11.7.2007 | 17:28
Sniðug uppfinning
Rakst á þetta myndbrot áðan. Algjört undratæki. Verður næsta æði á Íslandi.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Ljóð
Ferðasaga
Einn dag fyrir átta árum
með eimskipi tók ég far.
Nú man ég því miður ekki
hver meining ferðalagsins var.
En einhverra orsaka vegna
að endingu landi var náð.
Og það var með ánægju þegið,
því þetta var skipsstjórans ráð.
Og svo hef ég verið hér síðan
og sofið og vakað og dreymt.
En eins og ég sagði áðan,
er erindið löngu gleymt.
Athugasemdir
Ég held að þetta sé ekki jólagjöfin í ár það er Wellamed nuddpúðinn frá púðakónginum í Danmörku.Hann er nú á leið um landið og bjargar fólki frá vöðvabólgu og hjálpar því að slappa af, ótrúlegt en satt,,,,,,,,,,,,,,,,,,töfrapúðinn er komin til að vera.
Magga drottning (IP-tala skráð) 11.7.2007 kl. 17:40
He he he, já það má segja að nuddpúðinn sé kominn með samkeppni! En getur púðakóngurinn ekki bara bætt við vörulínuna einu svona tæki? þá geta notendur nuddpúðans þurrkað af sér nuddolíuna án þess að þurfa að káma rúlluna út.
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, 11.7.2007 kl. 17:49
Æ, hvað getur maður sagt. Mörg eru þægindi mannanna.
Þarf maður ekki klósettpappír sem er forhitaður í 38 gráður með digital stilli sem ákvarðar lengd pappírsins? Ef þú ert grænmetisæta þá gerirðu "enter" við gulrótina og færð eitt blað. Ef þú étur allt þá merkirðu við ruslatunnuna og svo "enter", þá færðu 5 blöð.
Gunnar Th. Gunnarsson, 11.7.2007 kl. 18:04
he he he
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, 11.7.2007 kl. 22:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.