Leita í fréttum mbl.is

Stjórnmála-Aznar og fjölskyldu-Aznar

Mér er sönn ánægja af að tilkynna að ég er að rita ævisögu Jose Maria Aznar og mun hún koma fyrst út á Íslandi af öllum löndum heims og verður 3980 blaðsíður í stóru broti.

Titill bókarinnar verður að öllum líkindum: Stjórnmála-Aznar og fjölskyldu-Aznar. Með því legg ég áherslu á tvær helstu hliðar þessa stórbrotna manns.

Hef verið að velta fyrir mér fleiri titlum eins og Þetta er Aznar Guðjón, en ég hef átt í vandræðum með að tengja Aznar og Guðjón Þórðarson saman þar sem þeir þekkjast ekki og hafa aldrei hizt.

Um tíma bræddi ég með mér að kalla bókina Aznarskapur eða Aznarskaft en fannst þeir titlar ekki nógu grípandi.

Titlar sem komu til greina á tímabili voru: Þetta er Aznar asnar. Halló Aznar. Aznar í náttúru Spánar og Aznar og aðrir stjórnmálamenn.


mbl.is Vill Aznar sem forseta ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Mér þykir þú góður ef þú kemur þessu fyrir á 3980 síðum. Þarna verður varla annað en stiklað á stóru.

Ragnhildur Kolka, 14.11.2009 kl. 18:42

2 Smámynd: Sigurgeir Orri Sigurgeirsson

Hafðu engar áhyggjur kæra Ragnhildur, þetta er fyrsta bindið, frá 1 til 25 ára.

Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, 17.11.2009 kl. 14:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson

Fyrir mér er sannleikurinn mikilvægastur. Mörgum svíður undan sannleikanum. Það verður bara að hafa það. Sannleikurinn blívur.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 114025

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband