Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2010

Orð og athafnir fylgjast ekki að

Dæmigert fyrir þessa menn, orðagjálfrið er algjörlega úr sambandi við athafnir. Þetta sýnir afar vel að jafnréttismál eru ekki ofarlega í huga þeirra. Þetta er áminning til allra að hlusta ekki á orð heldur líta eftir athöfnum. Hér töluðu athafnirnar einfalt tungutak sem allir skilja. Það var ekki fyrr en bent var á lagabrotið að þeir rönkuðu við sér. Munu jafnréttissinnar kjósa þessa flokka áfram?

það er raunverulega skelfileg tilhugsun að það skuli sett á nefnd til að finna leiðir til frekari skattahækkana ofan á þær sem nú þegar eru komnar. Þeir sem nú fara með völdin eru úti á þekju í þessum málum, fara ekki að ráðum sérfræðinga, heldur láta gamlar kreddur eða „hugsjónir“ - sem eiga rætur að rekja til sósíalismans og hafa allstaðar verið afsannaðar - ráða ferðinni.

Þegar skattar voru lækkaðir síðast, amaðist núverandi fjármálaráðherra við þeim, þær væru glapræði á þenslutímum. Skattalækkanir myndu auka útgjöld almennings og auka þensluna enn frekar. Miklu skynsamlegra væri að ríkið tæki þessa peninga (eða héldi þeim eftir). Eins og það sé trygging fyrir minni þenslu. Ekki þarf að líta annað en út á Reykjavíkurhöfn til að sjá hvílík þvæla þetta er, þar er ríkið að sólunda fé í svo miklum mæli að undrun sætir. Bílakjallarinn undir tónlistarhallarglapræðinu, er sá stærsti á landinu. Hann er í boði Vinstri Grænna. Gjörið svo vel.

Og nú, þegar kreppir að, þá er heldur ekki hægt að lækka skatta. Nú þarf ríkið enn meira. Á meðan aðrar þjóðir lækka skatta til að örva efnahagslíf fara Íslendingar þveröfuga leið og hækka þá og draga þannig máttinn enn frekar út fólkinu í landinu (eins og almenn efnahagslögmál eigi ekki við hér). Það er hlægileg della að halda að peningunum sé best fyrirkomið hjá ríkinu. Dæmið um tónlistarhöllina sannar það.

Stjórnmálamenn sem buðu sig fram sérstaklega til að gæta hags almennings reyndust bara vera að leika sér á launum, leika sér í stjórnmálaleik algerlega grunlausir um að húsið var að brenna ofan af þeim. Halda menn virkilega að hærri skattar séu lausnin? Aldeilis ekki. Það þarf að draga úr umsvifum ríkisins um lágmark tvo þriðju. Ríkisbáturinn er að fyllast. Þess verður ekki langt að bíða að hann sekkur undan bákninu. Stærsta verkefni vorra tíma er að minnka umsvif ríkisins.

Ég sakna þess að sjá ekki löglega skipaða nefnd sem leggur til hugmyndir um niðurskurð hjá ríkinu. Af nógu er að taka.


mbl.is Skipar starfshóp að nýju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skilja ekki einföldustu hluti

Þessar skattahækkanir eru vísbending um að ráðandi stjórnmálamenn skilji ekki einföldustu hluti varðandi skattlagningu og hámörkun afraksturs af henni. Eðlilegra er að fella niður aðkomugjöld til landsins. Það myndi skila sér í miklu hærri skatttekjum í gegnum háskattaða vöru og þjónustu sem ferðamenn kaupa meðan á dvöl þeirra stendur.

Og á meðan stjórnmálamenn tala hátt um að nú þurfi að auka reglur og eftirlit með fjármálastarfsemi komast þeir upp með að leggja á ofurskatta, til dæmis í nafni samgöngubóta, en nota svo aðeins brot af skatttekjunum til samgöngubótanna. Svo virðist að stjórnmálamenn telji sig óháða einmitt því aðhaldi sem þeir telja að skorti annars staðar.

Til að kóróna ósvífnina leggja stjórnmálamennirnir fram tillögur að aukinni skattheimtu á samgöngurnar í landinu, til þess, jú, að bæta samgöngur. Ekki er nein ástæða til að trúa því.


mbl.is Gagnrýna kostnaðarhækkarnir á flugfélögin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afleiðingar bannsins

eru þær að starfsemin fer í undirheimana. Þessi frétt er fyrirtaks dæmi um það. Eftirspurnin er til staðar og þegar svo er, færist starfsemin einfaldlega út fyrir lög og rétt.

Eðlilegra væri að gefa sölu á líffærum, eins og nýrum, frjálsa. Það myndi lina þjáningar þúsunda manna og koma í veg fyrir annan eins fjölda af dauðsföllum. Þeir sem harðast börðust fyrir lögum gegn líffærasölu, eins og til dæmis Al Gore, eru vegna þess ábyrgir, amk. að hluta til, fyrir dauða margra manna. Þetta er oft afleiðingin af gjörðum vel meinandi, en grunnhygginna stjórnmálamanna.

Nýlegar rannsóknir sýna að fórnfýsi manna er minni en talið var til skamms tíma.


mbl.is Handtekinn grunaður um líffærasölu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson

Fyrir mér er sannleikurinn mikilvægastur. Mörgum svíður undan sannleikanum. Það verður bara að hafa það. Sannleikurinn blívur.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 113945

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband