Leita í fréttum mbl.is

Veirufrítt Ísland 2021!

Hver kannast ekki við að vera búinn að fá hundleið á Kínaveirunni? En ekki lengur. Nú er komin lausn í málinu, skíma við endann á þessu langa klóakröri sem við höfum öll verið í. Til að fagna þessum merku tímamótum hefur Egozentric, París, London, Mílanó, Reykjavík (skráð vörumerki), sérhannað bol.

Tilbod2fyrir1

Fyrir einungis 35,999 krónur getur þú eignast bolinn Veirufrítt Ísland 2021! En bíddu við, ekki hætta að lesa núna vegna þess að fyrir einungis 99,999 krónur getur þú fengið þennan einstaka snilldarbol með áletrun sóttvarnarlæknis! Já, með áritun mannsins sem teljast verður einhver raunsæjasti maður sem uppi hefur verið á Íslandi. Snillingsins sem sér fyrir sér veirufrítt Ísland strax á þessu ári!

Iss en þetta er ekki neitt, ef þú kaupir tvo boli færðu bolinn Fíkniefnalaust Ísland árið 2000! í kaupbæti. Stórkostlegra verður það varla! Ekki klóra þér of lengi í pungnum yfir þessu kostaboði. Það gildir einungis í skamman tíma.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson

Fyrir mér er sannleikurinn mikilvægastur. Mörgum svíður undan sannleikanum. Það verður bara að hafa það. Sannleikurinn blívur.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 114015

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband