8.2.2009 | 00:05
Kennslubolur
Hver kannast ekki við að vera með minnimáttarkennd vegna ónógrar menntunar? En ekki lengur. Nú hefur Egozentric®© París, London, New York, Róm tekið að sér í samvinnu við góðan viðskiptavin að kenna fólki. Kenna fólki hvað er rétt og hvað er rangt. Nú þarf enginn að vera með minnimáttarkennd vegna menntunarskorts, greindarleysis eða skilningsleysis. Nú þarf enginn að svekkja sig á hvaða menntun er rétt og hvaða menntun er röng. Egozentric®© upplýsir alla um þann sannleik á einfaldan og skýran hátt: Á bol.
Rétt menntun, röng menntun. Litur brúnn með rauðum ermum. Stærð 1-100. Vertu ekki utangátta, vertu með aðalatriðin á hreinu. Menntaðu þig rétt og sæktu svo um starfið. Fjármál, verkstjórn, skiptir ekki máli. Menntunin skiptir máli. Verð aðeins 100 evrur.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.4.): 3
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 19
- Frá upphafi: 114015
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 18
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Af mbl.is
Fólk
- Stal athyglinni frá Kim Kardashian
- Eggert biðlar til fólks að hætta að eggja húsið sitt
- Laufey fagnar 25 ára afmæli
- Kryddpían Mel B átti í fimm ára sambandi við konu
- Alec Baldwin áreittur af stuðningsmanni Palestínu
- Moses Hightower og Prins Póló gefa út eyjalag
- Jón Gnarr fékk afhenta góða gjöf
- Tónlistarmiðstöð tekur til starfa
- Þriggja ára ofuraðdáandi Laufeyjar miður sín yfir atvikinu
- Bashar Murad heldur tónleika á Íslandi
Ljóð
Ferðasaga
Einn dag fyrir átta árum
með eimskipi tók ég far.
Nú man ég því miður ekki
hver meining ferðalagsins var.
En einhverra orsaka vegna
að endingu landi var náð.
Og það var með ánægju þegið,
því þetta var skipsstjórans ráð.
Og svo hef ég verið hér síðan
og sofið og vakað og dreymt.
En eins og ég sagði áðan,
er erindið löngu gleymt.
Athugasemdir
Svo er víst líka rétt að vera jarðfræðingur í stól fjármálaráðherra. Það er ekki sama hver er.
Gunnar Th. Gunnarsson, 8.2.2009 kl. 01:45
Á hlutabréfamarkaði lenda ráðuneytisstjórar í "braski" en alþingismenn í "lélegri lausafjárstöðu".
Þessi bolaverksmiðja þín ætti að hafa næg verkefni langt inn í næsta góðæri.
Ragnhildur Kolka, 8.2.2009 kl. 11:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.