Leita í fréttum mbl.is

Var á leið á Elvis tónleika daginn eftir að hann dó (2)

Halla Sigurgeirsdóttir var eftirvæntingarfullur unglingur 16. ágúst 1977 því hún var á leið á tónleika. Tónleika með engum öðrum en Ella Prestsins, Elvis Presley, í Portland í Bandaríkjunum þann 17. ágúst. Róbert frændi hennar ætlaði með og búið var að kaupa miða. En þá tekur kóngurinn upp á þeim óskunda að yfirgefa bygginguna fyrir fullt og allt. Þau fengu miðana endurgreidda en voru samt súr að missa svona naumlega af honum. Síðan þetta gerðist hefur Halla aldrei verið notuð sem lukkudýr, hvorki í fjölskyldunni né annarsstaðar.

Á myndinni er Halla Sigurgeirsdóttir rúmum tveimur árum áður en hún missti af Presley-tónleikunum. Með henni á myndinni eru bræður hennar, Sigurgeir Orri og Jónas Björn.

Halla Sigurgeirsdóttir og bræður hennar tveir


mbl.is Þrjátíu ár frá andláti Elvis Presley
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta er æðððði... þessi mynd. ómæ ómæ :)

Magga frænka (IP-tala skráð) 16.8.2007 kl. 21:40

2 identicon

Þetta er stórkostleg mynd! Sjaldan séð jafn fína fermingardömu og litlu villingarnir óvenju stilltir og fínir. Skildi hún vera að reyna að taka fingurinn út úr nefinu á Jónasi Birni. Var annars heldur spæld yfir því að kóngurinn skyldi hrökkva upp af einmitt þegar ég var á leið að berja goðið augum og eyrum.

Halla (IP-tala skráð) 16.8.2007 kl. 22:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson

Fyrir mér er sannleikurinn mikilvægastur. Mörgum svíður undan sannleikanum. Það verður bara að hafa það. Sannleikurinn blívur.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 114001

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband