Leita í fréttum mbl.is

Hvað með embætti Netlögreglustjóra?

Kæri Steingrímur, ekki gleyma að stofna það embætti. Þú getur ekki ímyndað þér hvað mikill ósómi þrífst á netinu. Skelfilegt að sjá hvað mannskepnan er ófullkomin. Þið verðið að setja í lög að enginn megi vera ófullkominn, þá hætta allir að vera ófullkomnir. Alveg eins og það hætta allir að neyta örvandi efna eða kaupa sér blíðu þegar það hefur verið bannað með lögum.

Bifreiðagjaldið sem nýlega var hækkað, átti aðeins að vera við lýði í skamman tíma. Síðan eru liðin 25 ár og ekkert fararsnið á því. Þessi Bankasýsla sem á aðeins að lifa í fimm ár, mun ekki vera lögð niður að þeim tíma liðnum. Það kennir sagan. Ríkið hefur ódrepandi seiglu við að þenja sjálft sig út og viðhalda sér.

Í stað þessarar Bankasýslu væri eðlilegast að þjóðinni, þessari sömu þjóð sem svo margir telja sjálfa sig vera fulltrúa fyrir, væri send hlutabréfin í ríkisbönkunum. Þá þarf enginn að velkjast í vafa um það hvort rétt hafi verið staðið að sölunni, hvort klíkuskapur hafi ráðið ferðinni og svo framvegis. Hvernig væri það nú að fulltrúar „þjóðarinnar“ sýndu í verki að þeir eru í raun fulltrúar þjóðarinnar, en ekki loddarar sem þykjast vera það í því skyni að komast til valda.


mbl.is Stofna Bankasýslu ríkisins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Blessaður vertu, Ríkið fer á hausinn innan 2 ára, og þá þarf ekkert að hafa áhyggjur af þessu.

Ásgrímur Hartmannsson, 20.6.2009 kl. 12:42

2 identicon

Vona að þú sért ekki að skrifa þessa vitleysu í nafni bróður þíns, hvað labbaði hann með marga milljóna tugi frá Kaupþingi ? Varst þú kannski á prósentum ?

Fékk hann ekki einhvern slatta líka niðurfellt frá Hreiðari og Sigurði ?

Geri ráð fyrir þvi að megnið af þjóðinni styðji að nýjar stofnanir verði settar á fót sem komi í veg fyrir að bankamann, þar með talinn bróðir þinn, geti ekki mergsogið íslenskt bankakerfi og þá þjóðina í kjölfarið, á nýja leik.

Sigfús (IP-tala skráð) 20.6.2009 kl. 13:32

3 Smámynd: Guðbjörn Guðbjörnsson

Sovét-Ísland óskalandið hvenær kemur þú?

Sovét-Ísland
Sovét-Ísland
óskalandið
hvenær kemur þú?
Er nóttin ekki orðin nógu löng
þögnin nógu þung
þorstinn nógu sár
hungrið nógu hræðilegt
hatrið nógu grimmt?
Hvenær...?

(Jóhannes úr Kötlum: Samt mun ég vaka, 1935) 

Guðbjörn Guðbjörnsson, 20.6.2009 kl. 13:54

4 Smámynd: Sigurgeir Orri Sigurgeirsson

Sigfús, ég held ég hafi aldrei lesið aumari aðdróttun en þessa. Fullkominn aumingi.

Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, 20.6.2009 kl. 22:26

5 Smámynd: Sigurgeir Orri Sigurgeirsson

Augljóst er að vinstri vesalingarnir eru komnir í vörn. Það er þægilegt að vera mótmælandi úti í horni. En þegar það þarf að bera ábyrgð og standa sig. Þá missa þeir óðar allt niður um sig.

Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, 20.6.2009 kl. 22:50

6 identicon

Aumingi, ok, þetta var þá besta sem þú gast svarað því sem ég beindi að þér. Hitt er annað, það kann vel að vera að þú og þín fjölskylda hafi ekki notið góðs af því "bankagóðæri" sem hér hefur staðið yfir síðustu ár.

Klárt mál að ég var ekki einn af þeim, en nú kemur í minn hlut af greiða fyrir það, og væntanlega þín líka.

Þess vegna vill kýs ég stofnun sem mun hafa traust almennings til að  byggja aftur upp fjármálakerfi sem mun ekki rýja 90 % af þjóðinni inn að skinni.

Sigfús (IP-tala skráð) 21.6.2009 kl. 00:54

7 Smámynd: Sigurgeir Orri Sigurgeirsson

Ég vona að þú sért ekki að skrifa þetta í nafni langömmu þinnar. Hún á betra skilið en þessa vitleysu.

Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, 21.6.2009 kl. 13:59

8 identicon

Sæll Sigurgeir.

"það er ekki spurning um hvað þú getur, heldur spurning hvað þú gerir"

Veit til þess að þú átt það til að vera málefnalegur, hefur sýnt að þú getur það, núna ertu ekki alveg nógu klókur. Langamma mín hefði allavega staðið sig betur í sínum málflutningi en þú þykir sýna hér.

Er langt frá því að vera sammála þér í þínum pólitísku skoðnum. Er sjálfur ekki vinstri maður eins og þér og flokksbræðrum þínumvirðist allir vera sem trúa ekki á hinn heilaga hægri- og bankaalræðismann.

Gangi þér vel

Sigfús (IP-tala skráð) 21.6.2009 kl. 20:43

9 Smámynd: Sigurgeir Orri Sigurgeirsson

Sumir eiga ýmislegt eftir ólært í því að vera málefnalegir.

Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, 22.6.2009 kl. 10:55

10 identicon

Hey, 1717, númerið til að panta vælubílinn.

Sigfús (IP-tala skráð) 22.6.2009 kl. 11:42

11 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Þú virðist hafa stigið á aumt líkþorn hjá honum Steinfúsi með þessari færslu.

Ekki skrítið, því Steinfús hætti að vera fulltrúi "þjóðarinnar" um leið og hann settist í valdastólinn. Nú er hann bara sinn eigin fulltrúi.

Ragnhildur Kolka, 25.6.2009 kl. 14:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson

Fyrir mér er sannleikurinn mikilvægastur. Mörgum svíður undan sannleikanum. Það verður bara að hafa það. Sannleikurinn blívur.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 114001

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband