. Ekki var nokkur leið að lifa sig inn í söguna, sama hvað ég reyndi. Þó verð ég að segja að það var gaman að sjá gamla goðið Rutger Hauer vaða um í leðurfrakka með stóra byssu. Kim Cattrall var heldur ekki að trufla neitt með nærveru sinni í hlutverki unnustu Harley Stone.
Augabragð fellur í flokk hrollvekjumynda. Hún átti alls ekki að vera grínmynd. Þó gat ég ekki annað en hlegið að framtíðarsýn handritshöfundarins um að heimurinn yrði sokkinn í sæ 2008. Ég neyðist til að setja þessa framtíðarsýn hans í skjalaskápinn í risastóru skemmunni sem hýsir feilspár í loftslagsmálum.
Flokkur: Kvikmyndir | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.9.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Af mbl.is
Innlent
- Myndir: Sjaldgæfir fuglar í íslenskri náttúru
- Snorri bregst við nýju svari ráðherra
- Bæjarfulltrúar fóru 400 metra í hjólastól
- Vonar að hægt verð að taka upp þráðinn aftur
- Vill auka ferðaþjónustu í Kópavogi
- Í fangelsi fyrir stuld úr verslun á Glerártorgi
- Hafa áhyggjur af loftgæðum í enn einum leikskóla
Fólk
- Afturhvarf til draumkenndra æskuhugmynda
- Nær óþekkjanleg á nýrri mynd
- Á von á fjórða barninu á sjö árum
- Andrés prins og Sara Ferguson saman við útför Katrínar
- Skilin þremur árum eftir framhjáhaldshneykslið
- Þrefaldur Íslandsfrumflutningur
- 12 barna faðir opnar sig
- Saoirse Ronan orðin móðir
- Kalla eftir upplýsingum um verk eftir Ísleif
- Redford: Fimm af þeim vinsælustu
Ljóð
Ferðasaga
Einn dag fyrir átta árum
með eimskipi tók ég far.
Nú man ég því miður ekki
hver meining ferðalagsins var.
En einhverra orsaka vegna
að endingu landi var náð.
Og það var með ánægju þegið,
því þetta var skipsstjórans ráð.
Og svo hef ég verið hér síðan
og sofið og vakað og dreymt.
En eins og ég sagði áðan,
er erindið löngu gleymt.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.