12.1.2009 | 20:34
Náttbuxurnar rifnuðu
Þau undur og stórmerki gerðust um daginn að náttbuxur Sigurgeirs Orra (41) rifnuðu er hann var að klæða sig í þær. Fóturinn bókstaflega stakkst í gegnum hnéð, sagði Sigurgeir Orri í samtali við Slefað og skeint. Þá áttaði ég mig á því að þær voru úr sér gengnar, eða réttara sagt úr sér sofnar. Þetta var í aðdraganda jólanna og minntist ég á í framhjáhlaupi við konu mína að mig vantaði sárlega nýjar náttbuxur. Trúlega hefur hún verið annars hugar þá, því engar náttbuxur komu úr jólapakkanum. Þetta er hræðilegt að heyra, Slefað og skeint vonar að Sigurgeir Orri fái nýjar náttbuxur fljótlega. Ég vona það svo sannarlega líka, sagði Sigurgeir Orri að lokum.
Myndin tengist fréttinni ekkert.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 10
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Ljóð
Ferðasaga
Einn dag fyrir átta árum
með eimskipi tók ég far.
Nú man ég því miður ekki
hver meining ferðalagsins var.
En einhverra orsaka vegna
að endingu landi var náð.
Og það var með ánægju þegið,
því þetta var skipsstjórans ráð.
Og svo hef ég verið hér síðan
og sofið og vakað og dreymt.
En eins og ég sagði áðan,
er erindið löngu gleymt.
Athugasemdir
Fallegt taflborð. Mæli svo með því að sofa alls ber.
Sindri Guðjónsson, 12.1.2009 kl. 23:34
Þótt ókunnir kynnu nú að vera orðnir sannfærðir um fávitahátt þinn (sbr. viðtengingarhátt)...
...gleðst ég yfir sögunni af náttbuxunni... loksins bloggað um annað en kreppu! Hef séð dýpri færslur, e-r kona sem fjallar fjálglega um að hún hafi ekki stækkað á sér varirnar!? Og? Kannski hefur hún kysst frosna súlu og slitið sig frá.
Megi góðar vættir veita þér brók.
Beturvitringur, 13.1.2009 kl. 01:25
Peð í tafli lífsins eða hrókur alls fagnaðar? Myndin er í mjög góðu samhengi við textann.
Magga frænka (IP-tala skráð) 13.1.2009 kl. 21:28
Ef þú færð ekki nærbuxur fljótlega ættir þú að draga snarlega fyrir gluggana.
Ragnhildur Kolka, 14.1.2009 kl. 19:00
Ætlaði að vera búinn að laga þetta :-)
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, 16.1.2009 kl. 15:06
þú verður bara að liggja á nærunum og draga fyrir glugga
Hólmdís Hjartardóttir, 17.1.2009 kl. 13:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.