Leita í fréttum mbl.is

Kjósið Ómar

Hrikalegt er fyrir aðalhönnuðinn að horfa upp á vin sinn engjast um í snöru vestrænna viðhorfa sem taka ekkert tillit til aðstæðna heimafyrir. „Skilningsleysi á innlendum aðstæðum“ er rétt að kalla þessar ofsóknir, rétt eins og ráðamenn Íslands segja þegar útlendingar hvá yfir háu vínverði, ríkisstyrkjum til landbúnaðar, verðtryggingu og háum söluskatti. Egozentric Designs™®© London, París, Róm, Amsterdam, stendur við bakið á sínum. Styrkið Ómar, styrkið Egozentric og kjósið að kaupa Egozentric bol. Darfúr er paradís á jörðu. Þjóðernishreinsanir eru ekki þjóðernishreinsanir, heldur almenn hreingerning þar sem þjóðernið er hreinsað burt, enda er það bara skítur sem festist undir skónum. Súdan hefur ekki kallað allt ömmu sína hingað til og það hefur Ómar ekki gert heldur. Munið: Milljónasta hver króna af seldum bol er lögð inn á einkareikning viðkomandi vinar í Sviss til baráttunnar fyrir betri heimi.

Vote for Omar

Vote for Omar al-Bashir. Verð 4000 kr. Stærðir 1-100. Land vinar: Súdan. Vinur: Ómar frændi.  


mbl.is Ákærur birtar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ef þér er alvara þá ættirðu að skammast þín.

Atli Viðar Hafsteinsson (IP-tala skráð) 15.7.2008 kl. 12:11

2 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

hahhahaha góður

Brynjar Jóhannsson, 15.7.2008 kl. 12:49

3 Smámynd: Sigurgeir Orri Sigurgeirsson

Ég biðst velvirðingar ef írónían hefur farið framhjá þér.

Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, 15.7.2008 kl. 17:07

4 identicon

Þú fyrirgefur, ég var ekki viss. :) Írónía er gríntegund sem fer oft framhjá mér.

Atli Viðar Hafsteinsson (IP-tala skráð) 16.7.2008 kl. 09:14

5 Smámynd: Sigurgeir Orri Sigurgeirsson

Ekki málið . Ekki láta þér bregða þótt það séu fleiri svona „vafasöm“ dæmi í þessu blogi.

Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, 16.7.2008 kl. 17:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson

Fyrir mér er sannleikurinn mikilvægastur. Mörgum svíður undan sannleikanum. Það verður bara að hafa það. Sannleikurinn blívur.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 114040

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband