Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2007
11.8.2007 | 13:57
Keyptu sápu af Reyni Pétri
Fyrr í sumar voru hjónin Sigurgeir Orri og Heiðrún Gígja og sonurinn Ragnar Orri að taka því rólega í sumarbústað í Grímsnesinu. Heyrist þá bank og viti menn Reynir Pétur göngugarpur með meiru er á dyrapallinum og býður unaðslega náttúrusápu til kaups. Hjónin slá til vegna þess að ágóðinn af sölu sápunnar rennur víst til Sólheima, þar sem Reynir Pétur býr.
Þegar sápan sem Björk móðir Heiðrúnar gaf henni í afmælisgjöf í maí var upp urin, var unaðslega náttúrusápan frá Reyni Pétri sett við vaskinn á heimili þeirra hjóna. Hún er ljómandi fín, sagði Heiðrún aðspurð. Ég tek undir þau orð, Sagði Sigurgeir Orri og bætti við: Reynir Pétur er einstakur maður, brosmildur og skemmtilegur.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.8.2007 | 08:54
Endemis þvæla
Sérhver maður ætti lesa ritgerð unglingsins Kirsten Byrnes áður en hann tekur stjórnmálamanninn Al Gore trúanlegan um umhverfismál. Yfirlýsingar Al Gore eru einfaldlega rangar.
Hlekki á ritgerð Kirsten, sem heitir Ponder the Maunder, er að finna í síðustu færslum á þessu bloggi. Hún tók einnig fyrir mynd Al Gore og sú lesning er ekki beinlínis uppörvandi fyrir umhverfissóðann Al Gore.
Skoðanir sáralítið skiptar meðal vísindamanna um gróðurhúsaáhrifin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 13:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (22)
4.8.2007 | 09:43
Koldíoxíðaukning í andrúmsloftinu skiptir engu máli
Ég get ekki að því gert en ég vorkenni öllum þeim sem lifa í ógn og ótta við aukningu koldíoxíðs í andrúmsloftinu. Hún skiptir nefnilega engu máli. Um leið er mér hjartanlega sama þótt einhverjir verji fé sínu í aflátsbréf til að friða samviskuna. Fool and his money are soon apart, segir máltækið.
Það eina sem vert er að hafa áhyggjur af raunar miklar áhyggjur er þegar stjórnmálamenn ákveða að leggja á skatta til að standa straum af aðgerðum gegn alheimshlýnun af mannavöldum. Mannkyni stendur meiri ógn af þeim aðgerðum en hugsanlegum hryðjuverkum, fellibyljum og hækkandi hitastigi á jörðunni samanlagt.
Hærri skattar letja til framkvæmda og hindra alþjóðaviðskipti. Þau ríki sem fara verst út úr því eru þau vanþróuðu. Ríkin sem þurfa mest á óhindruðum alþjóðaviðskiptum að halda. Kyoto-bókunin svokallaða er algjörlega út í hött. Það eina sem hún gerir er að hindra eðlilega framþróun iðnaðar í heiminum. Ekkert bendir til þess að koldíoxíð í auknu magni hafi áhrif. Þrátt fyrir það er búið til íþyngjandi reglugerðarfargan.
Ég veit ekki hversu lengi það tekur fyrir heimsbyggðina að átta sig á að hún er á villigötum. Það mun vonandi gerast sem fyrst. Því talsverð hætta er á eins og fyrr segir að mörg ríki muni verða fyrir miklu tjóni, bæði mann- og fjártjóni af völdum skatta sem lagðir verða á fyrir misskilning.
Trúlega mun ekki renna upp fyrir mönnum ljós fyrr en það tekur að kólna aftur.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 22:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
3.8.2007 | 09:23
Dansað á sokkunum
Verða léttklæddar á Goldfinger | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.8.2007 | 10:27
Einkennilegt bragð af matnum
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.4.): 2
- Sl. sólarhring: 8
- Sl. viku: 25
- Frá upphafi: 114026
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 24
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Af mbl.is
Innlent
- Heldur inn í nóttina tuttugu kílóum léttari
- Búið að slökkva sinueldinn
- Myndir: Baldur og Felix opnuðu kosningaskrifstofu
- Sinueldur á Arnarnesi
- Höfum ekki náð að skríða upp úr þeirri gryfju
- Lýðheilsuverðlaun forsetans afhent
- Myndir: Katrín bauð til sumarfagnaðar á Nasa
- Brotið á dreng sem ætlaði að koma upp um barnaníðing
- Væri að ljúga ef ég segðist ekki stressaður
- Myndir: Snjóflóð féll í Fnjóskadal
- Myndskeið: Björgunarsveitarmanni bjargað
- Ollu umferðarslysi og flúðu vettvang
- Þetta er hreint og klárt skemmdarverk
- Stefán Pálsson á barmi forsetaframboðs
- Myndir: Halla Hrund opnaði kosningamiðstöð
Erlent
- Versta vínuppskera í 62 ár
- Ungur drengur stunginn á leið í skólann
- 76 milljarðar í enduruppbyggingu í Dúbaí
- Ógildir dóm yfir Weinstein
- Trump hafður að háði í ræðu Bidens
- Réðust á ráðstefnugesti í Stokkhólmi
- Spaðar Rauðu myllunnar féllu til jarðar
- Samþykktu nýja löggjöf til að verja konur
- Trump með forskot í sex af sjö lykilríkjum
- Handtekin fyrir að stinga kennara og nemanda
- Hungur sverfur að tæplega 300 milljónum
- Aflýsa mörg hundruð flugferðum
- Æskuvinur Íslendings myrtur í Noregi
- Hestar gengu lausir í miðborg Lundúna
- Lög um bann við TikTok undirrituð í dag
Ljóð
Ferðasaga
Einn dag fyrir átta árum
með eimskipi tók ég far.
Nú man ég því miður ekki
hver meining ferðalagsins var.
En einhverra orsaka vegna
að endingu landi var náð.
Og það var með ánægju þegið,
því þetta var skipsstjórans ráð.
Og svo hef ég verið hér síðan
og sofið og vakað og dreymt.
En eins og ég sagði áðan,
er erindið löngu gleymt.