Leita í fréttum mbl.is

Fjölmiðlar, netið og eignarhald - viðbót

Það var eitt sem ég gleymdi á rökstólunum við sjálfan mig um fjölmiðla og eignarhald sem er netinu í óhag: Á hefðbundnum fjölmiðlum eru blaðamenn að störfum sem ættu að geta kafað í málin og rannsakað þau (það er að vísu undir hælinn lagt). Netið hins vegar hefur hærra hlutfall frístundablaðamanna eins og ég er, þannig að segja má að það sé meira álitsgjafafjölmiðill frekar en rannsóknarblaðamennskufjölmiðill. Á hinn bóginn má segja að margir frístundablaðamennirnir leggi meiri vinnu í rannsóknir sínar en atvinnublaðamenn. Margar vefsíður bera þess merki.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingvar Valgeirsson

Einhverjir blaðamenn virðast líka leita í bloggsíður sem heimildir - kannski skárri heimildir en sumt annað...

Ingvar Valgeirsson, 27.11.2008 kl. 10:31

2 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Eignarhald fjölmiðla er einmitt stóra málið. Þegar það er ekki lengur forgangur blaðamennsku að upplýsa heldur að auglýsa tapast traust.

Fríblöðin fluttu skyndibitahugarfarið inn í blaðamennskuna. Auglýsingargildið varð alsráðandi og  gerði að verkum að fréttagildið flattist út. Mogginn er núna að gera sitt besta til að snúa aftur í dýpri umfjöllun en í millitíðinni tapaði hann trúnaði og þar með lesendum.

Í leit sinni að lesendum hefur hann veðjað á fólk sem hvorki treystir Mogganum né tímir að borga fyrir vinnuna sem að baki fréttaöflun býr. Afleiðingin er að Moggann er í  limbo.

Við verðum því bara að halda áfram að afla okkur frétta á netinu og stunda okkar frístundablaðamennsku. Eða láta það vera. 

Ragnhildur Kolka, 27.11.2008 kl. 10:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson

Fyrir mér er sannleikurinn mikilvægastur. Mörgum svíður undan sannleikanum. Það verður bara að hafa það. Sannleikurinn blívur.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 113985

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband