15.2.2007 | 20:06
Bloggvandræðaframhaldssagan
Óbyggðaferð er ekki heppilegur vefskjár fyrir Moggablogg. Eldrefurinn virkar hins vegar mjög vel. Til dæmis sást stjórnborðið sem sjá má á myndinni ekki í Óbyggðaferð. Eina sem ég gat gert var að skrifa texta. Ekkert annað. Ekkert. Er nema von að ég hafi verið skúffaður út í Moggablogg?
Ungu mennirnir á Mogganum verða að taka sig á og útbúa bloggið sitt þannig að virki í Óbyggðaferð. Óbyggðaferð er það forrit sem Makkanotendur nota hvað mest.
Þetta er eiginlega algert hneyksli, því nú er ég búinn að gera hitt bloggið mitt svo flott. Spurning hvort ég geri þetta blogg ekki að almennu blaðri um allt og ekkert, en læt Heimsvernd, Egozentric Designs® og fleiri hluti á hinn staðinn.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Af mbl.is
Ljóð
Ferðasaga
Einn dag fyrir átta árum
með eimskipi tók ég far.
Nú man ég því miður ekki
hver meining ferðalagsins var.
En einhverra orsaka vegna
að endingu landi var náð.
Og það var með ánægju þegið,
því þetta var skipsstjórans ráð.
Og svo hef ég verið hér síðan
og sofið og vakað og dreymt.
En eins og ég sagði áðan,
er erindið löngu gleymt.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.