9.11.2008 | 22:52
Prinsippmanneskja
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra sagði í viðtali við Morgunblaðið um daginn að Samfylkingarmenn væru þeirrar skoðunar að fyrrverandi pólitíkusar eigi ekki að vera í forystu fyrir seðlabanka. Þetta er prinsippafstaða hjá okkur og hefur komið fram oftar en einu sinni og oftar en tvisvar.
Af þessu tilefni hefur Egozentric®© sett á markað nýja hönnun sem leggur áherslu á góðu gildin í lífinu. Mikilvægt er að prinsippfólkið sé framan á bolum, öðrum til áminningar. Aðrir sem eru ekki eins miklir prinsippmenn, eins og til dæmis Jón Sigurðsson, fyrrverandi pólitíkus, varaformaður stjórnar Seðlabanka Íslands og formaður stjórnar Fjármálaeftirlitsins skipaður af viðskiptaráðherra Samfylkingarinnar, þurfa gott fordæmi og leiðsögn svo þeir falli ekki úr prinsippfarinu.
Prinsippmanneskja. Litur: Bleikur og rauður. Stærð 1-100. Sýndu að þú sért prisippmanneskja sem hefur prinsippin í heiðri. Ekki vera prinsipplaus tækifærissinni sem gengur á bak orða þinna og hleypur frá skuldum. Verð aðeins 8999 kr.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Ljóð
Ferðasaga
Einn dag fyrir átta árum
með eimskipi tók ég far.
Nú man ég því miður ekki
hver meining ferðalagsins var.
En einhverra orsaka vegna
að endingu landi var náð.
Og það var með ánægju þegið,
því þetta var skipsstjórans ráð.
Og svo hef ég verið hér síðan
og sofið og vakað og dreymt.
En eins og ég sagði áðan,
er erindið löngu gleymt.
Athugasemdir
Mikið rétt og hárrétt athugasemd og bara nokkuð sexý bolur. Því er ég er til í greiða fullt verð fyrir þennan kynþokkagóða bol, en ég vil bæta aðeins við hann (minn bol) Prinsippmanneskja án prinsipps!!!!!!
svavar Gudmundsson (IP-tala skráð) 9.11.2008 kl. 23:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.