Leita í fréttum mbl.is

Sigurgeir Orri fordæmir Bandaríkin

Íslenska innanhöfuðsráðuneyti Sigurgeirs Orra Sigurgeirssonar sendi frá sér rétt í þessu harða yfirlýsingu þar sem lýst er yfir áhyggjum af upplýsingaskorti bandarískra yfirvalda um sjálfbæra nýtingu gæða hafsins. Ofverndun dýrategunda veldur miklu ójafnvægi sem getur valdið miklu meiri skaða en hófleg nýting. Einnig lýsir ráðuneytið miklum vonbrigðum með að Bandaríkjamenn skuli láta glepjast af áróðri atvinnugræningja sem í sjónvarpsauglýsingum ljúga upp í opið geðið á sínum eigin samlöndum að ísbirnir séu í bráðri útrýmingarhættu þvert á rannsóknir vísindamanna. Bandaríska þjóðin á að spyrja sig næst þegar þessi auglýsing birtist: Hvernig lifðu ísbirnirnir af síðasta hlýindaskeið?
mbl.is Bandaríkin fordæma hvalveiðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Bergkvist

Nú er ég ánægður með kallinn. Þetta er hárrétt hjá þér. Bandaríkjamenn ættu líka að spyrja hvern annan að því hvort það að skjóta hvali jafngildi því að skjóta fólk, öfgarnar eru svo miklar í sumum þeirra. Útsendarar þeirra lands hafa skotið ófáa saklausa borgara annarra ríkja út um allan heim. Það væri ekki vitlaust að berjast gegn slíku, verst að það er ekki eins arðbært eins og þetta með hvalina.

Guðmundur Bergkvist, 2.3.2009 kl. 13:08

2 Smámynd: Sigurgeir Orri Sigurgeirsson

En ég held samt áfram með Liverpool.

Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, 4.3.2009 kl. 08:01

3 Smámynd: Ingvar Valgeirsson

Ef ég man rétt drepa Bandaríkjamenn talsvert mikið fleiri hvali en við - kann einhver að stafa "frumbyggjaveiðar"?

Ingvar Valgeirsson, 5.3.2009 kl. 09:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson

Fyrir mér er sannleikurinn mikilvægastur. Mörgum svíður undan sannleikanum. Það verður bara að hafa það. Sannleikurinn blívur.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 113946

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband