10.7.2008 | 00:05
Heimsskyr
Á meðan íslenskir matvælaframleiðendur eru verndaðir með ríkisstyrkjum og tollamúrum gegn samkeppni frá útlenskum matvælaframleiðendum beinast allir kraftar þessara skynsömu og duglegu manna að því hvernig skuli ná sem mestu fé út úr ríkissjóði með sem minnstri fyrirhöfn. Skynsemin hefur fyrir löngu sagt þeim að vænlegast til árangurs sé að þekkja stjórnmálamenn. Þess vegna höfum við lög um einokun á sölu mjólkur, sem samkeppnislög ná ekki til.
Ef matvælaframleiðendur íslenskir væru teknir af ríkisspenanum myndu þeir umsvifalaust beina dugnaði sínum og hyggjuviti að því sem mestu máli skiptir: Að selja vöruna. Þeir myndu fljótt átta sig á því að á Íslandi búa fáir, en í heiminum margir.
Til hvers að beina kröftum sínum að helvítis útlendingunum þegar við höfum það gott heima?
Þrátt fyrir mikið tal um að nú skuli minnka ríkisstyrki er lítið um gjörðir. Og ekki lítur út fyrir að það breytist í bráð.
Örvæntið eigi!
Það er ljós í myrkrinu!
Egozentric designs®©! London, París, Róm, Mílanó, New York.
Það er hluti af markaðsherferð Egozentric Designs®© París, London, Los Angeles, New York, að leggja til góðar hugmyndir í von um ofsagróða. Þótt sérhagsmunaaðilar tengdir landbúnaði skilji það ekki, þá gerir aðalhönnuðurinn sér góða grein fyrir því að heimurinn er að verða eitt markaðssvæði. Það sem hægir á þróuninni en stöðvar hana ekki eru tollamúrar og skriffinnska eins og sú sem stunduð er í Evrópusambandinu og á Íslandi (Tollmeðferðargjaldið t.d.)
Íslenskir sveitalúðar eru ekki heimsborgarar. Hvað eru þeir annað en sveitalúðar sem telja ríkisstyrki vera lausn allra vandamála? Engu breytir þótt þeir séu í jakkafötum og vinni við Melatorg, þeir eru sömu sveitaplebbarnir með skít í skegginu og gras í gúmmískónum. Egozentric designs vill af einskærri eigingirni lyfta sveitalúðunum upp á nýtt plan, heimsborgaraplanið. Velkomnir herramenn. Þið eruð gestir á heimsborgaraplaninu, vinsamlega farið úr fjósagallanum. Hér er markaðsherferð handa ykkur. Hvert á ég að senda reikninginn?
Peru heimsskyr. Verð 4000 kr. Stærðir: 1-100. Land vinar: Ísland. Vinur: 1000 ára bóndinn.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Ljóð
Ferðasaga
Einn dag fyrir átta árum
með eimskipi tók ég far.
Nú man ég því miður ekki
hver meining ferðalagsins var.
En einhverra orsaka vegna
að endingu landi var náð.
Og það var með ánægju þegið,
því þetta var skipsstjórans ráð.
Og svo hef ég verið hér síðan
og sofið og vakað og dreymt.
En eins og ég sagði áðan,
er erindið löngu gleymt.
Athugasemdir
Bolurinn er algjör snilld, sendu reikninginn í BændaHÖLLINA.
Þetta kerfi er gjörsamlega út úr KÚ, og árið er 2008!!!
Svabbi
Svavar Guðmundsson (IP-tala skráð) 10.7.2008 kl. 09:43
tu ert yndislegur.
Vilberg Olafsson (IP-tala skráð) 11.7.2008 kl. 07:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.