Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2008

Faldi markaðurinn og bældi markaðurinn

Það skemmtilega við markaðinn er að hann er allstaðar, en er að hluta til falinn og að hluta til bældur.

Faldi hlutinn er til dæmis ólöglegi fíkniefnamarkaðurinn (vond fíkniefni) og ólöglegi nýrnamarkaðurinn. Faldi hlutinn stendur fyrir allt sem plebbarnir geta ekki horfst í augu við að er markaðsvara og reyna að hindra fulltíða fólk í, sem þó ætti samkvæmt öllum náttúrulögmálum að ráða hvað það gerir við eigið líf og líkama, að nálgast. Þar sem er eftirspurn, þar er framboð. Þetta er jafn órjúfanlegt lögmál og þyngdarlögmálið. Ég á nýra, þig vantar nýra. Hvað ertu tilbúinn að borga? Kemur ríkinu það við? Á ég líkama minn eða ríkið?

Bældi hlutinn er til dæmis ríkisstyrkir til landbúnaðar og ríkissala hverskonar. Markaðurinn er bældur til að „bjarga“ bændum! Þeir sem tapa hvað mestu á þessu eru vesalings bændurnir. Þeir hjakka, leiðir og þungir og hræddir við breytingar, í sama farinu í stað þess að finna sér starf sem veitir þeim gleði og tilgang. Frjáls markaður myndi gera það fyrir þá. Ríkið hefur einkarétt á sölu víns (góð fíkniefni) og okrar á því undir þeim formerkjum að verið sé að vernda fulltíða fólk sem ætti samkvæmt öllum sólarmerkjum að ráða sér sjálft.

Heilagur Jeremías!


Litir stjórnmálaflokka

Stjórnmálaflokkar eru eins og fólk með marg-klofinn persónuleika; þeir þurfa að sýna á sér margar hliðar til að höfða til kjósenda. Þessar hliðar eiga oft og tíðum enga samleið. En það gerir ekkert til, aðalatriðið er að sigra í kosningunum.

Egozentric™®© París, Mílanó, London, Róm, hefur tekið að sér fyrir góðan viðskiptavin að hanna lúxusfatnað sem, ásamt því að vera glæsileg hönnun, sýnir tvær megin hliðar stjórnmálaflokkanna sem haldið er uppi af ríkinu á Íslandi. Verðið er sem fyrr einstaklega hagstætt.

Frjálslyndi flokkurinn

Frjálslyndi flokkurinn. Blár að utan en svartur að innan. Hægrisinnaður (blár) þjóðernisrembingur sem elur á útlendingahræðslu (svartur). Stærð 1-100. Verð 9000 kr. 

Vinstri grænir

Vinstri grænir. Grænn að utan en rauður að innan. Þykist vernda náttúruna (grænn) en er bara gamall kommúnistaflokkur með allar röngu lausnirnar (rauður). Stærð 1-100. Verð 9000 kr.

Framsóknarflokkurinn

Framsóknarflokkurinn. Grænn að utan og grænn að innan. Afturhaldssinnaður sérhagsmunaflokkur (grænn) sem stendur vörð um óhollt og rándýrt styrkjakerfi í landbúnaði (grænn). Stærð 1-100. Verð 9000 kr.

Sjálfstæðisflokkurinn

Sjálfstæðisflokkurinn. Blár að utan en grænn að innan. Hægri sinnaður framfaraflokkur sem leggur áherslu á einstaklingsframtak og frelsi (blár) sem þrátt fyrir það stendur vörð um óhollt og rándýrt styrkjakerfi í landbúnaði sem og ríkiseinokun á vínsölu (grænn). Stærð 1-100. Verð 9000 kr.

Samfylkingin

Samfylkingin. Ljósblá að utan en rauð að innan. Gefur sig út fyrir að vera frjálslyndur framfaraflokkur með lausnir og svör við öllu (ljósblár) en er í raun gamall forsjárhyggjuflokkur með eigin völd fyrst og fremst á stefnuskránni (rauður). Stærð 1-100. Verð 9000 kr.

Sjáfstæðisflokkurinn í Reykjavík

Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík. Bleikur að utan en blár að innan. Tímabundinn bolur fyrir síðustu kosningar. Mjúku fjölskyldumálin á oddinum (bleikur) en gamli góði Sjálfstæðisflokkurinn inn við beinið (blár). Stærð 1-100. Verð 29000 kr. (takmarkað upplag).


Kaupum Kaupum ekkert bolinn

Egozentric™®© París, London, Mílanó, New York, sér alltaf möguleika á að græða þegar aðrir sjá enga möguleika. Fátt er meira fullnægjandi en að selja harðsnúnum andkapítalistum vöru á deginum þeirra, Kaupum ekkert deginum.

Kaupum ekkert!

Kaupum ekkert! Aðeins seldur á Kaupum ekkert deginum. Stærð 1-100. Verð 8000.

Ekki vera fífl, ekki vera auli, ekki vera félagsskítur. Mótmæltu fyrir framan stjórnarráðið í rétta bolnum.


Bolurinn bleiki

Egozentric™®© París, London, Róm, New York, gerir hvað það getur til að breyta heiminum til hins betra. Hið hryllilega misrétti sem viðgengst gegn hundum, svínum og konum er ekki til fyrirmyndar, en á því má græða.

Feministafélag Íslands, sem Vefþjóðviljinn útnefndi Staðalfélag ársins 2006, er í fylkingarbrjóstum þeirra kvenna sem berjast gegn staðalímyndum. Um þetta sagði Vefþjóðviljinn: „Talsmaður Femínistafélags Íslands sagði að félag sitt hefði frá upphafi ákveðið að það hefði ekki aðeins merki, heldur lit. Bleikan lit nánar tiltekið, því bleikur væri litur stelpna en blár litur stráka. Megintilgangur félagsins er að berjast gegn „staðalímyndum“.“

Og hér er hann bolurinn bleiki gegn staðalímyndum. Takið þátt í baráttunni og hjálpið Egozentric™®© að „bjarga heiminum“.

Staðalímynd ei meir Frontur

Staðalímynd ei meir Frontur. Stærðir 1-100. Eingöngu fyrir konur. Litur. BLEIKUR eingöngu. Verð 5000 kr. Kaupendur verða að geta sannað kynferði sitt á staðnum. Ökuskírteini ekki tekin gild.

Staðalímynd ei meir Bak

Staðalímynd ei meir Bak.


Furðu líkar áhyggjur

Verðbólga, bankar í erfiðleikum, lágt gengi gjaldmiðilsins, dýrt bensín, niðursveifla í hagkerfinu, uppsagnir, atvinnuleysi, lækkandi fasteignaverð.

Þessar áhyggjur gætu verið klipptar út úr Morgunblaðinu. En eru það ekki. Heyrði þetta í útvarpinu hér í Kaliforníu syðri.

Ekki nóg með það heldur er kornið orðið svo dýrt að það borgar sig ekki lengur að framleiða etanól-eldsneyti úr því. Etanólævintýrið hefur kostað margan manninn mikið fé vegna þess að aukin eftirspurn eftir korni hefur hækkað verð matvæla sem búin eru til úr korni, til dæmis Kornflexi. Kelloggs hefur gripið til þess ráðs að minnka pakkana án þess að lækka verðið. Neytendur ekki hressir.

Þetta er ekkert, ég skal segja þér annað. Einn stærsti íbúðalánasjóður USA er farinn á hausinn vegna þess að hann lánaði, meðal annarra, 85 ára gömlum manni í hjólastól með ekkert lánstraust fyrir heilli íbúð.

Góðir Íslendingar, ekki örvænta. Þið eruð í sömu súpunni og allir aðrir.

Munið bara, og ég hef þetta eftir góðum vini mínum, að bankarnir eru ekki vinir ykkar.


Fyrir aðdáendur

Egozentric Designs™®© París, London, Róm, Tókíó, New York, Mílanó, Reykjavík, hefur eignast marga aðdáendur úti í hinum stóra heimi vegna eigingjarna starfa fyrir sjálfa sig. Egozentric Designs™®© vill ekki vera eftirbátur margra tískuhúsa td. Dolce og Gabbana (sem eru víst hættir saman) sem framleiða í miklu magni fatnað sem eru ekkert annað en auglýsingar fyrir þau sjálf. Hvað er snjallara en að gera viðskiptavinina að gangandi auglýsingum og láta þá borga fyrir það? Fátt. Egozentric Designs™®© tekur ofan fyrir slíkum snillingum og apar blygðunarlaust eftir þeim. Hér er hann, kæru aðdáendur, bolur handa ykkur fyrir sanngjarnt verð.

Egozentric™®©

Egozentric™®© Rauður. Stærðir 1-100. Verð 10,000. Sérhannað fyrir aðdáendur. Áritaður bolur: 100,000.

Egozentric™®©

Egozentric™®© Grænn. Stærðir 1-100. Verð 10,000. Sérhannað fyrir aðdáendur. Áritaður bolur: 100,000.

Mikilvægt er fyrir aðdáendur að vita að með því að kaupa vörur með merki eru þeir að staðsetja sig í heiminum, sýna að þeir eru menn með mönnum, konur með konum, menn með konum og konur með mönnum; sýna að þeir eru flottir, með á nótunum, þekkja fræga fólkið, eru heimsborgarar. Vellíðanin sem fylgir því að vera flottur er mikils virði. Þessvegna er verðið svona sanngjarnt.

Egozentric Svört Taska

Egozentric™®© Svört taska. Verð 10,000. Sérhannað fyrir aðdáendur. Árituð: 100,000.

Egozentric Gul Taska

Egozentric™®© Gul taska. Verð 10,000. Sérhannað fyrir aðdáendur. Árituð: 100,000.


Dýrkeypt mistök

Egozentric Designs™®© París, London, Mílanó, New York, Tokyo gerði þau mistök í viðskiptum nýlega – þau fyrstu í sögu stofunnar – að treysta heimildum. Þau voru svo sannfærandi rökin og allur vísindaheimurinn, sá yfirlesni amk., söng í einum kór að þetta væri staðreyndin. Þess vegna lét Egozentric Designs™®© framleiða 1 milljón þonga, og 1 milljón bróka með skilaboðum sem sannarlega áttu að falla í kramið hjá þeim sem trúa því að heimurinn sé að hlýna vegna sóðaskapar manna og vilja berjast gegn því. Salan var dræm og þegar farið var að kanna hvers vegna, kom í ljós að hitastigið er ekki að hækka í heiminum heldur lækka. Hver fer upp á Hellisheiði að mótmæla hlýnun í þonginu einu fata ef það er raunverulega að kólna? Aldeilis kaldhæðnislegt að verða úti við mótmæli gegn hlýnun og Egozentric Designs™®© vill ekki bera ábyrgð á því. En kuldi er „An inconvenient truth“ og blaðrið um hlýnun af mannavöldum er í raun eitt allsherjar „Assault on reason“. Egozentric Designs™®© komst að þessu of seint, en þó ekki of seint. Mótleikurinn er stórkostlegur, undir nýju undirmerki – 67° norður – verður sett á markað lína sem byggir á grunni boðskaparins um hlýnun af skítugum mannavöldum. Ástæðan fyrir því er einföld. Margir trúa boðskapnum enn, þótt ótrúlegt megi virðast, og því enn möguleiki á ofsagróða. En ofan á grunninum er reist ný höll, peningamylluhöll, fatalína sem snilldarlega praktísk, einföld, klassísk, þjóðleg og vænleg til afraksturs. Eins og áður eru skilaboð fólgin í hönnuninni sem sumir kynnu að telja mótsagnarkennd, en svo djúpt í árinni vill aðalhönnuðurinn ekki taka. Aðalatriðið er að trúa málstaðnum sama hvað helvítis staðreyndirnar segja.

Berjumst gegn alheimshlýnun lopapeysa

Berjumst gegn alheimshlýnun. Stærð 1-100. Verð 35.000.

Fight global warming wool sweater

Fight global warming. Stærð 1-100. Verð 35.000.


Berjumst gegn hlýnun heimsins

Vegna hinnar gífurlegu hættu sem steðjar að mannkyni vegna hækkandi hita vegna sóðaskapar manna setti Egozentic Designs™®© Tokyo, Canberra, Mílanó, Peking, nýlega á markað undirfatnað sem segir allt sem segja þarf og það á tveimur tungumálum. Verðið er sem fyrr einstaklega hagstætt, enda er það aðalhönnuðinum mikið hjartans mál að græða sem mest á alheimshlýnuninni. Vegna þess hve hlýtt er orðið, samkvæmt því sem Al Gore segir og byggir á öruggum gögnum, neyðast menn til að vera í þonginu eða brókinni einni fata við mótmælin. Hitinn hefur gert það að verkum að fataframleiðendur eru nú í vandræðum með birgðirnar. Það er ekki einu sinni hægt lengur að mótmæla í nærbolnum! Egozentric veit hvaða leik skal leika í þeirri stöðu: Gera fötin efnisminni. Ekkert efnisminna en snilld.

Fight global warming Women

Fight global warming Women. Stærð 1-100. Verð 10.000 kr. Vinur: Vinir jarðar.

Berjumst gegn hlýnun Kvenna

Berjumst gegn hlýnun Kvenna. Stærð 1-100. Verð 10.000 kr. Vinur: Vinir jarðar.

Fight global warming Men

Fight global warming Men. Stærð 1-100. Verð 10.000 kr. Vinur: Vinir jarðar.

Berjumst gegn hlýnun Karla

Berjumst gegn hlýnun Karla. Stærð 1-100. Verð 10.000 kr. Vinur: Vinir jarðar.


176 dagar fyrir hið opinbera

Ef þú hélst að húsið sem verið er að byggja á hafnarbakkanum í Reykjavík fyrir áhugafólk um klassíska tónlist sé greitt af einhverjum öðrum en þér skaltu hugsa þig tvisvar um og jafnvel þrisvar. Peningarnir koma ekki síður úr þínum vasa en annarra. Fyrir þessa peninga hefðir þú etv. getað keypt þér fullkomnustu hljómflutningstæki sem völ er á og gert stofuna þína að tónlistarhúsi þar sem hver pönk tónninn fær að njóta sín til fulls. Eða, þú hefðir getað varið fénu í annað, til dæmis sérhannaða boli frá Egozentric Designs™®© París, London, Malmö, Osló.

176 dagar fyrir hið opinbera

176 dagar fyrir ríkið. Verð 4000 kr. Stærðir 1-100. Vinur: Andríki

Egozentric Designs™®© harmar að fénu skuli varið í annað en Egozentric. En Egozentric Designs, París, London, Mílanó, New York, vill krækja í nokkrar krónur út á andúðina sem sannarlega er til staðar á tónlistarhúsinu og raunar allri þeirri stjórnlausu þenslu á ríkisútgjöldum sem nú á sér stað. Egozentric Designs™®© vill að ríkið kaupi eina milljón boli og gefi áhugafólki um þá í sérstaka áhugamálsgjöf. Alveg eins og ríkið er að gefa áhugafólki um klassíska tónlist sérstaka áhugamálsgjöf. Tryggir stjórnarskrá lýðveldisins ekki jafnrétti? Hví skyldu bolaáhugamenn ekki njóta sömu réttinda og áhugamenn um klassíska tónlist? Hér er á ferðinni klassískt dæmi um mismunun sem hvergi á heima nema í réttarsal stríðsglæpadómstólsins í Hollandi.


Kjósið Ástþór

Aðalhönnuður Egozentric Designs™®© var að láta taka til í vöruskemmu fyrirtækisins á Malibu-ströndinni nýlega og þá rákust starfsmenn á heilan gám af bolum fyrir einn af bestu viðskiptavinum fyrirtækisins. Ákveðið var að setja bolina strax á útsölu á mjög góðu verði í tilefni af því að núverandi forseti ætlar að vera í embættinu til ársins 2113.

Kjósið Ástþór

Kjósið Ástþór. Stærðir 1-100. Verð 5 kr.


mbl.is Embættistaka forseta verður 1. ágúst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson

Fyrir mér er sannleikurinn mikilvægastur. Mörgum svíður undan sannleikanum. Það verður bara að hafa það. Sannleikurinn blívur.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 114010

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband