Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, október 2008

Rót vandans

Bill Clinton (forseti frá 1992-2000) var stjórnmálamaður með metnað, hann vildi að hlutfall fátækra og minnihlutahópa sem eignuðust þak yfir höfuðið hækkaði í valdatíð hans. En það gekk ekki nógu vel, hlutfallið hækkaði ekki nógu hratt. Þá höfðu Bill og hans menn samband við vini sína og flokksbræður hjá íbúðalánasjóðunum Fanny og Freddy. „Okkur er vandi á höndum,“ sagði Bill, „við þurfum að hækka hlutfallið svo við getum sýnt fram á góðan árangur við að bæta hag þeirra lægst launuðu.“ Fanny og Freddy hugsuðu málið og komu með lausn: „Við lækkum bara þröskuldinn fyrir ábyrgðum.“ „Frábært!“ sagði Bill og klappaði flokksbræðrum sínum á bakið. Svo fóru Fanny og Freddy að lána hverjum sem vildi hvað sem hann vildi gegn ótryggum veðum jafnvel þótt tekjur viðkomandi væru litlar sem engar og stopular að auki. Þetta aukna fé í umferð jók umsvif og velmegun. Húsnæðisverð tók að hækka með aukinni eftirspurn. Húrra sögðu margir og tóku ný lán út á verðmeiri hús sín. Verðsprengja varð á fasteignamarkaðnum.

Þegar hópurinn sem gat ekki greitt af lánunum tók að stækka, tók að hrikta í stoðum ríkisíbúðalánasjóðanna Freddy og Fanny uns þeir lýstu sig gjaldþrota í sumar. Það leiddi af sér keðjuverkun sem enn sér ekki fyrir endann á. Nú eru stjórnendur sjóðanna í rannsókn hjá lögregluyfirvöldum. En skaðinn er skeður og verður ekki bættur þótt þeir fari í fangelsi.

2004 fóru nokkrir þingmenn Repúblikana á bandaríska þinginu fram á að gerð yrði rannsókn á útlánastarfsemi Fanny og Freddy. Einn þessara þingmanna var John McCain. En Demókratar vildu ekki sjá neina rannsókn á sjóðunum þeirra og komu í veg fyrir að þingið samþykkti aðgerðir í þá veru. Einn þeirra þingmanna sem greiddi atkvæði gegn tillögunni var Barack Obama. Óhætt er að fullyrða að hefði óráðsía Fanny og Freddy verið stöðvuð fyrir fjórum árum, værum við ekki í þeirri stöðu sem við erum í í dag.

Þessa sögu sagði mér maður að nafni Henri Lepage í fyrirlestri í Þjóðminjasafninu á fimmtudag.

Ekki er ólíklegt að þetta mál komist í hámæli fyrir kosningarnar í Bandaríkjunum. Fari svo er hætt við að það fjari hratt undan framboði demókratans.


Sökudólgurinn fundinn

Hver kannast ekki við að hafa tapað stórfé á fallandi hlutabréfum, frábærum viðskiptaháttum, glæsilegum fjárfestingum og framsýnum ákvörðunum en ekki haft neinn til að kenna um? En ekki lengur. Egozentric™®© hefur í samvinnu við góðan viðskiptavin fundið sökudólginn. Hann er enginn annar en Davíð Oddsson seðlabankastjóri. Eftir að góði viðskiptavinurinn benti aðalhönnuðinum á staðreynd málsins varð það allt svo skýrt og klárt. Auðvitað! Davíð Oddsson er maðurinn í Seðlabankanum sem vill ekki gefa peninga ríkisins til útrásarvíkinganna sem sigrað hafa heiminn en þurfa nú á lítilsháttar stuðningi að halda við að kaupa bensín á Bentleyinn. 

En fátt er með svo öllu illt að ekki megi á því græða. Því hefur Egozentric™®© sett á markað bol þar sem þessi sanna fullyrðing er sett fram á afgerandi hátt.

Allt Davíð að kenna

Fjármálakreppa heimsins er Davíð Oddssyni að kenna. Litur: Svartur. Stærð 1-100. Ekki láta útrásarvíkingana, kaffihúsaspekingana og stöku lögfræðinga einoka Davíðspúkann, taktu þér sjálfur Davíðspúka í sálina og kenndu um allt sem miður hefur farið í þínu lífi, lífi þjóðarinnar, lífi vina þinna og fjármálalífi heimsins í heild sinni. Verð 8999 krónur. Ath. fæst aðeins í TopShop.


« Fyrri síða

Höfundur

Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson

Fyrir mér er sannleikurinn mikilvægastur. Mörgum svíður undan sannleikanum. Það verður bara að hafa það. Sannleikurinn blívur.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband