Leita í fréttum mbl.is

Hvert flýtur Morgunblaðið?

Í greinaflokki sem byrjaði að birtast í Morgunblaðinu í dag (sunnudag 14. október) um loftslagsmál ogJafna sig? kynntur er á forsíðu með fyrirsögninni: „Fljótum sofandi að feigðarósi“ (og inni í blaðinu: „Út í loftið“ og „Tími efans er liðinn“) er fjallað um ósónlagið undir fyrirsögninni: „Ósónlagið að jafna sig.“ Nú veit ég ekki hvaða heimildir Morgunblaðið styðst við (Halldór Björnsson?), en samkvæmt mælingum NASA var ósóngatið yfir Suðurskautinu í metstærð á síðasta ári, 2006. Var þetta etv. misprentun? Átti kannski að standa: „Ósóngatið að jafna sig“? 

Hversu mikið mark er takandi á svona „fréttaflutningi“?Aldrei stærra

Tími efans er sannarlega ekki liðinn, efinn um að blaðamenn og leigupennar Morgunblaðsins láti vísindin þvælast of mikið fyrir sér við að boða það sem hefur yfir sér mörg einkenni trúar. Í umfjöllun um loftslagsmál er mjög áberandi óþol gagnvart sjónarmiðum sem ekki styðja tiltekna skoðun. Hversvegna er það? Við hvað eru hinir sannfærðu svona hræddir? Þeir sem efast eru umsvifalaust kallaðir öfgahægrimenn þótt þeir bendi einungis á staðreyndir. Er nema von að mönnum verði hugsað til nornabrenna miðalda?

Undir fyrirsögninni á forsíðunni („Fljótum sofandi að feigðarósi“) er dæmigerð Moggafrekja um að ríkið verji meira fé til málaflokksins, það sakað um andvaraleysi og hvaðeina. Svona frekja kallast: „Grenja pening út úr ríkinu“ og er líka mjög áberandi á Ríkisútvarpinu, en margar fréttir þar snúast um að nú þurfi ríkið að verja meira fé til þessa og hins. Bent er á eitthvert „hneyksli“ og síðan heimtað að ríkið geri eitthvað í málinu. 

Meðan Morgunblaðið birtir einhliða og villandi umfjallanir er ljóst hvert það flýtur, það flýtur smátt og smátt lengra niður eftir uns það rennur út í sandinn.

--- 

Ps. Al Gore ætlar að gefa verðlaunaféð sem hann fékk í umhverfissjóð – sem hann sjálfur stofnaði og stjórnar. Góðmennsku hans eru engin takmörk sett! Hann gefur sjálfum sér peningana.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson

Fyrir mér er sannleikurinn mikilvægastur. Mörgum svíður undan sannleikanum. Það verður bara að hafa það. Sannleikurinn blívur.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 114015

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband