24.8.2008 | 03:48
Gamlir bolir á útsölu
Við tiltekt í vöruskemmu Egozentric®© við Times Square í New York fannst nýlega talsvert magn af gömlum bolum sem gerðir voru fyrir traustan viðskiptavin, nefnilega gamla og góða DV þegar Jónas virðingarverði Kristjánsson réði þar ríkjum. Jónasi fannst mikilvægt að þjóðin vissi hvers konar vitleysa Hvalfjarðargöngin væru og lét gera þessa boli af því tilefni. Með bolunum fylgdi þessi auglýsingatexti: Hvaða fávita datt það annars í hug að hægt væri að grafa göng undir Hvalfjörðinn? Gerði hann sér enga grein fyrir því að ævintýrið væri dæmt til að mistakast? Sjórinn á eftir að leka inn í þau eins og vodka ofan í Jeltsín Rússaforseta og draugfylla þau, ef þakið verður ekki hrunið áður. Það mætti halda að við séum komin í hveitibúðina í París þar sem súrrealistarnir átu sitt hveiti! Heimurinn sannarlega versnandi fer, fólk verður sífellt vitlausara og kýs yfir sig sífellt heimskari stjórnmálamenn. Hvar er samtakamáttur þessarar aumingjaharðar, af hverju rís hún ekki upp og mótmælir?
Hvalfjarðargöngin. Martröð þjóðarbúsins á næstu árum. Jónas Kristjánsson 27. febrúar 1996. Sýndu andúð þína og framsýni í verki og mótmæltu þessari vitleysu sem Hvalfjarðargöngin sannarlega eru. Stærðir 1-100. Litur: Hvítur og rauður eins og DV. Sérstakt útsöluverð: 1 kr. meðan birgðir endast. Sendingarkostnaður ekki innifalinn.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (11.1.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 114494
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Ljóð
Ferðasaga
Einn dag fyrir átta árum
með eimskipi tók ég far.
Nú man ég því miður ekki
hver meining ferðalagsins var.
En einhverra orsaka vegna
að endingu landi var náð.
Og það var með ánægju þegið,
því þetta var skipsstjórans ráð.
Og svo hef ég verið hér síðan
og sofið og vakað og dreymt.
En eins og ég sagði áðan,
er erindið löngu gleymt.
Athugasemdir
Æi, hvað mér þykir oft gaman að þér. Snilldin ein.
Ingvar Valgeirsson, 24.8.2008 kl. 14:08
Skoðaðu þetta:
http://en.wikipedia.org/wiki/Ukulele
Ingvar Valgeirsson, 24.8.2008 kl. 18:37
Jónas er búinn að skrifa yfir fjögur þúsund pistla á bloggið hjá sér, þannig að þar kennir líklega ýmissa grasa.
Hér er pistill sem gæti verið svar við þínum:
af jonas.is:
07.07.2008
Bezt er að skipta um skoðun
Versta ógæfa stjórnmálamanns er að geta ekki skipt um skoðun í ljósi nýrra upplýsinga. Heimurinn er alltaf að breytast og mennirnir verða líka að breytast. Fyrir örfáum árum var lífrænt eldsneyti talið allra meina bót, en nú er það talin skelfileg uppákoma. Ef rök gegn Evrópusambandinu eru upp urin, er gott að snúast til fylgis við það. Ef sadismi Útlendingastofnunar keyrir úr hófi fram, er rétt að reka verstu sadistana. Ef Seðlabankinn reynist vera úti að aka í peninga- og hagmálum, verða menn að taka á því. Ef trúarsetningar í hagfræði reynast vera rangar, þarf að hverfa frá þeim.
Sveinn hinn Ungi (IP-tala skráð) 24.8.2008 kl. 19:23
Hólmdís Hjartardóttir, 25.8.2008 kl. 01:08
Það er ekkert að Jónasi sem vænn gúlsopi af Forseta munnskoli™®© getur ekki lagað.
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, 25.8.2008 kl. 15:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.