Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2008

Forseta hýbýlailmur

Hver kannast ekki við að þurfa að anda að sér miður skemmtilegum fnyk heima hjá sér? En ekki lengur. Með nýja Forseta hýbýlailminum þarf enginn að finna skítalykt lengur. Léttur úði úr sérhönnuðum úðabrúsanum eyðir allri ólykt á augabragði og fyllir öndunarfærin af aðlaðandi og saklausum rósailmi. Ekki nóg með það, heldur er nýi Forseta hýbýlailmurinn þeirrar náttúru gæddur að hann eyðir gömlum sárindum, fortíðarpest, nálykt af dauðum kennisetningum og fúkkalykt svikinna hugsjóna á svipstundu, svo þú getur andað hreinu lofti djúpt í lungun og boðið keikur og hress, alþýðlegur, ef ekki trúðslegur, hverjum sem er í heimsókn í ferskan og saklausan rósailminn.

Forseta hýbýlailmur

Forseta hýbýlailmur. Láttu ekki gamla pest angra þig, úðaðu saklausum rósailmi yfir þig og þína og þú verður sem nýsleginn túskildingur, tilbúinn í hvað sem er, virðulegur og gáfulegur. Stærð 1-100. Litur: Þjóðlegur. Verð 8999 kr.


Ekki sanngjarnt

Það er ekki sanngjarnt gagnvart þeim sem lifað hafa og dáið á Íslandi í þau rúmu þúsund ár sem landið hefur verið í byggð, að segja að bara 300 þúsund manns hafi fengið þá gjöf að vera Íslendingur. Þeir eru miklu fleiri. Þetta er dónaskapur við forfeður okkar.

Það er heldur ekki sanngjarnt að ríkið geri handbolta hærra undir höfði en öðru tómstundagamni. Eitt skal yfir alla ganga: Stattu sjálfur straum af áhugamálum þínum. Ríkið getur hjálpað til með því að lækka skatta svo fólk hafi meira fé milli handanna í áhugamál sín. Ef einhver vill til dæmis gefa 50 milljónir í handbolta, þá gefi hann sitt eigið fé, ekki fé annarra sem innheimt er með nauðungargjöldum.


mbl.is Ótrúleg gjöf að vera Íslendingur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forseta svínastíur

Hver kannast ekki við að hafa lent í vandræðum með svínastíuna sína? En ekki lengur. Með nýju forsetasvínastíunni frá Egozentric™®© þarf enginn að hafa áhyggjur af svíninu sínu. Svínastían er  háþróuð afurð áratuga rannsókna færustu vísindamanna heimsins. Í stað gerðis, sem er einn stærsti kostnaðarliður við svínastíur, er svínið dáleitt, því talið trú um að umhverfis það sé traust gerði sem engin leið sé að brjótast út úr. Einhverjir kunna að halda að með því að ljúga að svíninu sé verið að brjóta á náttúrulegum rétti þess (öll dýrin eru jöfn osfrv.). En með því er bara hálf sagan sögð. Svín eru í eðli sínu lygarar, þau eru tækifærissinnar og eru fljót að þefa uppi, með sínu næma trýni, veikleika hjá öðrum sem koma þeim sjálfum vel. Svín eru engir vinir vina sinna og svíkja þau umsvifalaust ef það er þeim sjálfum til góða. Þeir sem vinna fyrir svín eru yfirleitt ginningarfífl sem látið hafa svínið ljúga að sér. Þessvegna er ekkert að því að ljúga að svínum, dáleiða þau og láta þau halda að þau búi í forsetahöll þegar þau í raun búa bara á gömlum sveitabæ.

Forseta Svínastíur

Forseta svínastíur. Litur: Svínsbleikur og skarnabrúnn. Stærð 1-100. Stærsti kostnaðarliður svínastía er gerðið, en með því að útiloka það er hægt að bjóða svínastíuna á hlægilega góðu tilboðsverði. Fyrir aðeins 1,5 milljónir færðu svínastíu með öllu tilheyrandi nema svíninu. Tilboð sem ekki er hægt að hafna. Ef þú hefur ekki efni á svínastíunni geturðu alltaf keypt bolinn. Hann er á tilboðsverði líka. Kostar aðeins 5999 krónur. 


Tæfan frá Tævan

Ég var að lesa þessa afbragðs bók sem bókaútgáfan Ugla sendi nýlega frá sér. Ég hef alltaf verið svag fyrir harðnöglum sem svífast einskis við að fullnægja réttlætinu. Það er ánægjulegt til þess að vita að einhver heldur uppi merki fagurbókmenntanna í þessu landi.

Tæfan frá Tævan


Lama Dalai Lama

Ég verð nú að segja það fyrir mitt leyti að mér finnst þetta frekar klúðursleg fyrirsögn.

Lama Dalai Lama


Gamlir bolir á útsölu

Við tiltekt í vöruskemmu Egozentric™®© við Times Square í New York fannst nýlega talsvert magn af gömlum bolum sem gerðir voru fyrir traustan viðskiptavin, nefnilega gamla og góða DV þegar Jónas virðingarverði Kristjánsson réði þar ríkjum. Jónasi fannst mikilvægt að þjóðin vissi hvers konar vitleysa Hvalfjarðargöngin væru og lét gera þessa boli af því tilefni. Með bolunum fylgdi þessi auglýsingatexti: „Hvaða fávita datt það annars í hug að hægt væri að grafa göng undir Hvalfjörðinn? Gerði hann sér enga grein fyrir því að ævintýrið væri dæmt til að mistakast? Sjórinn á eftir að leka inn í þau eins og vodka ofan í Jeltsín Rússaforseta og draugfylla þau, ef þakið verður ekki hrunið áður. Það mætti halda að við séum komin í hveitibúðina í París þar sem súrrealistarnir átu sitt hveiti! Heimurinn sannarlega versnandi fer, fólk verður sífellt vitlausara og kýs yfir sig sífellt heimskari stjórnmálamenn. Hvar er samtakamáttur þessarar aumingjaharðar, af hverju rís hún ekki upp og mótmælir?“

Hvalfjarðargöngin eru martröð

Hvalfjarðargöngin. Martröð þjóðarbúsins á næstu árum. Jónas Kristjánsson 27. febrúar 1996. Sýndu andúð þína og framsýni í verki og mótmæltu þessari vitleysu sem Hvalfjarðargöngin sannarlega eru. Stærðir 1-100. Litur: Hvítur og rauður eins og DV. Sérstakt útsöluverð: 1 kr. meðan birgðir endast. Sendingarkostnaður ekki innifalinn. 


Kartaflan og óbermið

Ímynd frambjóðenda í kosningum er mikilvæg. Egozentric™®© er með fremstu ímyndarhönnunarstofum sólkerfisins. Það er því ekki að undra að báðir frambjóðendurnir í forsetakosningunum í Bandaríkjunum skyldu ráða Egozentric™®© til að starfa fyrir sig. Eina sem skiptir Egozentric™®© máli er frægð og frami og meira fé. Málstaður frambjóðendanna skiptir engu máli í þessu sambandi. En taka verður fram að andstæðingar hvors um sig réðu Egozentric™®© til að níðast á hinum. Þannig er það í þessum heimi. Meðan hægt er að græða á því verður bara að hafa það.

 Steikið McCain en kjósið ekki

Steikið MacCain franskar en kjósið þær ekki. Segðu það með bol, ekki vera skoðanalaus sófakartafla. Stærðir 1-100. Litur Rauður. Verð 9999 kr.

Óbermi

Óbermi. Segðu það með bol, vertu frjálslyndur í hugsun sem og hegðun. Stærðir 1-100. Litur Rauður. Verð 9999 kr.

Hin farsæla hönnunarstofa Egozentric Designs™®© París, London, Róm, Mílanó, New York, Los Angeles, Tokyo, Peking hefur fengið aukna samkeppni og það frá litla Íslandi! Aðeins fífldjarfir menn leggja út í slíkt ævintýri. En að vissu leyti er Egozentric™®© upp með sér að einhverjir sjái sig knúna til að apa eftir henni. Það er besta hrós í heimi. Þetta er líka hvatning til Aðalhönnuðarins að gera betur í dag en í gær.


Forseta munnskol

Ert þú einn af þeim sem hafa sagt eitthvað sem þú sérð eftir? Sagt eitthvað í hita leiksins sem stenst enga skoðun? Tekið upp málstað sem reyndist vera eitthvert mesta kjaftæði sem um getur? Logið upp í opið geðið á fólki hvort þú ert til dæmis trúaður eða ekki? Þóst hafa áhuga á einhverju máli sem þér er drullusama um bara til að ganga í augun á fólki? Ef svo er þarftu ekki að örvænta vegna þess að nú er komið á markað nýtt munnskol, Forseta munnskol sem skolar ekki bara burt drulluna úr munninum heldur líka samviskubitið vegna alls þess sem þú sagðir og gerðir en hefðir betur sleppt. Með nýskolaðan munninn upp úr Forseta munnskoli gengurðu keikur um velli með hökuna uppi og spakmæli á hraðbergi. Virðulegur og aðsópsmikill eins og réttborinn aðall á kostnað ríkisins í veröld þar sem allir eru jafnir hvort sem þeir hafa tvo fætur eða fjóra.

 Forseta munnskol

Forseta munnskol. Skolaðu burt óþægindin og vertu eins og nýsleginn túskildingur sama hversu mótsagnakenndur þú ert. Stærðir 1-100. Sérstakt tilboðsverð: 8999 kr. Allur ágóði af sölu bolarins fer í verðlaunasjóð sem mun renna óskiptur til þess sem fyrstur finnur hina margumtöluðu Moggalygi kaldastríðsáranna.


Forseta plasthnífapör

Hver kannast ekki við minnimáttarkenndina sem fylgir því að borða kótilettu með plasthnífapörum? En ekki lengur. Með nýju einnota hnífapörunum í Forsetaseríu Egozentric™®© líður engum eins og Hvergerðingi. Aðeins virðulegir menn nota forseta einnota hnífapörin.

Forseta einnota hnífapör

Forseta einnota hnífapör. Plasthnífurinn bítur miklu betur þegar þú veist að forsetinn notar samskonar vöru. Stærð 1-100. Litur: Þjóðlegur. Verð 9999 kr.


Hvatvísi hönnuðurinn

Lesendur verða að virða það við eignanda þessa bloggs að hann leyfir hönnunarstofu sem kallar sig Egozentrig að nota þessa síðu til að auglýsa vörur sínar. Það er í fínu lagi svo lengi sem ekki er farið rangt með hluti eða þeir ekki fyllilega útskýrðir.

Aðalhönnuðurinn, eins og einn hönnuða stofunnar kallar sig, er enginn sérfræðingur í skattamálum en hann er hvatvís og segir stundum hluti sem eru hárréttir, en þó ekki kórréttir.

Varðandi skattinn sem kallaður er því ljóta og óviðeigandi nafni virðisaukaskattur verður að bæta því við athugasemdir aðalhönnuðarins um hann að hann er yfirfærsla á útlendu fyrirbæri sem fundið var upp í Frakklandi á sjötta áratug síðustu aldar. Í enskumælandi löndum er hann kallaður „value added tax“ VAT og er frábrugðinn söluskatti á þann hátt að hann er lagður á vöru og þjónustu á öllum stigum, en bara neytandinn greiðir hann, heildsalar og milliliðir nota hann sem innskatt og útskatt. Ástæðan fyrir því að franski ríkisstarfsmaðurinn fann hann upp var sú að auðvelt er að svindla á söluskatti sem lagður er á vöru á síðasta stiginu, það er í smásölunni. Ef söluskatturinn fer yfir 10% verða undanskotin mjög mikil. Það er ekki hægt í raun og veru að hafa hærri söluskatt en 10% vegna þess. En ríkið vill miklu hærri söluskatt, það vill amk. 25% skatt. Þess vegna var VAT kerfið fundið upp. Það eru betri heimtur af þeim skatti vegna innskatts útskatts - kerfisins í honum. Aðalhönnuðurinn hafði rétt fyrir sér varðandi það að skatturinn er ekkert annað en söluskattur, bara í þróaðra formi. Hann hafði líka rétt fyrir sér að nafnið á skattinum er bastarður. Virðisaukinn í orðinu vísar til þeirrar hækkunar sem verður á vörunni frá upphafi til enda, frá framleiðanda til milliliðar til neytanda.  Álagningarskattur væri réttara orð. VSK er aumingjaleg eftiröpun á enska orðskrípinu VAT og er þeim sem að komu til minnkunar. Þeir hefðu einfaldlega átt að breyta söluskattinum, gera hann að þessu franska fyrirbæri sem sannarlega er skilvirkari og gerir ríkissjóð gildari fyrir stjórnmálamenn að sólunda úr. Það sem aðalhönnuðurinn hafði rangt fyrir sér með var að söluskatturinn er ekki notaður allstaðar í útlöndum þótt hann sé vissulega notaður, td. í Bandaríkjunum, heldur VAT skatturinn.

Síðasti hlekkurinn í VAT keðjunni er sá að hægt er að fá hann endurgreiddan, td. á flugvöllum, sé maður á leið úr landi. Það er kallað „Tax Free“. Í Bretlandi, því vesala landi, er vissulega hægt að fá endurgreiddan skattinn, en það er svo illa kynnt að búrið á flugvellinum (Stanstead minnir mig) þar sem tekið er við bevísum er nánast ekki hægt að finna; málað í gráum felulitum í afviknu skoti, engin skilti. Ég lenti eitt sinn í því í Bretlandi þegar ég ætlaði að fá endurgreiddan skattinn að ég fann hvergi búrið og taldi að það hlyti að vera hinum megin við vegabréfs-eftirlitið. Ég hafði rangt fyrir mér og fékk ekki að fara til baka til að ganga frá málinu. Ég varð fox-illur og bölvaði ríkisstarfsmönnum í Bretlandi í sand og ösku og einsetti mér að versla aldrei nokkurn skapaðan hlut í því skítalandi. Sem ég hef staðið við. Milljónir manna hafa án efa lent í þessu sama. Margt smátt gerir eitt stórt og ég er viss um að með þessum feluleik eru Tjallarnir að tapa en ekki græða.

Eitt mega ríkisstarfsmenn eiga og það er að enginn stendur þeim á sporði við að finna út nýjar aðferðir við að innheimta og leggja á skatta. Nú vantar okkur bara stjórnmálamenn sem vilja lækka þá og minnka umsvif ríkisins, það er lang stærsta verkefnið sem fyrir komandi kynslóðum liggur.

Þetta var lexía dagsins um skatta.


Næsta síða »

Höfundur

Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson

Fyrir mér er sannleikurinn mikilvægastur. Mörgum svíður undan sannleikanum. Það verður bara að hafa það. Sannleikurinn blívur.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 114002

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband