Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2007
29.8.2007 | 23:28
Fékk flugu í buxnaskálmina
Veiðimaðurinn Sigurgeir Orri (40) varð fyrir þeirri sérkennilegu lífsreynslu í Veiðivötnum að fá flugu í buxnaskálmina en ekki höfuðið. Sigurgeir Orri veit ekki hvar flugan flæktist í skálmina, en hann fann hana er hann var að borða morgunverð mörgum dögum seinna. Ég var eitthvað að flækjast með fótinn aftur fyrir hinn og þá festist sokkurinn í einhverju. Ég spyrnti við og þá rifnaði bútur úr skálminni og öngullinn af flugunni, sagði Sigurgeir Orri. Ég veit ekki nákvæmlega hvaða fluga þetta er, en það kæmi mér ekki á óvart að þetta væri svört gnat númer 14, amk. er hún lík henni. Sigurgeir Orri þurfti að nota skæri til að losa krókinn úr skálminni og situr nú uppi með skemmdar buxur. Hann vill minna veiðimenn á að kasta ekki frá sér flugum á víðavangi þar sem þær gætu flækst í buxnaskálmum saklausra veiðimanna.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 23:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.8.2007 | 11:44
Lækkaðu þá útsvarið
Mynddiski með upplýsingum um ársreikning Kópavogsbæjar dreift í hús | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
24.8.2007 | 23:49
Tæknifulltrúi
Tækni er nútímamanninum mikilvæg. Tækni er eitthvað merkilegt og mikilvægt, flókið og heillandi. Sá sem stundar tækni er skör hærra en sá sem stundar ekki tækni. Þessvegna höfum við ræstitækni sem og málmtækni. Málmtæknirinn stundar málmsmíði, ræstitæknirinn skúrar.
Tungumálið tekur stöðugum breytingum í þessa veru og er það vel. Með nýjum viðskeytum fá jöskuð störf nýjan ljóma. Í ensku kveður nokkuð að þessu. Notaðir bílar, used cars, eru nú kallaðir fyrirfram áttir, pre owned. Það hljómar einhvern veginn betur. Sölumaður er nú sales associate, eða sales representative. Used car salesman er skammaryrði um óheiðarlegt fólk. Á íslensku er sölumaður notaðra bíla ekki enn skammaryrði. Í sölugeiranum á Íslandi er fulltrúi notað í stað tæknis. Sölufulltrúi, þjónustufulltrúi.
Svo vikið sé aftur að tækninni er alveg ljóst að fjölga má í tækni-geiranum. Mörgum þreyttum og klisjukenndum störfum veitti ekki af endurskilgreiningu. Málari er til dæmis einkar lúðalegt starfsheiti. Málningartæknir er strax miklu skárra og gefur málaranum aukna virðingu og upphefð. Leiðsögumaður er flokkast einnig undir þreytt starfsheiti. Nær væri að kalla þá leiðsögutækna, það lyftir þeim á enn hærra plan.
Hér fara nokkur starfsheiti sem mætti lappa upp á: Smiður: Smíðatæknir. Tannlæknir: Tanntæknir. Garðyrkjumaður: Garðyrkjutæknir. Hundatemjari: Hundatæknir. Leikskólakennari: Leikskólatæknir. Þerna: Þernutæknir. Tæknimaður: Tæknir. Saumakona: Saumatæknir. Ljósmyndari: Ljósmyndatæknir. Flugmaður: Flugtæknir. Heilaskurðlæknir: Heilaskurðtæknir. Sveitamaður: Sveitatæknir. Bóndi: Landbúnaðartæknir. Mjaltakona: Mjaltatæknir. Tónlistarmaður: Tónlistartæknir.
Sölumaður: Sölufulltrúi. Sölumaður: Þjónustufulltrúi. Þræll: Þjónustufulltrúi. Eldabuska: Matreiðslufulltrúi. Bókstafstrúarmaður: Fulltrúi. Kaþólskur prestur: Fulltrúi. Meðlimur í kaþólskum söfnuði: Auðtrúi. Meðlimir í öðrum söfnuðum: Auðtrúar.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.8.2007 | 11:00
Bókaormar
Í daglegu tali er oft minnst á bóka-orma. Sem er í hæsta máta eðlilegt. Það sem hinsvegar er óeðlilegt er að aldrei er talað um annars konar kvikindi sem þó eru óaðskiljanlegur hluti allra hluta. Til að bæta úr þessu ójafnvægi á orðanotkun í þjóðfélaginu er hér listi yfir hin ýmsu dýr sem tengjast fólki sem aðhyllist hinar ýmsu tegundir mennta. Listinn er unninn upp úr Orðabók Blöndals frá 1878.
Bóka-ormur
DVD-snigill
VHS-blóðsugur
Myndasögu-margfætla
Bíómynda-bjalla
Fræðibóka-fiðrildi
Eðlisfræðibóka-eðla
Alfræðibóka-amaba
Ástarsögu-veggjatrítla
Kántrímynda-kólíbrífugl
Klámmynda-flatlús
Ljóðabóka-lirfa
Listasögubóka-lús
Teiknimynda-maur
Heimildarmynda-marfló
Sjálfshjálparbóka-leðurblaka
Landakorta-loðna
Tölvubóka-svarta ekkja
Tölvuleikja-padda
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 23:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.8.2007 | 07:50
Er krónan líkið í lestinni?
Margir vilja meina að íslenska krónan sé efnahag landsins til trafala, aðrir segja að innlendur gjaldmiðill endurspegli best efnahagsástand landsins. Ef á Íslandi væru til dæmis notaðar evrur væru engin tengsl milli gengis evrunnar og ástands efnahagsmála. Það gæti leitt til atvinnuleysis eða annarrar óáran. Krónan á hinn bóginn fælir erlend fyrirtæki frá landinu og gerir þeim sem fyrir eru erfiðara fyrir, einkum þeim sem stunda viðskipti í erlendum gjaldmiðlum. Krónan er einnig ástæðan fyrir háum vöxtum, með evru byðust án efa hagstæðari lán og áhættuminni.
Um þessi mál verður haldin ráðstefna á vegum RSE í næstu viku.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 07:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.8.2007 | 07:37
Loka börunum líka
Það er hægt að kaupa bjór í stykkjatali á börunum og kaffihúsunum í kringum ríkisbúðina og drekka td. á Austurvelli. Lokun vínbúðarinnar myndi ekki leysa neinn vanda, rónarnir héldu til í miðbænum löngu áður en ríkið opnaði þar áfengisverslun.
Það er ekki raunhæft að loka áfengisversluninni í miðbænum fyrr en búið verður að leyfa sölu áfengis í matvöruverslunum, þá má búðin fara norður og niður. Boð og bönn eru ekki affarasæl. Kerfi þar sem hverjum og einum er treyst fyrir sjálfum sér eru heppilegust. Ríkið á ekki að standa í verslunarrekstri, það er ömurleg tímaskekkja.
Vill vínbúðina burt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
16.8.2007 | 13:39
Var á leið á Elvis tónleika daginn eftir að hann dó (2)
Halla Sigurgeirsdóttir var eftirvæntingarfullur unglingur 16. ágúst 1977 því hún var á leið á tónleika. Tónleika með engum öðrum en Ella Prestsins, Elvis Presley, í Portland í Bandaríkjunum þann 17. ágúst. Róbert frændi hennar ætlaði með og búið var að kaupa miða. En þá tekur kóngurinn upp á þeim óskunda að yfirgefa bygginguna fyrir fullt og allt. Þau fengu miðana endurgreidda en voru samt súr að missa svona naumlega af honum. Síðan þetta gerðist hefur Halla aldrei verið notuð sem lukkudýr, hvorki í fjölskyldunni né annarsstaðar.
Á myndinni er Halla Sigurgeirsdóttir rúmum tveimur árum áður en hún missti af Presley-tónleikunum. Með henni á myndinni eru bræður hennar, Sigurgeir Orri og Jónas Björn.
Þrjátíu ár frá andláti Elvis Presley | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt 17.8.2007 kl. 07:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
16.8.2007 | 10:58
Var á leið á Elvis tónleika daginn eftir að hann dó
Halla Sigurgeirsdóttir var eftirvæntingarfullur unglingur 16. ágúst 1977 því hún var á leið á tónleika. Tónleika með engum öðrum en Ella Prestsins, Elvis Presley, í Portland í Bandaríkjunum þann 17. ágúst. Róbert frændi hennar ætlaði með og búið var að kaupa miða. En þá tekur kóngurinn upp á þeim óskunda að yfirgefa bygginguna fyrir fullt og allt. Þau fengu miðana endurgreidda en voru samt súr að missa svona naumlega af honum. Síðan þetta gerðist hefur Halla aldrei verið notuð sem lukkudýr, hvorki í fjölskyldunni né annarsstaðar.
Á myndinni er Halla Sigurgeirsdóttir rúmum tveimur árum áður en hún missti af Presley-tónleikunum. Með henni á myndinni eru bræður hennar, Sigurgeir Orri og Jónas Björn.
Elvis lifir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 21:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.8.2007 | 23:18
Fór ekki í fótbolta
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson (40) fór ekki í fótboltaleik sem skipulagður hafði verið á sparkvellinum hjá Austurbæjarskóla kl. 19 í kvöld. Aðspurður sagði Sigurgeir Orri að hann hafi ekki treyst sér í bolta í dag þar sem fór í gærkvöldi sem og á föstudagskvöld. Hann hafi fundið að úthaldið í gær hafi ekki verið nægt og viljað gefa sér einn dag til að jafna sig. En ég er meira en til í að fara í bolta á þriðjudagskvöld, bætti hann við.
Sigurgeir Orri ætlar að hlaupa 3 km næsta laugardag í hinu svokallaða Reykjavíkurmaraþoni. Ekki verra að vera kominn í smá form fyrir þá þrekraun, sagði Sigurgeir Orri brattur.
Persónulega fréttabréfið óskar Sigurgeiri Orra velfarnaðar í íþróttaiðkun sinni.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.3.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Ljóð
Ferðasaga
Einn dag fyrir átta árum
með eimskipi tók ég far.
Nú man ég því miður ekki
hver meining ferðalagsins var.
En einhverra orsaka vegna
að endingu landi var náð.
Og það var með ánægju þegið,
því þetta var skipsstjórans ráð.
Og svo hef ég verið hér síðan
og sofið og vakað og dreymt.
En eins og ég sagði áðan,
er erindið löngu gleymt.