7.7.2008 | 16:02
Klístruð spakmæli
Á hverjum tíma eru uppi framsýnir snillingar sem láta út úr sér spakmæli sem verða fleyg. Spakmæli sem hjálpa komandi kynslóðum að skilja lífið, skilja tilveruna, skilja sjálfar sig, sjá heiminn nýju ljósi, læra af fortíðinni, verjast vítin og breyta rétt. Egozentric Designs® París, London, Róm, New York, leitar stanslaust leiða til að auka hróður sinn og stöku sinnum er einn og einn framsýnn snillingur notaður sem lyftistöng. Aðalhönnuðinum þótti vel við hæfi að taka þessi klístruðu spakmæli, velta þeim upp úr fiðri og láta þau fljúga.
Klístruð spakmæli. Verð 4000 kr. Stærðir: 1-100. Land vinar: Ísland. Nafn vinar: Steingrímur J. Sigfússon
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Ljóð
Ferðasaga
Einn dag fyrir átta árum
með eimskipi tók ég far.
Nú man ég því miður ekki
hver meining ferðalagsins var.
En einhverra orsaka vegna
að endingu landi var náð.
Og það var með ánægju þegið,
því þetta var skipsstjórans ráð.
Og svo hef ég verið hér síðan
og sofið og vakað og dreymt.
En eins og ég sagði áðan,
er erindið löngu gleymt.
Athugasemdir
Þessi sami maður tilheyrir í dag grátkórnum sem heldur því fram að einhver skortur sé á samkeppni á milli íslenskra símfyrirtækja (ca. 1 dreifikerfiseigandi fyrirtæki á hverja 100 þús. íbúa á Íslandi) og vill að ríkisvaldið sigi verðlagseftirlitinu (oft kallað Samkeppniseftirlitið) á þau til að hækka sum verð (undirverðin) og lækka önnur (okurverðin), en samt ekki að öll verð verði eins (ólöglegt samráð).
Geir Ágústsson, 7.7.2008 kl. 16:51
Ég á myndbandi ungt skáld sem kveikti óvart í eldfimu ljóði:) á meðan á upplestri stóð. Í dag væri þetta kallað gjörningur....
Birgitta Jónsdóttir, 8.7.2008 kl. 10:59
He he, eitthvað rámar mig í það. Það væri gaman að sjá þetta við tækifæri?
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, 8.7.2008 kl. 17:00
ég er að reyna að koma þessu yfir á stafrænt....
maður gæti líka haldið bíókvöld:)
við létum taka upp alla uppákomuna
og hún er vægast sagt barn síns tíma:....:
Birgitta Jónsdóttir, 9.7.2008 kl. 09:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.