21.5.2009 | 06:07
Toppnum náð
Erpur Eyvindarson kvikmyndagagnrýnandi hjá DV gekk út af Loftleiðamyndinni sáttur. Það er afrek út af fyrir sig vegna þess að hann er etv. í þeim hópi sem er hvað lengst frá því að hafa áhuga á efni sem þessu. Þótt hann sé ekki jafn hrifinn og margir aðrir (ég er um margt sammála gagnrýni hans, það má alltaf gera betur) skín í gegn að Loftleiðaævintýrið náði honum í gegn um þennan frásagnarmáta og það er ánægjulegt. Þessari sögu var trúlega valinn sá búningur sem hentaði efninu hvað best. 3 af 5 hjá Erpi. Glæsilegt. Titillinn á gagnrýninni er líka mjög flottur.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Ljóð
Ferðasaga
Einn dag fyrir átta árum
með eimskipi tók ég far.
Nú man ég því miður ekki
hver meining ferðalagsins var.
En einhverra orsaka vegna
að endingu landi var náð.
Og það var með ánægju þegið,
því þetta var skipsstjórans ráð.
Og svo hef ég verið hér síðan
og sofið og vakað og dreymt.
En eins og ég sagði áðan,
er erindið löngu gleymt.
Athugasemdir
Já það er öruggt að ég fer að sjá þessa mynd en við strákarnir (60 og eldri) ætlum saman á mánudag en fyrst í Tommaborgara upp í höfða. Alfreð var hetja sem sem á skilið stærstan minnisvarða hér á landi en það sem hann og félagar gerðu er á heimsmælikvarða.
Valdimar Samúelsson, 21.5.2009 kl. 09:54
Að mínum dómi hefði átt að skíra Leifsstöð Alfreðsstöð. Alfreð Elíasson að öðrum ólöstuðum var maðurinn sem ruddi braut farþegaflugsins yfir Norður Atlantshafið.
Það er flott plan að fá sér borgara hjá frumkvöðli hamborgaranna á Íslandi, fara í bíó hjá frumkvöðli kvikmyndasýninga á Íslandi og horfa á mynd um frumkvöðul flugs á Íslandi :-)
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, 22.5.2009 kl. 13:19
Já sérstaklega þar sem leifur var ekki með búðir þarna á heiðinni. Hann hinsvegar var með sínar búðir á Nýfundnalandi. (Leifs Way Station) eða franska nafnið sem ég næ aldrei að segja.
Það mætti alveg breyta nafni í Alfreds station. Mæli með Tommaborgara en þeir eru æði og ofsa hollir.
Valdimar Samúelsson, 22.5.2009 kl. 14:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.