10.10.2008 | 11:27
Við töpuðum
Hverju sem um er að kenna, lygum breskra kommúnista sem stjórna af fullkomnu getuleysi þar í landi, eða bjálfaskap íslenskra ráðamanna, er ljóst að við töpuðum og það illa.
Heitar kartöflur hrannast nú upp.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 114426
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Ljóð
Ferðasaga
Einn dag fyrir átta árum
með eimskipi tók ég far.
Nú man ég því miður ekki
hver meining ferðalagsins var.
En einhverra orsaka vegna
að endingu landi var náð.
Og það var með ánægju þegið,
því þetta var skipsstjórans ráð.
Og svo hef ég verið hér síðan
og sofið og vakað og dreymt.
En eins og ég sagði áðan,
er erindið löngu gleymt.
Athugasemdir
ABBA lagið The Winner Takes it All var spilað í morgunútvarpinum í gær þegar ég var á leiðinni í vinnuna og mér finnst textinn aldrei hafa talað jafnmikið til þín því það er rétt, núna erum við svo sannarleg the loser sem has to fall.
Una Sighvatsdóttir (IP-tala skráð) 10.10.2008 kl. 19:10
Það skiptir engu hvað við gerum úr þessu, skaðinn er skeður. Eina sem við getum gert er að taka afleiðingunum.
Ekki verður hjá því komist að beina athyglinni að hagstjórn síðustu ára og þeim fjölmörgu viðvörunum sem yfirvöld skelltu skollaeyrum við. Til dæmis háu vaxtastigi sem leiddi af sér að fólk tók lán í lágvaxtamyntum, keypti krónur, greiddi af lánunum og hirti mismuninn. Vernd krónunnar með ofurháum vöxtum gróf undan henni og okkur um leið.
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, 10.10.2008 kl. 21:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.