Leita í fréttum mbl.is

Skrifborðið mitt

Grænn stickies miði með heimilisfangi John frænda á. Minnismiði um dvd disk sem ég útbjó fyrir Rúnu. Gulur stór stickies miði með nafni manns sem er mikill safnari á Loftleiðadóti. 120 gb harður diskur. Lítil vasatölva sem tilvalið er að hafa með í ferðalög til að reikna út gengi. Batteríið í henni hefur verið það sama í áratugi og sýnir engin þreytumerki. Glær reglustika. Gluggaumslag frá Hive sem ég nota sem minnismiða. Á þeirri hlið sem snýr upp er ekkert skrifað utan tvö ártöl. Löstur er ekki glæpur eftir Lysander Spooner liggur undir umslaginu og undir þeirri bók er handbók um Final Cut Pro. Ævisaga Alfreðs Elíassonar. Gatari, Heyrnartól með hljóðnema, fjarstýring á myndavélina, fjarstýring á sjónvarpið, heftari, áherslupenni, úr, hljómdiskur með tónlist úr myndinni What's up Tiger Lily? með hljómsveitinni The Loving' Spoonful. Box með tómum dvd diskum, box með tómum cd diskum, hjól sem ég pantaði frá útlöndum undir ferðatöskuna mína. Blaðaúrklippa. Það er fleira á borðinu mínu, en til að halda spennunni ætla ég ekki að segja frá því fyrr en eftir óákveðinn tíma.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvilik spenna, hlakka til framhaldsins. A skrifbordinu minu er fjogurra vikna vinna. Hef thjadst af flugthreytu sidan eg kom heim ur friinu held eg, og ekki gert neitt. A golfinu er malningarfata sem eg tharf ad koma ut vil vidskiptavinar. Er ad spa i ad lata thad nægja i dag og kikja ad bordid i næstu viku, kannski. Buinn ad drekka Thule kippuna, kaupi kannski Odense i dag eda a morgun. Kvedja. Villi.

Vilberg Olafsson (IP-tala skráð) 20.7.2007 kl. 05:51

2 Smámynd: Sigurgeir Orri Sigurgeirsson

Smá teaser: Lampi og USB snúrur.

Ég myndi frekar veðja á að Thule hafi valdið flugþreytunni.

Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, 20.7.2007 kl. 15:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson

Fyrir mér er sannleikurinn mikilvægastur. Mörgum svíður undan sannleikanum. Það verður bara að hafa það. Sannleikurinn blívur.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 114001

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband